Fréttablaðið - 02.02.2013, Page 95
LAUGARDAGUR 2. febrúar 2013 | MENNING | 67
Fannar Sveinsson
er annar Hrað-
fréttamanna sem
slegið hafa í gegn
með innslög sín í
Kastljós á RÚV í
vetur. Þeir Fannar
og Benedikt Vals-
son hafa svo tekið
þátt í Eurovision-
hátíðahöldunum í
Efstaleiti undanfarnar vikur og verða
í eldlínunni þegar framlag Íslands
í Eurovision verður valið í Hörpu í
kvöld. Fréttablaðið bað Fannar að
greina lesendum sínum frá sinni
uppáhaldsborg í heiminum og hann
velur Reykjavík, þar sem hann er
fæddur, uppalinn og býr enn.
BORGIN MÍN Í REYKJAVÍK FER ÉG LANGOFTAST Á HAMBORGARABÚLLUNA
FANNAR
SVEINSSON
FÆÐINGARBORGIN Fannari þykir Reykjavík besta borg í heimi enda er það
fæðingarborgin hans og þar býr hann enn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hver er uppáhalds-
borgin þín?
Reykjavík.
Hvers vegna er hún
uppáhaldsborgin þín?
Hún er vaggan sem ég
fæddist í.
Hvenær fórstu þangað
síðast?
Áðan.
Hvað er hægt að skoða
þar?
Það er Sjóminjasafn,
ylströnd og fullt af alls
konar.
Hvað er hægt að gera
þar?
Þar er hægt að fara í
baðlaugar, borða pylsur
með öllu og svo var að
opna ný keiluhöll sem er
geðveikt kúl.
Hvar er gott að fara út
að borða þar?
Eiginlega allt sem
manni dettur í hug en
ég fer lang oftast á stað
sem heitir Búllan „The
Hamburger Joint“ og fæ
mér Tilboð aldarinnar
sem er hamborgari,
franskar og kók.
Hvar er best að versla?
Það eru staðir í borginni
sem heita Kringlan
og Smáralind sem eru
verslunarmiðstöðvar.
Svo er annar staður sem
heitir Laugavegur sem
er svona fyrsti og elsti
staðurinn til að versla
á. Ég myndi samt segja
að Kolaportið, gamall
og töff staður í hjarta
borgarinnar, sé besti
staðurinn til að versla
því þar er allt til alls.
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows
APP VIKUNNAR
Vine
Flestir snjallsímanotendur þekkja
hið vinsæla myndatöku-app
Instagram. Segja má að Vine, sem
gefið var út í síðustu viku, sé eins
og Instagram nema í stað þess að
taka ljósmyndir tekur það upp stutt,
sex sekúndna löng myndbönd. Vine
er ekki fyrsta appið til að bjóða upp
á þjónustu sem þessa en það er
kannski líklegast til vinsælda. Það
er nefnilega hannað af Twitter og er
með beina tengingu við örblogg-
síðuna vinsælu.
Slökkvitæki og
reykskynjarar
oryggi.is
Sími 570 2400