Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Side 5
FJAROARPÓSTURINN
5
Hjördís Þorsteinsdóttir skrifar um
SPRENGINGUNA
Fimmtudaginn þann 4. október
um fimmleytið varð gífurleg
sprenging við Smjörlíkisgerðina
Akra, hér í Hafnarfirði, þeim
megin við húsið er snýr að Trönu-
lirauni.
Sprengingin virðist hafa komið
frá ruslatunnu, sem stóð fyrir utan
húsið. Brot úr tunnunni þeyttust
um nágrennið, og munu jafnvel
hafa fundist í um 200 m fjarlægð
frá sprengistaðnum.
Slys á mönnum urðu minni, en í
fyrstu hefði mátt ætla, því að við
sprenginguna brotnuðu flestallar
rúður í nærliggjandi húsum.
Sjónarvottur lét svo um mælt að
rúðurnar hefðu skyndilega orðið
eins og glitrandi foss um leið og
brotin hrundu til jarðar.
Þeir einstaklingar, sem voru í
nærliggjandi húsum við vinnu sína,
töldu það víst, að nú væru Rússarn-
ir sko komnir.
Það eru meira en lítið undarleg
vinnubrögð hjá fyrir tæki, sem
AKRA, að hafa til lengri tíma haft
þann sið að brenna rusli í tunnu
fyrir utan verksmiðjuhúsið, því að í
nágrenni þess er, m.a. talsvert af
bifreiðaverkstæðum og fyrirtækj-
um, sem nota mjög eldfim efni til
framleiðslu og við vinnu.
Þeir, sem þarna eru með fyrir-
tæki í nágrenni við AKRA, hafa
undrast mjög að svo virðist sem eld-
varnareftirlitið og slökkviliðið hér i
Firðinum skuli hafa látið það óátal-
ið að þarna væri rusli brennt i tunn-
unum svo að reykjarmökkinn hefur
lagt yfir byggðina þarna um kring.
Reykurinn hefur þó vart farið
framhjá slökkviliðinu hér í Hafnar-
firði, þar sem staðsetning þess er
aðeins 147 metra í burtu frá sprengi-
staðnum.
Þá er vert að minnast þess að
mengun lofts er bönnuð með lögum
þessa lands.
Vonandi verður þó þessi spreng-
ing til þess, að vekja sofandi bæjar-
stjórnarmenn og aðra embættis-
menn kerfisins hér í Firðinum um
það, að það eru til reglur er varða
hreinsun á rusli og frágang og um
eldvarnir, en ef þeir eiga ekki eintak
af þessum reglugerðum þá geta þeir
kannski bara farið „inneftir" til
þess að sækja sér eintak (skýr.
„inneftir" það er til Reykjavíkur).
Því það virðist vera gamalgróinn
ósiður hjá innfæddum Hafnfirð-
ingum að sækja sem flest „inn-
eftir“.
Við sem búum hér í Hafnarfirði
og viljum gera góðan bæ betri,
verðum að draga lærdóm af þessari
lífsreynslu, um leið og við þökkum
fyrir að ekki varð manntjón í
sprengingunni.
SlMI 52446
0PH3
9-22
REYNI6 SJALF!
VIRKA DACA - 10 TIL 20 UM HELGAR
BlLAÞJÚNUSTAN BARKI
TRÖNUHRAUNI4 - HAFNARFIRBI
Ðjört og góð aðstaða til þvottar og viðgerða -
Lyfta á staðnum. Smurþjónusta
DEMANTAHÚSIÐ
REYKJAVÍKURVEGI 62
220 HAFNARFIRÐI
SÍMI54911