Fjarðarpósturinn - 12.03.1987, Síða 10
10
FJARÐARPÓSTURINN
—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—
lan Fleming fellur FH-ingum vel i geð
Eins og hér í blaðinu hefur ver-
ið skýrl frá, þá réðu FH-ingar til
sín skoskan knattspyrnuþjálfara í
byrjun febrúar s.l. og tók hann til
starfa um miðjan mánuðinn. Hin
langa leit stjórnarmanna KDFH
virðist eftir öllum sólarmerkjum
að dæma hafa borið góðan árang-
ur með ráðningu Ian Flemings,
því vart fer það framhjá neinum,
sem til þekkir, að knattspyrnu-
mennirnir í FH hafa tekið gleði
sína að nýju. í góða veðrinu
undanfarnar vikur hafa FH-ing-
arnir kynnst þjálfara sínum og
fullreynt að þar fer maður sem
engin vafi er á að kann sitt fag,
leggur sig allan fram og krefst
hins sama af öðrum til að vinna
að árangri. Og þrátt fyrir að
æfingarnar hjá Ian Fleming hafi
ekki verið af því léttasta tagi, sem
knattspyrnumönnum er boðið
upp á árið 1987, þá brosa menn
eftir æfingu og eru ánægðir. Þrátt
fyrir stritið.
Okkur hér á Fjarðarpóstinum
berst ekki mikið af fréttum frá
FH, hverju sem það nú sætir.
Brugðum við okkur því upp í
Kaplakrika s.l. laugardagsmorg-
un í fylgd Árna Ágústssonar til að
svala forvitni okkar um þennan
Skota, sem FH-ingar hafa ráðið
til sin sem þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil í I. deild— Og við
kynnum hann hér með aðstoð
Árna.
Ian Fleming er 34 ára gamall og
á 18 ára atvinnuknattspyrnu-
mannsferil að baki sér. Hann er
giftur og á tvö ung börn og munu
kona hans og börnin koma hing-
að í sumar.
Átján ár er nokkuð langur
atvinnumannaferill í knatt-
spyrnu, en á Ian Fleming er langt
frá því að sjást merki þreytu eða
leiða.
Ian Fleming er unglegur í útliti
og iðar af tápi og áhuga, sem
ungur drengur. Snöggur í hreyf-
ingum brosmildur og sannfær-
andi. Glaður og hress í tali, en
ákvecinn og fastur fyrir, ef þörf
krefur.
Ian Fleming hóf knattspyrnu-
feril sinn sem atvinnumaður með
Kilmarnock árið 1969, þá 16 ára
gamall og lék þá þegar m.a. með
liðinu í FAIR CITY CUP (nú
UEFA-CUP) en með Kilmarnock
lék Ian til loka keppnistímabilsins
1973/74, að Aberdeen kaupir
hann, ekki hvað síst vegna þess að
Ian var markahæsti leikmaður
keppnistímabilsins. Hafði skorað
33 mörk fyrir Kilmarnock, hvorki
meira né minna. Hjá Aberdeen er
Ian til loka keppnistímabilsins
1978, en þá er hann seldur til
Sheffield Wednesday. Söluverðið
var metsala þeirra ára, 1. milljón
pund. Ian reyndist þó of mikill
Skoti fyrir Englendingana. Fann
sig aldrei, — líkt og raunin virðist
vera með Charlie Niclaus hjá
Arsenal og gerst hefur með fleiri.
Með Sheff. Wedn. leikur Ian til
1980 að leið hans liggur aftur til
Skotlands og nú til Dundee og
með Dundee leikur hann tvö
keppnistímabil.
Straumhvörf gerast á knatt-
spyrnuferli Ian Flemings keppnis-
tímabilið 1982/83. Þá ræður
hann sig sem þjálfara og leikmann
hjá Brechin City (um 5000 íbúa
bær), sem þá var með neðstu lið-
um í annarri deildinni skosku. Og
í starfi sínu og leik sannaði Ian
Fleming, svo um varð ekki villst,
að hann hafði fleira til brunns að
bera en það að vera frábær sókn-
armaður í knattspyrnu. Hann
sannaði, að hann gat verið frábær
stjórnandi. Og til að stjórna liði
sínu sem góðum herforingja
sæmdi, ákvað markakóngurinn
og sóknarmaðurinn Ian Fleming
að leika sem aftasti maður varnar-
innar, klæddist skyrtu nr. 2 og
þaðan skyldi stjórna fram til
sigurs.
Árangur liðsins varð hrein bylt-
ing frá þvi sem áður hafði verið.
Og er starf Ian Fleming hjá
Brechin City af mörgum talið
eftirtektarverður kafli í skoskri
knattspyrnu. — Liðið vann 2.
deildina. Lék 28 leiki, vann 20
leiki, gerði 6 jafntefli og tapaði
aðeins tveim leikjum. í 1. deild-
inni árið eftir endurtók sagan sig
en „undrið,, varð samt ekki að
veruleika, því í lok tímabilsins
vantaði tvö stig til að vinna sæti í
úrvalsdeildinni skosku. Árangur
liðsins vakti samt geysimikla
athygli og áhugi vaknaði fyrir
leikmönnum Brechin City.
Stjórnarmenn félagsins stóðust
ekki tilboðin sem streymdu inn og
seldu leikmenn. Fjórir af bestu
leikmönnum liðsins voru þannig
seldir í burtu, og það reyndist
nokkuð sem félag í stöðu Brechin
City þoldi ekki, og hefur liðið
ekki borið sitt barr síðan. —
Árekstrar stjórnarmanna og
Ian Fleming, skoskur þjálfari FH
framkvæmdastjórans urðu of
tíðar og Ian hrökklaðist frá félag-
inu. Hann var einn þeirra mörgu,
sem sótti um framkvæmdastjóra-
starfið hjá Hibernian í desember
s.l. og var talinn líklegur að
hreppa það starf, en Alex Millen
hafði fjögurra ára reynslu sem
framkvæmdastjóri St.Mirren i
úrvalsdeildinni skosku og var
hann tekinn fram yfir þá Ian
Fleming og Gordon McQueen
m.a.
Það er langt frá því sjálfgefið
að frábærir knattspyrnumenn nái
jafnframt því að vera frábærir
þjálfarar eða stjórnendur knatt-
spyrnuliða. En Ian Fleming hefur
sannað hæfni sína sem knatt-
spyrnuþjálfari, ekki einungis hjá
Brechin City, heldur einnig sem
starfsmaður hjá skoska Knatt-
spyrnusambandinu sem eftirlits-
maður þjálfara, enda hefur hann
full réttindi skoska Knattspyrnu-
sambandsins sem knattspyrnu-
þjálfari.
Af frægum leikmönnum sem Ian
Fleming hefur leikið með má m.a.
nefna fyrrum og núverandi Aber-
deen leikmenn. — S. Archibad
(Tottenham Hotspur/Barcelona —
27 landsleiki) G. Strachan (Manc-
hester Udt — 37 landsleiki) W.
Miller, — 51 landsleik. Alex Mc-
Leish — 44 landsleiki og Jim Leigh-
ton — 29 landsleiki.
Þrátt fyrir mikla markaskorun
náði Ian Fleming aldrei að leika í A-
landsliði Skotlands. Þrátt fyrir það
var það um tíma mál margra að
Steve Archibald og Ian Fleming
ættu að vera saman í landsliðinu,
svo frábæran árangur hafði sam-
vinna þeirra borið fyrir Aberdeen.
— En ekki verður á allt kosið.
Ekki væri nein fjarstæða að ætla
að Ian Fleming hefði eitthvað lært
af mönnum þeim, sem stjórnað
hafa liðunum er hann hefur leikið
með. Hjá Kilmarnock var það Ally
McLeod, sem þá var fremstur í sinni
röð í Skotlandi. Hjá Aberdeen voru
það Billy McNeil (CelticMan.
City/Aston Villa) og Ferguson
(Manchester City). Hjá Dundee
stjórnaði hinn gamalkunni Tommy
Gemmell og Donald McKay. —
McNeil og Alex Ferguson eru
meðal þeirra sem talið er að hafi
hvergi nærri því sagt sitt síðasta orð
hvað knattspyrnu varðar.
Þrívegis hefur Ian Fleming leikið
á hinum heimsfrægu HAMDEN
PARK í Glasgow. Fyrir 10 árum
varð Ian Fleming skoskur meistari
er lið hans Aberdeen bar sigurorð af
Celtic í úrslitaleik á Hamden Pare
1977 (2:1).
Af framangreindu má sjá að
ferill Ian Fleming er sigrum stráður
bæði sem atvinnuleikmaður af
fyrstu gráðu og einnig sem þjálfari
og framkvæmdastjóri. En þrátt
fyrir allt er vert að FH-ingar hafi í
huga viðvörunarorð ráðgjafa þeirra
og vinar, David Moyes, (sem
reyndar réði Ian Fleming hingað) —
er David kynnti hann fyrir leik-
mönnum FH. Þá undirstrikaði
David Moyes þá staðreynd knatt-
spyrnunnar að góður knattspyrnu-
þjálfari leysir ekki einn vandann
sem vinna þarf á, áður en alvöru-
sigur vinnst í knattspyrnu. Leik-
mennirnir og stjórnendur knatt-
spyrnudeilda verða ekki síður að
uppfylla sínar skyldur. Þessi við-
vörun hefur svo sannarlega heyrst
áður og sannað gildi sitt, víðar en á
einum stað, þar sem nýr þjálfari
tekur til starfa. — Hjá FH er nú
aðalatriðið að menn geri sér fulla
grein fyrir því að á brattan er að
sækja. Ian Fleming mun krefjast
mikils af hverjum einum og því ekki
um annað að ræða en að standa sig.
Árni Ág. er
þekktur FH-ing-
urog siturí aðal-
stjórn félagsins.