Fréttablaðið - 02.02.2013, Síða 96
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 68
EYÞÓR INGI
Hvern dreymir þig að hitta? David
Bowie og Thom Yorke.
Hverjum myndir þú vilja veita
fálkaorðuna? Ladda. Hann á það
skilið fyrir allt gullið sem hann hefur
fært þjóðinni í gegnum árin.
Hvað er mest pirrandi í heimi?
Leiðinleg tónlist sem óvart verður
vinsæl.
Besta íslenska Eurovision-lagið?
Á erfitt með að gera upp á milli
Eurovísa með Botnleðju og Hvar ertu
nú með Dr. Spock.
MAGNI ÁSGEIRSSON
Hverjum myndir þú vilja veita
fálkaorðuna? Hinum íslenska hjúkr-
unarfræðingi. Ástæðan er augljós,
ótrúlegt fólk að vinna gríðarlega
erfiða vinnu fyrir skítakaup.
Hvenær á Britney Spears afmæli?
Fædd 29. maí 1981, nákvæmlega
sama dag og Eyrún eiginkonan mín!
Versta íslenska Eurovision-lagið?
Höfum við ekki alltaf farið á kostum
og Evrópa bara misskilið okkur?
Hvað yrði það fyrsta sem þú myndir
gera þegar þú værir búinn að
vinna? Gráta! Ég held í alvöru að ég
myndi gráta gleðitárum.
HREINDÍS YLVA
Hvern dreymir þig að hitta? Meryl
Streep, Kate Winslet og Dolly Parton,
kannski allar saman bara, það væri
gott partí held ég.
Hvern ætlar þú að kjósa í kvöld?
Það á pottþétt eftir að vera svo
gaman að ég bara gleymi því. En mig
langar að gefa hárinu hans Svavars
Knúts einhvers konar töffaraatkvæði.
Hvað er mest pirrandi í heimi?
Neikvæðni, tuð og þegar búin eru til
vandamál.
STEFANÍA SVAVARS
Hver er fyrirmyndin þín á sviði?
Beyoncé. Falleg, hlý og 100% pitch.
Hvað er mest pirrandi í heimi?
Að missa símann á milli sætanna í
bílnum og að vera rosalega svangur
og panta sér franskar en svo eru þær
alltof heitar þegar maður fær þær.
Hvað yrði það fyrsta sem þú myndir
gera þegar þú værir búin að vinna?
Hringja í mömmu.
JÓGVAN
Söngstu með Gleðibankanum árið
1986? Nei, þá bjó ég í Færeyjum og
vissi ekkert um Ísland.
Ef þú þyrftir að hlusta á sama lagið
stöðugt í tvö ár, hvaða lag myndirðu
velja? Ormurin langi, færeyskt kvæði
í 86 versum sem mynda góða sögu.
Ef þinn versti óvinur þyrfti að gera
slíkt hið sama, hvaða lag myndirðu
láta hann hlusta á? Ormurin langi.
Því hann skilur ekki færeysku.
Hvað yrði það fyrsta sem þú myndir
gera þegar þú værir búin að vinna?
Þakka Guði og þjóðinni og fara síðan
á KFC.
HARALDUR REYNIS
Hvern dreymir þig að hitta? Bob
Dylan. Hann er móðurkartaflan í
þessum bransa, hefur sett ný viðmið
og er trúr sjálfum sér.
Hverjum myndir þú vilja veita
fálkaorðuna? Á einhver eftir að fá
hana? Ég vil að orðan sé veitt fólki
sem leggur sitt af mörkum til að gera
heiminn að betri stað.
Hvað yrði það fyrsta sem þú
myndir gera þegar þú værir búinn
að vinna? Þakka fyrir mig, halda
partí fyrir vini og fjölskyldu og fara í
ísbíltúr með Elínrós og Dallilju sem
sungu með mér.
SVAVAR KNÚTUR
Söngstu með Gleðibankanum árið
1986? Algjörlega. Ég var tíu ára og
fullur af von og draumum sem brustu
svo með 16. sætinu.
Veistu hvenær Britney Spears á
afmæli? Nei, en ég veit hvenær
Emma Bunton, Baby Spice á afmæli.
Hún er fædd 21. janúar 1976, alveg
eins og ég. Hún er æði, uppspretta
allrar minnar minnimáttakendar..
Hvor er sætari, Gunna Dís eða Þór-
hallur? Gunna Dís er miklu sætari!!
BIRGITTA
Hverjum myndir þú vilja veita
fálkaorðuna? Vilborgu pólfara, ekki
spurning. Hún á skilið þá næstu.
Ef þinn versti óvinur þyrfti að
hlusta á sama lagið stöðugt í tvö ár,
hvaða lag myndirðu láta hann/hana
hlusta á? Ég myndi neita honum um
tónlist.
Hvað yrði það fyrsta sem þú myndir
gera þegar þú værir búin að vinna?
Ætli ég myndi ekki æpa út í loftið og
gera mig að fífli.
UNNUR
Hvern dreymir þig að hitta? Ég vildi
að ég hefði hitt Michael Jackson,
farið með honum í Neverland og hitt
Bubbles, apann hans.
Hverjum myndir þú vilja veita
fálkaorðuna? Óla Ragg fyrir að hafa
staðið á sínu í þessu IceSave-rugli.
Veistu hvenær Britney Spears á
afmæli? 2. desember auðvitað! Þessi
dagur var haldinn hátíðlegur þegar
ég var yngri (og líka eftir að ég eltist,
ég fer bara leynt með það). - trs
Flytjendur spurðir spjörunum úr
Flytjendurnir níu sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni í kvöld svöruðu nokkrum völdum spurningum. Fleiri svör má fi nna á visir.is
KEPPINAUTAR Þau Eyþór Ingi, Birgitta, Haraldur, Hreindís Ylva, Jógvan, Stefanía, Unnur, Magni og Svavar Knútur stíga á svið í
Hörpu í kvöld og keppa um sigur í Söngvakeppninni 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir
til þess, að draga úr reykingum. Ekki má nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með mikla nikótínþörf, reykir fleiri
en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni
skammt í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds, tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti
þegar þú finnur fyrir reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá skal draga úr fjölda stk.
smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi
ef þú getur ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að
hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni
er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Nicotinell Fruit 2 mg 24 608 25.33 507 -56%
Nicotinell Fruit 2 mg 96 2.437 25.39 508 -55%
Nicotinell Fruit 2 mg 204 4.511 22.11 442 -61%
Nicotinell Fruit 4 mg 96 3.491 36.36 727 -35%
Nicotinell Fruit 4 mg 204 6.280 30.78 616 -46%
Tegund Bragð Styrkleiki Pakkning Meðalverð Meðalverð Meðalverð Sparnaður
pr. pakka** pr. tyggjó x20
* Verðkönnun framkvæmd af MMR, 29. janúar 2013 í 10-11, Stöðinni, N1, Olís, Hagkaup, Krónan, Samkaup og Nóatún.
** Verðkönnun framkvæmd af MMR, 29. janúar 2013 í 16 apótekum.
***Í flestum tilfellum nægir að nota á bilinu 8-12 tyggjó á dag. Mest skal nota 25 stk. af 2 mg og 15 stk. af 4 mg
Í þessum samanburði er gert ráð fyrir því að einstaklingurinn tyggi eitt tyggjó fyrir
hverja sígarettu sem hann reykti***
Verðsamanburður á Nicotinell Fruit og þremur vinsælustu tegundum sígaretta
Það er ódýrara að nota
Nicotinell Fruit heldur
en að reykja!61%SPARNAÐUR!
46%
SPARNA
ÐUR!
3 vinsælar tegundir 200 11.407 57.04 1.141
Tegund Fjöldi í Meðalverð Meðalverð Meðalverð
kartoni pr. karton* pr. sígarettu pr. pakka
20
13
N
CH
0
07
N
ic
ot
in
el
l