Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 12

Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 12
12 FJARÐARPÓSTURINN -ÍÞRÓTTIR—lÞRÓTTIR—lÞRÓTTIR- „Röðurinn verður þungur gegn HonvecT Spjallað við þjálfara og fyrirliða FH-liðsins í handbolta Það cr heilmikið uin að vera hjá handknattleiksmönnum FH þessa dagana: I. deildarkeppnin komin af stad og þátttaka í Evrópukeppni meistaralióa í fullum gangi. Til marks um álagió má nefna aó nú á laugardaginn (17. nóv.) leikur FH gegn ungverska lióinu Honved í Ungverjalandi, en síðari leikurinn veróur leikinn hér á landi sunnu- daginn 25. nóvember. A milli Evrópuleikjanna leikur FH svo vió KR í Höllinni mióvikudaginn 21. nóvember. Tíðindamenn Fjarðarpóstsins litu inn á æfingu hjá FH-lióinu fyrir skömmu og fengu þá Guð- mund Magnússon, þjálfara og Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliða, til aó spjalla í nokkrar mínútur. Við spyrjum fyrst um mót- herjana í Evrópukeppninni, ung- versku meistarana HONVED. „Viö vitum í rauninni ekki mikið um hvernig þetta lið er í dag, en það hefur verið yfirburðalið í Ungverja- Guómundur Magnússon, þjálfari landi um langt skeið, tekið þátt í Evrópukeppni í 10-15 ár samfellt og náð mjög góðum árangri, og átt 6-7 landsliðsmenn, sem myndað hafa kjarnann í ungverska landsliðinu. Það er því sýnt að róðurinn verður þungur hjá okkur að þessu sinni. En við erum ákveðnir í að gefast ekki upp fyrirfram, heldur berjast til síðasta blóðdropa og stefna hiklaust að sigri“ Hverju viljið þið spá um frammi- stööu FH-liósins í íslandsmótinu í vetur? „Við erum ákveðnir í að verja íslandsmeistaratitilinn, en við gerum okkur grein fyrir því að það verður mun erfiðara að sigra nú en í fyrra. Við höfum misst sterka leik- menn, þar á meðal landsliðsmann- inn sterka, Atla Hilmarsson. Pálma Jónsson missum við í sænsku knattspyrnuna eftir áramót og Sveinn Bragason á enn eftir að vera frá vegna meiðsla fram undir jól. Hins vegar hafa ungu mennirnir sýnt framfarir og við höfum nú endurheimt Guðjón Guðmunds- son, sem er óðum að komast í sitt gamla form, eftir tveggja ára fjar- veru úr topp-baráttunni. Þá má heldur ekki gleyma því að helstu andstæðingar okkar frá því í fyrra hafa greinilega styrkt stöðu sína. Þar má nefna Val og Stjörnuna, sem auk Víkings undir stjórn Bogdans landsliðsþjálfara, eiga sennilega eftir að verða okkar helstu keppinautar um íslands- meistaratitilinn" Nú hefur veriö mikiö álag á landsliðsmönnum nær stanslaust i rúmt ár. F.ru þeir ekki orðnir þreytt- ir? Hvaö segir þú um það, Óttar? „Það þýðir ekkert að vera að Hafnfirðingar ■ Nágrannar Við erum meó vélastillinaar, hleðslu- og startaraviðgerðir, auk allra almennra viðgerða. Reynið viðskiptin, ódýr, fljót og góð þjónusta. Vönduð vinna vanir menn. BÍLASTILLINC SOS HF. ^ REYKJAVÍKURVEGI64 - HAFNARFIRÐI SIMI 54318 NAFNNÚMER1109-0854 Óttar Mathiesen fyrrliði FH tekur við verðlaunum fyrir sigur í Reykja- nesmóti. hugsa um þreytu, þó undir niðri gæti hennar vissulega. Ég gæti trúað því að þegar líða tekur á veturinn komi betur í ljós hvort maður stenst þetta álag, hvort það dregur úr getunni eða hvort maður vex með því. Ég vona samt fastlega að það bitni ekki á gengi FH-Iiðsins í vetur“ Nú búist þið viö jafnri keppni um íslandsmeistaratitilinn. Er eitthvað sérstakt sem kemur þar til með að ráða úrslitum? „Fyrir utan góða anda í liðinu, þá eigum við FH-ingar sterkan bak- hjarl sem aldrei bregst, en það er stór og dyggur hópur stuðnings- manna. Þeirra hvatning á örugglega eftir að ráða miklu og þegar leikir eru í járnum, geta þeir hreinlega i ráðið úrslitum, ekki síst a heima- velli. Við eigum þessum stuðnings- mönnum okkar margt að þakka og treystum því að þeir láti ekki deigan síga nú frekar en endranær“ Hér sleppum við hendinni af þeim Guðmundi og Ótturi, óskum þeirn góös gengis og þökkum fyrir spjnllið. Bíla- og bátasalan Lækjargötu viö Reykjanesbraut 5oöo^_ DQB SIMI 53233 GARÐYRKJUMAÐUR - HAFNARFJÖRÐUR: Hafnarfjarðarbær óskar að ráða garðyrkju- mann til starfa. í starfinu felst verkstjórn vinnuflokks og umsjón með ýmsum verkefnum vinnuskóla o.fl. að sumri til, en hönnun og annar undirbúningur verka á vetrum. Laun samkvæmt kjarasamningi við Starfs- mannafélag Hafnarfjarðar. Nánari upplýsingar veitir bæjarverkfræðingur, Strandgötu 6, á skrifstofutima. Umsóknum skal skila á sama stað eigi síðaren 26. nóvember n.k. Bæjarverkfræðingur

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.