Fréttablaðið - 02.02.2013, Blaðsíða 110
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 82
HÁRÆÐI
Landsmenn hljóta að skarta fögrum
hárgreiðslum þessa dagana því bókin
Hárið hefur nú selst í 12 þúsund
eintökum og endaði hún í fjórða
sæti yfir mest seldu bækur landsins
fyrir jólin. Höfundurinn, Theodóra
Mjöll Skúladóttir Jack, er í skýjunum
með söluna en bókin er nú uppseld
hjá útgáfunni og á
leiðinni í endur-
prentun. Það
má því kannski
segja að hálf-
gert háræði
gangi nú yfir
þjóðina. - áp
Á TOPPNUM Í TÍRÓL
Tónlistarmaðurinn og plötusnúður-
inn Margeir Steinar Ingólfsson rennir
sér þessa dagana niður brekkurnar
í austurrísku Ölpunum ásamt fríðu
föruneyti. Um er að ræða árlega
skíðaferð tónlistarmanna á borð við
Jón Atla Helgason, Stephan Stephen-
sen og Daníel Ágúst Haraldsson.
Gera má ráð fyrir að
kapparnir þeyti
einhverjum skífum
á milli skíðaferða
en allir eru þeir
þekktir fyrir góða
takta við plötu-
spilarana. - áp
„Ég er fullkomnunarsinni
og í þetta sinn hafði ég ekki
tíma til að æfa með hljóm-
sveitinni. Þetta var stór
stund fyrir mig og forsetann
í beinni útsendingu og
ég vildi ekki taka neina
áhættu.“
SÖNGKONAN BEYONCE VIÐUR-
KENNDI Á BLAÐAMANNAFUNDI
FYRIR SUPER BOWL AÐ HÚN HEFÐI
EKKI SUNGIÐ ÞJÓÐSÖNGINN Í
BEINNI VIÐ VÍGSLUATHÖFN BAR-
ACKS OBAMA FYRR Í MÁNUÐINUM.
„Já, ég hef orðið vör við gagnrýn-
ina. Þessi viðbrögð koma mér dálít-
ið á óvart en ef ég set mig í spor
þeirra sem ekki hafa séð leikritið
í heild skil ég að myndbandið gæti
virkað stuðandi á suma. En ég
stend við bakið á verkinu,“ segir
Björk Jakobsdóttir, leikkona og
leikstjóri söngleiksins VÍ Will Rock
You, sem Nemendafélag Verzlunar-
skóla Íslands setur upp í Austurbæ.
Tónlistarmyndband úr sýning-
unni má nú finna á vefsíðunni You-
tube og hefur það hlotið nokkra
gagnrýni. Á samfélagsmiðlum er
myndbandið meðal annars sagt
klámfengið og ákveðin tíma-
skekkja. Björk er þessu ósammála
og segir verkið ádeilu á íslenskt
samfélag eins og það var fyrir
hrun.
„Þetta er ádeila á staðlaðar
kynjaímyndir. Við byrjum í útskrift
í Versló og síðan er farið yfir í Glit-
landsbyr og þangað kemur ráð-
gjafateymið Killer Queens frá
Cayman-eyjum sem eru hálf-
gerðar „slöts“ og ætla með
brögðum að taka yfir bank-
ann. En miðpunktur sög-
unnar er falleg ástarsaga
tveggja drengja. Mér
þykir voða leiðinlegt ef
þetta hefur snert við-
kvæmar taugar hjá
einhverjum og ég
hvet alla til að koma
og sjá sýninguna og
dæma svo. Að mínu
mati er ekki verið
að hlutgera konur í
verkinu og sjálf er
ég gallharður jafn-
réttissinni.“
Spurð hvort henni
finnist dansatriðið
hæfa menntaskólaleikriti segir
Björk atriðið ekki stuða hana
á nokkurn hátt. „Sonur
minn er í sýningunni og
myndbandinu og kannski
er ég bara svona líbó, en
ég þekki líka ádeiluna og
húmorinn í verkinu.
Mér finnst þau [krakk-
arnir] töff og flott og
ég get ekki gert að því
þó sumar stelpurn-
ar vilji vera í diskó-
buxum. Ég get alveg
viðurkennt að þær
eru full „sassy“
en það er ekk-
ert sem kemur
úr þessu mynd-
bandi heldur myndböndum sem þau
hafa verið að horfa á frá því þau
voru börn,“ segir Björk og bætir
við að lokum: „Ég er mjög montin
af þessari leiksýningu og held ég
sé að senda mjög falleg skilaboð til
unglinga um að þau hafi frelsi til að
elska þann sem þau vilja.“
sara@frettabladid.is
Söngleikur Verslinga
talinn klámfenginn
Myndband úr söngleiknum VÍ Will Rock You hefur vakið athygli á samfélags-
miðlum og verið kallað tímaskekkja. Björk Jakobsdóttir segir verkið ádeilu.
UMDEILD ÁDEILA Myndband úr söngleiknum VÍ Will Rock You, sem Versló setur
upp, er umdeilt. Björk Jakobsdóttir, leikstjóri verksins, kveðst montin af verkinu og
segir það ádeilu á staðlaðar kynjaímyndir. Hér má sjá Teit Gissurarson í hlutverki
Galileó Fígaró og Sigurbjörn Ara Sigurbjörnsson í hlutverki Rikka.
„Við vorum að fá þær fréttir að salan á Farmers
Market í Japan hefði gengið mjög vel í haust, sem
er auðvitað hið besta mál,“ segir Jóel Pálsson hjá
Farmers Market, sem þessa dagana er á flakki milli
tískuvikna út í heimi.
Það er Bergþóra Guðnadóttir sem er hönnuður
Farmers Market, en þau Jóel eru nýkomin frá
Berlín og eru núna á tískuvikunni í Kaupmanna-
höfn. Viðtökur íslenska merkisins, sem er hvað
frægast fyrir fallegar prjónaflíkur, hafa verið mjög
góðar hingað til. „Við erum á fullu að kynna haust-
og vetrarlínu fyrir 2013-14 og höfum bætt við okkur
slatta af nýjum söluaðilum hingað og þangað um
Evrópu,“ segir Jóel og bætir við að Japan hafi frá
upphafi verið þeirra stærsti útflutningsmarkaður.
„Nú í haust bættust 15 nýir söluaðilar við í Japan,
meðal annars verslanir Loftman og Journal Stand-
ard sem eru mjög þekktar keðjur þar í landi. Við
stillum þó öllum væntingum í hóf með fram haldið
og höldum öllum útlimum á jörðinni. Hlutirnir
breytast hratt í þessum bransa.“
Farmers Market er ekki eina íslenska fata merkið
sem freistar gæfunnar á sölu- og tískusýningunum
í Kaupmannahöfn en þar eru einnig hönnunarteymi
Andersen&Lauth að kynna nýja línu sína. Bæði
merkin taka þátt í Reykjavík Fashion Festival í ár.
Einnig eru Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteins-
son með merki sitt Kron by Kronkron í Kaupmanna-
höfn, en þau hafa tekið þátt í tískuvikunni þar
síðustu misseri. - áp
Japanar hrifnir af Farmers Market
Íslensk fatamerki eru á ferð og fl ugi um heiminn þessa dagana.
GÓÐAR VIÐTÖKUR Jóel Pálsson hjá Farmers Market segir
þau halda öllum útlimum á jörðinni þrátt fyrir góðar viðtökur
á tískuvikunum í Berlín og Kaupmannahöfn. Hér er hann
ásamt konu sinni Bergþóru Guðnadóttur, yfirhönnuði Farmers
Market. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HARPA 09.02.13
HOF 16.03.13
HEIÐURS
TÓNLEIKAR
Miðasala á midi.is, harpa.is
og menningarhus.is
Bílakjarnanum • Eirhöfða 11 • Sími 551 7171 • notadir.bernhard.is
HONDA - ACURA MDX - 7 manna
Nýskráður 7/2007, ekinn 35 þ.mílur, 3.7-V6, 300 hestöfl, SH-AWD fjórhjóladrif, sjálfskiptur,
7 manna, fjarlægðarskynjarar, bakkmyndavél, leðurinnrétting, sóllúga, DVD-DTS margmiðlunar-
og hljómflutningskerfi, 18” álfelgur, litaðar rúður að aftan, dráttarkrókur.
Verð kr. 6.990.000 • Tilboð kr. 5.990.000
75% bílasamningur
til 60 mánaða
Ég get alveg viður-
kennt að þær eru full
„sassy“ en það er ekkert
sem kemur úr þessu
myndbandi....
Björk Jakobsdóttir leikstjóri
BJÖRK
JAKOBSDÓTTIR
VILDI FRÍMIÐA Í HÖRPU
Guðbjartur Finnbjörnsson
tónleikahaldari nældi í frímiða á
Söngvakeppni sjónvarpsins í Hörpu í
Popplandi á Rás 2 í gær. Guðbjartur
ætti ekki að vera ókunnur staðnum,
þar sem hann hefur staðið fyrir
fjölda tónleika þar og annars staðar,
meðal annars með Paul Young, Cindy
Lauper og Paul Simon. Fjölskyldu-
faðirinn eyðir því líklega mestallri
helginni í tónleikahúsinu
þar sem hann stendur
fyrir tónleikum þar
annaðkvöld með
tribute-bandinu The
Bootleg Beatles. Hann
þarf væntanlega ekki
að hringja í útvarpið til
að hlýða ókeypis á þá. - sv