Fjarðarpósturinn - 22.05.1997, Síða 12
12 Hafnfirskt - Já takk!
Dagskrá
hnúta og splæsingu. Gestum gefst kostur á
að þjálfa handtökin. Opnuð verður sýning
Bjarna Jónssonar á olíumálverkum af
skútum, togurum og árabátum í forsal
safnsins. Sýningin verður uppi í sumar.
Sívertsens-hús er opið frá kl. 13-17 (ókeypis
aðgangur)
Sýningin „Af lífi hafnfirskrar alþýðu" í
Smiðjunni, sýningasal Byggðasafnsins er
opin frá kl. 13:00 - 17:00 (ókeypis aðgangur)
„Sagnaganga" í boði Byggðasafns
Hafnarfjarðar. Fróður Hafnfirðingur vísar
leiðina og fræðir um söguslóðir
verkamanna í Hafnarfirði. Lagt upp
frá Smiðjunni við Strandgötu kl. 14:00 og
endað við Siggubæ.
Hafnfirska víkingasveitin „Rimmugýgur"
kynnir dagskrá Víkingahátíðar við
Upplýsingamiðstöð kl. 14:00 og .
Rimmugýgur leggur einnig til atlögu við
Fjörukrána kl. 15:00
Leiðsöguferð um bæinn. Hafnfirðingum og
gestum gefst kostur á að skoða Hafnarfjörð
með augum ferðlangsins (út um
rútuglugga). Lagt af stað frá
Upplýsingamiðstöð kl. 14:30. Skráning í
Upplýsingamiðstöð.
Ratleikur í næsta nágrenni Hafnarfjarðar í
umsjá Péturs Sigurðssonar. Kort, leiðalýsing
og nánari upplýsingar í Upplýsingamiðstöð
ferðamanna.
Líf og fjör í Upplýsingamiðstöð ferðamanna
að Vesturgötu 8 í Hafnarfirði.
Opið frá kl. 11:00.
• ísland - já, takk!"
• Kynning á ferðahandbókum
og landakortum
• Ferðamálanefnd kynnir
stefnu sína
• Víkingahátíð í sumar
• Ferðast um Internetið
• Kynning á ratleik
Útvarp Hafnarfjörður með beina
útsendingu allan daginn á FM 91.7
Viltu vita meira um dagskrána? r
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Hafnarfirði,.,
Vesturgötu 8,
Sími 565 0661, Fax 5652914
Skokkhópurinn „Bláa kannan"
býður öðrum skokkurum að slást í
hópinn. Lagt upp frá Suðurbæjar-
laug kl. 10:00. Ókeypis sund fyrir
skokkara í boði laugarinnar
• Suðurbæjarlaug býður börnum
ókeypis ferð með rafmagnsbílum á
hlaupabrautinni. Á sunnudögum í
sumar verða rafmagnsbílarnir til afnota
gegn vægu gjaldi ef vel viðrar.
Ávarp bæjarstjóra og formanns
ferðamálanefndar við Upplýsingamiðstöð
ferðamanna að Vesturgötu 8, kl. 11:00
Hugleiðsluferðir um hulduheima
Hafnarfjarðar með Erlu Stefánsdóttur,
sjáanda. Lagt verður af stað frá
Upplýsingamiðstöð kl. 11:15 og 13:30.
Skráning og sala miða í Upplýsingamiðstöð.
Leiðsögumönnum verður boðið í ferð um
Hafnarfjörð undir leiðsögn og í boði
ferðamálanefndar Hafnarfjarðar.
Leiðsögumenn eru beðnir að skrá þátttöku í
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Hafnarfirði.
• Langskip verða með „nútíma víkingabáta" í
höfninni, snaggaralegustu knerri
víkingasögunnar. Gestum gefst kostur á
stuttum ferðum um höfnina og næsta
nágrenni. Börn verða að vera í fylgd
með fullorðnum.
> Gönguferð umhverfis Ástjörn, nýjan
fólkvang Hafnfirðinga, undir leiðsögn
umhverfisnefndar Hafnarfjarðar. Lagt af
stað kl. 11:30 frá afleggjaranum að Ási.
• Handverkshús víkinga, Strandgötu 50,
verður opið frá kl. 12:00 - 17:00. Til sýnis og
sölu sérstakt handverk tengt víkingatíma.
Tjaldbúð á Víðistaðatúni. Skátafélagið
Hraunbúar kynnir ferðaþjónustu sína og
verður með ýmsar uppákomur að hætti
skáta frá kl. 11:30.
Hverabrauðskynning við Veitingahúsið
Kænuna frá kl. 13:00 - 17:00. Nýbakað
hverabrauð frá Krýsuvík og kynning á
þjónustu í Krýsuvík.
• Kaffiborg í Hafnarborg býður ókeypis
kaffi með öllum veitingum.
• Skógræktarfélagið verður með
kynningu á gönguleiðum við gróðrarstöð
félagsins við Kaldárselsveg kl. 12:00 -
16:00.
Sjóminjasafn íslands verður opið frá kl.
13:00 - 17:00. Aðgangur ókeypis. Aldraðir
sjómenn sýna vinnu við lóðir, netabætingu.