Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Page 9

Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Page 9
FJARÐARPÓSTURINN 9 EJARUFINU Gestir á sýningu Demantahússins. Vetrarstemmning. Börnin i KFUM og K lifðu sig inn i sönginn. Gestir á málverkasýningu Jónasar Guðvarðarsonar. Wl" — I ÞREKMIÐSTÖÐIN kynnir HREFNU GEIRSDÓTTUR, íþróttakennara. Hún útskrifaðist frá íþróttakennaraskóla íslands 1974 og liefur kennl íþróttir við grunnskóla Hafnarfjarðar sl. 10 ár. Einnig hefur hún kennt sund fyrir fullorðna í Sundhöll Hafnarfjarðar. Fyrstu árin þjálfaði hún í fimleikum hjá iþróttafélaginu Gerplu í Kópa- vogi og Björk í Hafnarfirði. Eins var hún fimleikadómari hjá F.S.Í. Hún sólti námskeið í jass-ieikfimi hjá Moniku Beckman og hefur kennt almenna músíkleikfimi kvenna og karla auk þess að kenna Jane Fonda leikfimi í Þrekmiðstöðinni sl. 2 ár. Hvernig eru tímarnir hjá Hrefnu? Sirrý Siguröardóttir: Tímarnir eru góðir. Jane Fonda leikfimin er mjög uppbyggjandi og gefur góðan árangur, sé hún stunduð reglulega, þ.e.a.s. tvisvar til þrisvar í viku. 1. Nú hefur þú stundað „dagtíma í músikleikfimi“ kl. /4.30. Hvernig hefur gengið? 2. Sérð þú eftir tímanum og peningunum sem fara í þetta? Asta Ágústsdóttir, 36 ára. 1. Eg er alltaf að verða ánægðari með sjálfa mig og tilveruna. 2. Nei, síður en svo. Mér finnst mjög gott að geta farið í leikfimi á daginn. Það kemur mér vel vegna barnanna, þá eru þau í skólanum. Heilsan verður ekki keypt með peningum. 1. Þið hafið verið í „Átak í megrun“ í 4 vikur. Hvernig hefur gengið? 2. Hvaða hlutverki gegnir þjálfarinn? 3. er þetta peninganna virði? Erna Brynjólfsdóttir, 34 ára. 1. Mjög vel! Ég er ofsalega ánægð með þá rúmu 20 cm sem ég er búinn að tapa á þessums tutta tíma. 2. Mér finnst Jóhanna Þorgilsdóttir hreint frábær. Hún er svo dugleg að drífa okkur áfram og hún fylgist vel með hverri einni að hún geri réttar æfingar, en það er mjög mikivægt svo góður árangur náist. 3. Svo sannarlega! Ég er endurnærð þegar ég er búin að vera í Þrekmið- stöðinni i leikfimi, pottinum, gufunni og stundum í ljósum. Það eru góð kvöld. Anna Arnarsdóttir, 30 ára. 1. Það hefurgengið mjög vel, ég hef léttst um 6 kg á 4 vikum. 2. Þjálfarinn, Jóhanna Þorgilsdóttir, gegnir mjög mikilvægu hlutverki. Hún tekur virkilegan þátt í þessu með okkur, er mjög hvetjandi og gefur sér góðan tíma. Já, við erum mjög ánægðar með hana. Án hennar er þetta hálfur leikur. 3. Já, þetta er svo sannarlega peninganna virði. Maður endurnærist bæði á sál og líkama á því að fara í heita pottinn og gufu á eftir. Likamsrœktarnámskeið á þriðjudogum og fimmtudögum kl. /7.00, 18.00 og 20.00 Æfingar í sal í 20 mín„ œfingar í tœkjum ca. 30 mín. Sérstök áhersla á lœri, mitti og brjóst. Imiðstöðin DALSHRAUNI 4 — SÍMAR 54845 ■ 53644.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.