Fjarðarpósturinn - 14.04.1988, Síða 9
Kynning lögreglunnar í framhaldsskólunum:
Ökumenn á aldrinum 17-20 ára lang-
stærsti áhættuhópurinn í umferðinni
Lögreglan í samvinnu við umferðarnefnd bæjaríns o.fl. heimsótti í
síðustu viku nemendur framhaldsskóla bæjarins. Tilefni heimsóknar-
innar var að ræða við unglingana um umferðarmál almennt, nýju
umferðarlögin og sérstaklega þá ógnvænlegu staðreynd, að ökumönn-
um á aldrinum 17-20 ára er langhættast í umferðinni og flestir sem slas-
ast á þeim aldri. Þá eru karlar í mun meirí hættu samkvæmt tölulegum
upplýsingum. A sl. ári slösuðust um 1.000 manns í umferðinni þar af
voru karlar 612 en konur 376.
Fleiri látist en í
heimstyrjöldunum
Það voru þeir Eggert Jónsson
og Ólafur Emilsson lögreglumenn
sem heimsóttu nemendur Iðn-
skólans á föstudagsmorgun, en þá
höfðu þeir þegar verið í Flens-
borgarskóla. Þeir ræddu við
krakkana í tveimur hópum og
gerði Eggert grein fyrir slysatíðni
ogsagðim.a. alvarlegastaðreynd,
að fleiri hefðu látist í umferðar-
slysum á þessari 'öld en í báðum
heimsstyrjöldunum.
í máli Eggerts kom m.a. fram,
að helstu orsakir umferðarslysa á
árinu 1987, samkvæmt skýringum
ökumanna sjálfra, voru of hraður
aksturs, ölvun við akstur, gáleysi,
réttindaleysi, of stutt á milli bifr-
eiða og að forgangur hafi ekki ver-
ið virtur. Hann ræddi sérstaklega
um ölvunaraksturs og sagði að sér
hefði komið á óvart, hversu stór
hluti ölvunaraksturs skrifaðist á
reikning þessa aldurshóps.
Fleiri karlmenn slasast
en kvenmenn
Miðað við aðstæður og þá
Ólafur Emilsson.
8
staðreynd, að á sama tíma og
íbúum hefur fjölgað um 30% hef-
ur bifreiðum fjölgað um 300%,
sagði Eggert, að leita yrði nýrra
leiða til að fækka slysum og nefndi
þá sérstaklega tvö atriði, uppeld-
isleg og tæknileg. Skýringarinnar
á því að mun fleiri karlmenn slas-
ast en kvenmenn sagði hann
áreiðanlega að leita í uppeldinu,
stelpur væru einfaldlega varkárari
en meiri galsi í strákunum. Varð-
andi tæknilegu hliðina sagði hann
æfingabraut til aksturs við ýmis
skilyrði áreiðanlega bráðnauð-
synlega, en hennar væri að vænta
fljótlega.
Eggert sýndi síðan af ntynd-
bandsspólu viðtalsþátt frá Stöð 2
við nokkur ungmenni sem bundin
eru í hjólastólum til lífstíðar
vegna umferðaslysa. Voru viðtöl-
in áhrifarík og höfðu auðsjáan-
lega mikil áhrif á ungmennin.
Ólafur Emilsson fór í sínum
hópi yfir nýju umferðarlögin og
útskýrði ýmsa þætti þeirra. Hann
sagði stærstu breytinguna bílbelta-
skylduna og ökuljósin og gerði
grein fyrir að ökuljós þyrftu að
vera kveikt bæði að aftan og
framan, þannig að „sænsku
ljósin“ nægðu ekki samkvæmt
nýjustu túlkun laganna. Hann
ræddi ennfremur um rétt, eða
réttleysi, aksturs torfærutækja
ýmis konar og var auðheyrt að
áheyrendur þekktu þar vel til.
Hann ræddi einnig um nýju
eyðublöð tryggingarfélaganna og
ráðlagði ungmennunum hvernig
þau skyldu standa að verki,ef þau
lentu í árekstri. Meginreglan er
sú, að ætíð má hringja í lögregl-
una, ef mönnum ber ekki saman
um sekt eða sakleysi. Hann kvað
eyðublaðaform tryggingarfélag-
anna ekki nægilega gott að mörgu
leyti, enda væri það nákvæm eftir-
mynd af norskum eyðublöðum,
en þar byggðist tryggingarkerfið á
öðru grunni. Hér gilti einvörð-
ungu réttur og óréttur og oft mikl-
ir hagsmunir að baki. Þá varaði
hann við bifreiðum með erlend
skrásetningarnúmer, sem hann
sagði oft á tíðum ótryggðar, enn-
fremur sagði hann fólk ætti að
hafa að reglu númer eitt að kalla
til lögreglu, ef ökumenn gætu ekki
sýnt ökuskírteini.
Hægakstursökumaður við
„kennslustörf“
Af spurningum iðnskólanema
mátti greina að þau voru nokkuð
vel að sér í umferðarmálum en
oftar er það samkvæmt þeirra eig-
in frásögn að kapp ræður fremur
en forsjá, þegar slysin verða.
Spurning kom m.a. fram um of
hægan akstur og hver j ar afleiðing-
ar gætu orðið vegna hans. Ólafur
sagði í því tilefni eftirfarandi
sögu: „Við vorum við eftirlit á
Arnarneshæð og sáum bíl aka
mjög hægt eftir Hafnarfjarðar-
veginum og á eftir honum var löng
lest bíla, blikkandi ljósum og
flautandi. Við ákváðum að stoppa
ökumanninn og kanna málið.
Þetta var fullorðinn maður, sem
kvaðst hafa ekið á nákvæmlega
hámarkshraða, 60 km. og sagði
hann okkur ennfremur að með
þessu væri hann að „kenna unga
fólkinu, hvernig ætti að aka“.
Ólafur sagði að auðvitað væri
þetta einnig hættulegt og að nú
hefði lögreglan fyrirmæli um að
ræða einnig við þessa ökumenn og
skýra málin fyrir þeim.
Á fullri ferð á umferðar*
skilti aðeins skðmmu síðar
Nemendurnir sjálflr virtust
ánægðir með fundina með lög-
reglunni. Kenningin um, að
kappið hlaupi oftast með ung-
menni í gönur sannaðist þó
áþreifanlega þennan sama dag. I
hádeginu fór bílfyilir af þessum
sömu nemendum í bæinn ein-
hverra erínda. Ekið var greitt á
heimleið og svo greitt, að þegar
beygja átti af Reykjavíkurvegin-
um inn á stæði Iðnskólans náði
bflstjórínn ekki beygjunni, lenti
upp á akreinaeyju og lagði
umferðarskilti svo til í jörðina.
Aðspurðir sögðu krakkarnir
sem voru í bílnum, að ökumað-
urinn, sem nýbúinn er að fá
bílpróf, hefði verið „manaður"
til að gefa í og taka beygjuna á
fullri ferð, væntanlega með til-
heyrandi hvin í dekkjum.
Reynsluleysi má áreiðanlega
einnig um kenna, en líklega má
þakka fyrir að „aðeins" umferð- Skiltið við útkeyrsluna frá Iðnskólanum eftir að flugferðinni inn á
arskilti varð fyrir bílnum en ekki bílastœðið lauk. Gangandi vegfarandi hefði líklega ekki sloppið án
gangandi vegfarandi. þess að brotna.
Guðný, María Anna, Kristín og Rakelfyrir framan Iðnskólann við Reykjavíkurveg.
Hvaðfannstnemendunum?;
„Þarf að vera meira um þetta“
Þær Guðný, María Anna, Kristín
og Rakel, allar í verklegri hárgreiðslu
í Iðnskólanum voru sammála um að
fundurinn með lögreglunni hefði ver-
ið mjög fróðlegur og kvað Guðný upp
úr um að það þyrfti að vera meira um
slíka fræðslu. Hinar tóku undir það.
Þrjár af þeim stöllum eru komnar
með bílpróf og hafa ekið í allt að níu
ár. Þær sögðu myndbandsmyndina
hafa verið sérstaklega áhrifaríka.
Tvær höfðu séð hana áður en sögðu
hana enn áhrifaríkari í kjölfar
umræðna um þessi mál.
Þær voru einnig sammála um, að
upplýsingarnar um hversu stór hluti
þeirra sem lentu í árekstrum væri
ungt fólk hefði komið illa við þær.
Ennfremur voru þær óhressar með,
hversu stór hluti ölvunaraksturs
skrifaðist á ungt fólk. Ein skaut því
að, hvort fullorðna fólkið slyppi ekki
bara við að vera tekið.
Hef verið hirtur á rúntinum
Bragi Unnsteinsson sagðist hafa
lært sitthvafr af þessu og fannst að
krökkunum veitti kannski ekkert af
að hrist væri upp í kunnáttunni. Hann
kvaðst eiga bíl og hafa ekið í nokkur
ár og aðspurður sagðist hann hafa
lent í að vera „hirtur" fyrir hraðakst-
ur.
Um ástæður þess að ungt fólk æki
of hratt, sem hann viðurkenndi að
hann gerði iðulega, sagðist hann telja
að menn æstu hver annan upp. „Við
spólum hvert annað upp í þetta og
síðan erum við að taka sénsa,“ sagði
hann. „Ég hef verið hirtur nokkrum
sinnum á rúntinum," bætti hann við
og taldi slíkt auðvitað tilgangslaust,
en kannski erfitt að koma í veg fyrir
það.
Bragi Unnsteinsson.
Iðnskólinn fagnar 60 ára afmæli sínu:
Opið hús á laugardag
Opið hús verður í Iðnskólanum hraun. að Reykj avíkurvegi 74 og að Flata-
á laugardag, 16. apríl, í tilefni af Á opna húsinu verður kynning hrauni verður kynning á rafiðn,
60 ára afmæli skólans. A opnu á hárgreiðslu, almennu iðnnámi, málmiðn, málmsuðu, tréiðn og
húsi fer fram kynning á starfsemi tækniteiknun og tölvuteikningu sjálfvirkni.
skólans en hún fer fram að Reykja-
víkurvegi 74 og að Flatahrauni
þar sem verknámsdeildir skólans
eru staðsettar. Opna húsið verður
frá kl. 11 til 17.
Iðnskólinn var stofnaður
haustið 1928. Stofnandi skólans
og fyrsti skólastjóri var Emil
Jónsson þáverandi bæjarverk-
fræðingur, síðar ráðherra.
Núverandi skólastjóri Iðnskólans
er Steinar Steinsson. Iðnskólinn
var fyrst til húsa í barnaskólanum
(Lækjarskóla), síðar í Flensborg-
arskóla, í bókasafnshúsinu við
Mjósund og síðan 1972 að Reykja-
víkurvegi 72 og síðar fluttu verk-
námsdeildir í húsnæðið við Flata-
Búið ai ákveöa dagsetn-
ingar samræmdra prófa
Skólastjórum grunnskólanna hafa borist bréf frá mennta-
málaráðuneytinu um tímasetningar samræmdra prófa í 9.
bekkjum grunnskólanna í vor.
Samræmdu prófin verða haldin sem hér segir:
Mánudaginn 25. apríl: danska (norska, sænska).
Þriðjudaginn 26. apríl: íslenska.
Miðvikudaginn 27. apríl: stærðfræði.
Fimmtudaginn 28. apríl: enska.
AFNFIRÐINGAR ATHUGIÐ
. MÓTTÖKUSTAÐIR ERU
jj v Tréborg, Reykjavíkurvegi 68
'■ Steinar, Strandgötu 37
Söluturninn Miövang
. ATH.I Ekki.lengur í
Bókabúöum Böðvars
I