Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 80
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR
TÍMAMÓT
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
BJARGAR JÓNÍNU KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Hemru í Skaftártungu,
síðast til heimilis í Brákarhlíð
í Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar, hjúkrunar- og
dvalarheimilis í Borgarnesi, fyrir nærgætni og góða umönnun.
Brynrún Bára Guðjóndóttir
Katrín Sigrún Guðjónsdóttir
Kristín Guðjónsdóttir Rúnar Viktorsson
Þórir Páll Guðjónsson Helga Karlsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Sími 551 3485,
svar ða allan
sólarh ir nginn.
www. du o.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför okkar elsku,
AUÐAR MJALLAR
FRIÐGEIRSDÓTTUR.
Ísak Örn Arnarsson
Elsabet Jónsdóttir
systkini og fjölskyldur.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu sem sýnt hafa okkur samúð,
hlýhug og kærleika vegna fráfalls okkar
ástkæra,
BJÖRNS KOLBEINSSONAR
lögfræðings hjá EFTA.
Sérstaklega viljum við þakka prestinum
okkar, séra Eðvarði Ingólfssyni, fyrir stuðning
og styrk svo og öðrum sem heiðrað hafa minningu hans á svo
margvíslegan hátt.
Kolbeinn Sigurðsson Aðalheiður Ingvadóttir
Sigurður Kolbeinsson
Jóhannes Ingi Kolbeinsson Andrea Kristín Jónsdóttir
Friðdóra Dís Kolbeinsdóttir
Þórhildur Þórhallsdóttir Pétur Jónsson
Elías Þórhallsson Berglind Inga Árnadóttir
Hrafnhildur Þórhallsdóttir
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
HAFÞÓR PÁLSSON
Þverbrekku 4, Kópavogi,
lést á Landspítalanum þann 23. janúar.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jón Ingi Pálsson Bergþóra Björnsdóttir
og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓHANNS SVAVARS HELGASONAR
Blöndubakka 7, Reykjavík.
Ellen Marie Sveins
Þorbjörg Rósa
Guðrún Ásta / Guðmundur
Sveindís / Arnar
barna- og barnabarnabörn.
Elskuleg systir okkar og frænka,
GUÐBJÖRT GUÐRÚN
ERLENDSDÓTTIR (GAUJA)
Lómasölum 2, Kópavogi,
sem lést miðvikudaginn 23. janúar sl. verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
4. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hlíf Erlendsdóttir
Guðfinnur Erlendsson
Jóhanna Ellý Sigurðardóttir Júlíus Sigurðsson
Erlendur Jónsson Alda Ögmundsdóttir
„Við verðum á þremur hæðum því við
leggjum undir okkur allt Háskólatorg-
ið og það verður mikið um að vera,
margt að skoða og sitthvað að smakka,“
segir Gunnella Þorgeirsdóttir, höfuð
japönskudeildarinnar og aðjúnkt í
Háskóla Íslands, um japönsku hátíðina
sem stendur frá eitt til fimm í dag. Hún
tekur fram að Háskóli Íslands og sendi-
ráð Japans á Íslandi standi að hátíðinni
og nemendur í japönsku við HÍ sjái nán-
ast alfarið um undirbúning og skipulag.
Spurð út í nemendafjöldann við deild-
ina kveðst hún ekki alveg vera með töl-
una á hreinu en telur að þeir séu rúm-
lega sextíu á 1. og 2. ári. „Síðan erum
við með þriðja árs skiptinema erlendis
og alltaf eru einhverjir í hálfu námi,
eða að ljúka við BA-ritgerðir,“ upplýsir
hún. Gunnella bætir við að stærsti hluta
nemendahópsins sé íslenskur en fæstir
kennaranna séu íslenskumælandi og því
fari kennslan fram á ensku.
Gunnella er Reykvíkingur en hvaðan
kemur henni áhuginn á Japan? „Ég hef
bara alltaf haft áhuga á Japan. Þegar
ég var barn að horfa á kvikmyndina
Shogun man ég að ég tók glósur þegar
verið var að kenna aðalpersónunni jap-
önsku, ég hef varla verið meira en tíu
ára þá þannig að áhuginn hefur alltaf
verið til staðar.“ Hún kveðst hafa dval-
ið í Norður-Japan sem skiptinemi í eitt
ár þegar hún var átján ára og svo farið
aftur til landsins að vinna að rannsókn
á japanskri menningu fyrir doktorsrit-
gerð sem hún vinnur að við Sheffield-
háskóla. „Þá fór ég út með fjölskylduna í
eitt og hálft ár þannig að börnin tvö fóru
í japanskan skóla og náðu bæði góðum
tökum á japönskunni.“
Japanshátíðin er í dag er sú níunda
í röðinni og við snúum okkur aftur að
viðburðum hennar. „Já, nemendur verða
með fyrirlestra um japanska menn-
ingu, það verður boðið upp á kennslu í
origami og að teikna manga-karaktera,
svona teiknimyndafígúrur. Svo verðum
við með stöðuga dagskrá á sviði, hljóm-
sveit, danssýningu og sýningu á jap-
önskum bardagaíþróttum,“ lýsir Gunn-
ella og bætir við: „Síðan er nýmæli í
ár, það er búningakeppni þannig að
fólk hefur klætt sig upp annaðhvort
eftir japanskri tísku eða japönskum
teiknimynda fígúrum. Það verður örugg-
lega skemmtilegt.“ gun@frettabladid.is
Japönsk tíska og
teiknimyndafígúrur
Japönskudeild HÍ fagnar tíu ára afmæli í ár. Spurningakeppni um Japan, sýning á
japönskum bardagaíþróttum og að sjálfsögðu sushi-smakk eru liðir í japanskri hátíð sem
teygir sig yfi r Háskólatorgið milli klukkan 13 og 17 í dag.
GUNNELLA „Það verður mikið um að vera, margt að skoða og sitthvað að smakka,“ segir hún
um hátíðina á Háskólatorgi í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hinn tuttugu og fimm ára gamli Kópavogsbúi
Halldór Halldórsson gekkst undir hjarta- og
lungnaskipti þennan dag árið 1988. Hann var
fyrstur Íslendinga til að gangast undir slíka
aðgerð sem tók átta klukkustundir og var gerð
á Old Court-sjúkrahúsinu í London. Halldór var
með fullri meðvitund þegar hann var undirbúinn
fyrir uppskurðinn og lagður á skurðborðið því
hann afþakkaði kæruleysissprautu. „Ég vildi
upplifa stundirnar fram að aðgerðinni með fullri
rænu,“ var haft eftir honum á eftir í DV.
Halldór hafði beðið eftir líffærunum í liðlega
ár og aðgerðin heppnaðist mjög vel. Eftir hana
hélt hann til á Harefield-sjúkrahúsinu fyrir
norðan London þar sem hann dvaldi í þrjá
mánuði.
ÞETTA GERÐIST: 2. FEBRÚAR 1988
Hjarta grætt í Íslending í fyrsta sinn