Fjarðarpósturinn - 01.11.1984, Page 14
14
FJARÐARPÓSTURINN
Augnsýn færist um set
Athyglisverð sýning í Demantahúsinu
Gleraugnaverslunin Augnsýn liefur aukið við húsnæði sitt að Reykjavíkur-
vegi 62 og batnar við það öll aðstaða verslunarinnar. Eigandinn, Haraldur
Stefánsson, kvaðst binda miklar vonir við það að öll þjónusta yrði nú enn
betri en áður, enda nýja húsnæðið rýmra og rneira í alfaraleið. Fjarðar-
pósturinn óskar Haraldi til hamingju. A myndinni sjáum við Harald og
Jóhönnu Sigurjónsdóttur, afgreiðslustúlku í hinum nýju húsakynnum
Augnsýnar.
AÐVEWTAM DJALGAST
Við erum tilbúin með allt efni í
aðventukransa og skreytingar.
KERTAMARKAÐUR — ALDREI MEIRA ÚRVAL
BLOMABUÐIN
Um síðustu helgi opnaði Dem-
antahúsið, Reykjavíkurvegi 62, sýn-
ingu á eðalsteinum. Sýndir eru
óunnir eðalsteinar eins og þeir
koma fyrir í náttúrunni, slípaðir
eðalsteinar og handsmíðaðir guli-
og silfurskartgripir með sýnis-
hornum af þessum 15 til 20 tegund-
um af steinum sem Demantahúsið
kynnir að þessu sinni.
Ýmsar tegundir af Agat steinum,
Tumalín steinar, Onix, Tígrisauga
og Hematít steinar eru kynntir svo
að eitthvað sé nefnt, að ógleymdum
perlum og demöntum sem Dem-
antahúsið leggur mikla áhreslu á.
Það fer ekki á milli mála að sýn-
ingin vekur mikla athygli og áhuga
bæði leikmanna og lærðra í listinni.
Því til staðfestingar er aðsóknin
fyrstu helgina, en þá skoðuðu hátt
á 5. hundrað manns sýninguna.
Frá 11. nóvember til 25. nóvem-
ber mun Demantahúsið bjóða fólki
upp á kynningu þessa þar sem fólki
gefst kostur á að fræðast lítið eitt
um þessa steina, virða þá fyrir sér
með aðstoð bæklings sem fyrirtæk-
ið hefur gefið út.
Hafnfirðingar — Garðbæingar
nágrannar!
HVERTÁ AÐ FARA NÆSTA SUMAR?
Vió minnum á sæluhúsin vinsælu í Hollandi
og Danmörku, draumastaöi fyrir fjölskylduna.
Ekki er ráö nema í tíma sé tekiö.
HAGSÝNHF
Samvinnuferðir-Landsýn
Reykjavikurvegi 72
Hafnarfirdi
Simi: 5-11-55
íslenskt handbragð á góðmálm-
um með völdum náttúrusteinum er
yfirbragð þessarar sýningar.
Daglega er sýningin opin frá kl.
13.00 til i8.00 og um helgar frá kl.
14.00 til 18.00 að 25. nóvember
meðtöldum. Þess má geta að eig-
endur Demantahússins kappkosta
að vera til staðar og bjóða gestum
útskýringar og leiðbeiningar varð-
andi sýningargripina.
Fjaröarpósturinn óskar þeim
Láru Magnúsdóttur og Stefáni B.
Stefánssyni, gullsmiöunum i
Demantahúsinu til hamingju ineð
þessa glæsilegu sýningu.