Fréttatíminn - 28.10.2011, Qupperneq 17
Bankar eru allir fullir af peningum.
Það veit bara enginn hvað á að gera
við þá.“
Hann bendir á að stjórnvöldum
hafi mistekist að ná fólki á sitt band
þar sem vel gengur. „Fjölmiðlar
gegna lykilhlutverki og eru í eðli
sínu þannig að þeir miðla fréttum
til almennings sem eru oft mjög
neikvæðar,“ segir hann. „En ef Ís
land er borið saman við land eins
og Grikkland eru engin vandamál
hér. Það eru þrengingar. Þær má all
ar meira og minna rekja til neyslu.
Auðvitað eru einhverjir atvinnu
lausir eða tæp sjö prósent sem þýð
ir að 93 prósent eru í vinnu,“ segir
hann og bendir á andstæðuna.
„Mér finnst þó ein vísbending
standa upp úr um að hér sé jákvæð
þróun. Hún er ekki vísindaleg en
byggir á því að Bauhaus auglýsti
eftir fólki um helgina. Ég held að
þeir hafi stúderað efnahagsástandið
hér mjög vel. Svo þetta veiti á gott,“
segir hann.
Gott í kortunum
Samkvæmt nýjum tölum Capacent
búast tæplega 30 prósent við að
tekjur heimilisins lækki en sextán
prósent að þær hækki. Þetta er
stökkbreyting frá því við hrunið en
strax eftir það bjuggust tæplega 60
prósent við því að tekjurnar lækk
uðu. Og dagleg neysla eykst, því nú
eyðir fólk um fimm þúsund krón
um hvern dag í stað fjögur þúsunda
um miðjan maímánuð. Munar um
minna!
Merkilegast er þó að sjá tölur
Capacent um mat landans á því
hvort hann dafnar, er í þrenging
um eða basli. Fjögur hundruð eru
spurð í hverri viku og nú telja 37 af
hundraði sig basla, fjórir af hverjum
hundrað að þeir séu í þrengingum
en sextíu af hundraði að þeir dafni
vel. Það eru sautján fleiri af hverjum
hundrað sem dafna en í júníbyrjun
í fyrra. Þá bösluðu líka 52 af hundr
aði, eða fimmtán fleiri af hverjum
hundrað.
Traust til stofnana og ríkis
stjórnarinnar eykst milli ára en
ekki til stjórnarandstöðunnar. Það
minnkar. Það er niðurstaða nýrr
ar könnunar MMR þar sem 921 úr
tólf þúsund manna úrtaki svaraði
spurningunum. Í fyrra treystu 18
prósent stjórnarandstöðunni en nú
tæp fjórtán. Rúm fjórtán prósent
treysta ríkisstjórninni en í fyrra
aðeins ellefu prósent. Bankakerfið
slær þó öll met, því 75 prósent bera
lítið traust til þess en einungis sex
prósent bera mikið traust til þess.
Enda varð hér hrun.
Já, gamla stjórnmálakarpið dreg
ur okkur niður. „Ég hef stundum
hugsað að ef þingmenn vissu hvern
ig þetta karp virkaði á okkur hin þá
myndu þeir ekki tala svona,“ segir
Þórkatla. „Það er stuðandi þegar
fólk er stóryrt í garð hvers annars
þegar raunverulegur vandi er á
höndum. Það er eins og að standa
á árbakka og byrja að rífast með
rosalegum látum um það hvaða vað
á að nota til að fara yfir, í stað þess
að skipuleggja sig bara; hver er með
langa stöng og getur byrjað að vaða
og feta sig áfram.“ Hún saknar sam
vinnunnar.
Glasið hálffullt eða hálftómt?
„Og ég er alveg viss um að það eru
fleiri sem sakna þess að sjá meiri
samvinnu og þar með meiri ábyrgð
arkennd gagnvart því sem við erum
að gera og þarf að gera.“ Þórkatla
segir ábyrgðarkennd nauðsynlega
í bata. „Algjörlega. Það er nauð
synlegt að axla sínar skyldur mjög
vandlega og vanda sig. En það er
líka nauðsynlegt að tala jákvætt.
Svartsýni og bjartsýni eru ákvarð
anir. Þær byggja ekki á neinum
staðreyndum. Það er aðeins spurn
ing hvort við ákveðum að trúa því
að allt fari á besta veg eða hvort
við ákveðum að trúa því að allt sé
á leiðinni til andskotans. Báðir hafa
jafn rétt fyrir sér – eru með sömu
„Þetta er ekki ímyndun
heldur ímynd. Ef fólk upplif-
ir tóma erfiðleika í kringum
sig verður það ímynd þess
á stöðu samfélagsins. Þótt
það sjálft eigi hugsanlega
ekki í miklum vanda.“
Þórhallur Örn Guðlaugsson.
staðreyndirnar fyrir framan sig, en
lesa mismunandi í þær,“ segir hún.
„Ameríkanar tala um hálffullt glas
og hálftómt glas. Mér finnst það góð
lýsing.“
Þórhallur tekur undir þetta og
segir. „Ágætur maður sagði að þeg
ar leysa á vanda þurfi að lifa í lausn
inni, því þá birtist hún manni. Sé
lifað í vandanum vex hann. Ég tel
að það sé svolítið til í þessu. Hér er
ekki allt að fara til fjandans. Margir
eiga eftir að ganga í gegnum sína
erfiðleika en hér varð engin kata
strófa.“
En efnahagslegar hamfarir eða
ekki; Þórkatla hamrar á að þjóðin
upplifi ástandið einfaldlega mis
munandi. „Sumir eru enn í afneitun
á meðan aðrir eru fastir í reiðinni
og enn aðrir eru komnir það langt
að þeir eru farnir að trúa því að Ís
lendingar og íslensk þjóð eigi von í
framtíðinni. Ég er í þeim hópi. Mér
finnst ég sjá merki um það þótt ég
viti að ástandið er miserfitt á heim
ilum og í fyrirtækjum, vinnuhópum
og svo framvegis. Ég hef heyrt og
lesið að kreppur fyrri tíma hafi haft
svo slæm áhrif á einhverja að fólk
var alltaf svartsýnt, hrætt, kjar
klaust og fljótt að fyllast ragnarak
atilfinningu og telja að allt sé búið.
Það er hættan við áföll. Við verðum
að gæta okkur á því.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
fréttaskýring 17 Helgin 28.-30. október 2011
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
1
1-
23
71
Íslandsbanki er aðalstyrktaraðili Hvað ef? skemmtifræðslu
og býður grunnskólanemum á sýningar í vetur.
Um er að ræða uppistand og skemmtifræðslu fyrir unglinga, foreldra og
kennara um málefni sem ungt fólk stendur frammi fyrir þegar það er að
vaxa úr grasi. Með húmorinn og einlægnina að vopni er opnuð umræða um
raunveruleika ungmenna á Íslandi og fjallað um mál eins og vímuefni,
áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál.
Hvað ef? hefur hlotið fádæma góðar viðtökur og lof áhorfenda og þeirra
sem vinna við forvarnir og fræðslu. Nú þegar hafa á þriðja þúsund
nemendur og foreldrar séð þetta frábæra verk í boði Íslandsbanka. Verkið er
sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
„Ein áhrifamesta forvarnarfræðsla sem
ég hef upplifað. Frábær rússíbani og
nemendur tala um atriðin lengi á eftir.“
Stefán Helgi
„Þetta var geðveikt leikrit ...(:“
Guðrún
„Þetta var mjög skemmtilegt og held að
allavegana ég hafi lært eithvað á þessu :)“
Magdalena
Myndskreyting: Kristján Þór / FÍT / dagsverk.is
„Ein áhrifamesta forvarnarfræðsla
sem ég hef upplifað“