Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 58
Helgin 28.-30. október 201154 tíska
Á bökkum Nílar
Síðustu daga hef ég dvalið við upptök Nílarfljóts í
Austur-Úganda þar sem rafmagnið liggur niðri, eins
og í meirihluta landsins. Ég hef ferðast víða en ég
hef aldrei áður komið til lands þar sem tíminn virðist
hafa stöðvast og engar framfarir orðið.
Stéttskiptig er lítil, eða að minnsta kosti sér maður
lítinn mun á ríkum og fátækum.
Fatnaður er greinilega ekki í forgangi hjá innfædd-
um. Það er margt annað sem er ofar á óskalistanum og menn, konur og börn
klæðast því sem er í boði.
Föt eru föt. Notuð í þeim tilgangi að hylja hold og halda á líkamanum hita.
Ekkert annað. Ætli tíska sé ekki fjarrænt fyrirbæri hérna í Úganda. Bómull-
arfötin er vinsælust og strákarnir hallast meira að 80’s tískunni í útvíðu bux-
unum sínum. Konurnar eru hinsvegar eins og maður ímyndaði sér Afríku;
litríkur fatnaður og höfuðklútar í stíl.
Konurnar gegna ekki jafn áberandi hlutverki í samfélaginu eins og karlarnir,
en þær sjá um heimilið og börnin.
Á sunnudögum þegar karlinn er heima fara þær niður að Níl og berja og
slá fatnað heimilisins. Þessu varð ég vitni að þegar ég baðaði mig í Níl með
tveggja ára innfæddri vinkonu minni á sunnudaginn.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Skandinavísk
tíska í uppáhaldi
Föstudagur
Skór: Gs skór
Samfestingur: Topshop
Peysa: Topshop
Jóna Vestfjörð Hannesdóttir er tutt-
ugu ára og stundar nám í lögfræði við
Háskóla Íslands. Samhliða náminu vinnur
hún í skóbúðinni Gs Skór.
„Ég myndi segja að stíllinn minn væri
mjög einfaldur og í samræmi við skandi-
navíska tísku. Fötin mín koma helst þaðan
og eru verslanirnar Gina Tricot og H&M í
miklu uppáhaldi. Hérna heima versla ég
mikið í Topshop, Zöru og Gs Skóm,
þar sem ég er að vinna, og nýti einnig
mikið tæknina og versla á netinu eins og á
Nasy Gal og Asos.
Innblástur tískunnar kemur allstaðar frá
en er ég þó einstaklega dugleg að skoða
blogg. Og þá sérstaklega skandinavísk
blogg þar sem Elin Kling og Kenza eru í
fararbroddi. Mary-Kate Olsen veitir mér
líka mikinn innblástur, hún er alltaf töff og
skapar sér sinn eigin stíl.“
Miðvikudagur
Skór: Aldo
Buxur: Sautján
Bolur: Urban
Outfitters
Peysa: Topshop
Fimmtudagur
Skór: Gs Skór
Pils: H&M
Skyrta: Topshop
Hálsmen: Spúútnik
Hönnuðir gefa út bækur
Helsta tískutrendið hjá frægum hönnuðum og tískuhúsum
um þessar mundir er að gefa út tískubók um vörumerkið
í tilefni afmælis þess. Ítalski tískurisinn Gucci tilkynnti
í vikunni að bók væri væntanleg í tilefni 90 ára afmæli
fyrirtækisins og verður þetta vígaleg bók, skrifuð af Frida
Giannini. Bókin fjallar
helst um starfsævi
fyrirtækisins og einnig
um helstu og langlífustu
vörurnar.
Aðrir hönnuðir sem gefa
út bækur á þessu ári
eru Christian Loubo-
utin sem fagnar fimmtán
ára afmæli sínu og
Karl Lagerfeld, helsti
hönnuðurinn hjá Chanel.
-kp
Nicki Minaj
hannar
naglalökk
Hin flippaða og litglaða söng-
kona, Nicki Minaj, gerði
samning við naglalakka-
fyrirtækið OPI á dögunum
og mun hún hanna sína
eigin línu. Línan mun saman-
standa af sex ólíkum nagla-
lökkum og fjórum litlum
naglalakkavökvum. Margir
hafa spáð þessu samstarfi
enda er hún mikill aðdáandi
naglalakka. Samkvæmt tals-
manni hennar verður línan
væntanleg Vestanhafs í lok janúar á næsta ári. -kp
Bar Rafaeli hannar
nýja fatalínu
Ofurfyrirsætan Bar Rafaeli fetar nú
í fótspor þeirra stjarna sem gera
fatahönnun að aukastarfi. Hún vinnur
nú hún hörðum höndum að nýju fata-
línunni Undeez þar sem undirföt,
sokkar og stuttermabolir eru fáanleg
fyrir bæði kynin. Fatnaðurinn mun
fyrst um sinn vera seldur á vefsíðunni
undeez.com og segir hún í viðtali
við tímaritið Elle að hún hafi fengið
frábært fólk í lið með sér sem gerði
draum sinn að veruleika.
Síðan verður frábruðgin öðrum
vefverslunum en neytendur munu
ekki borga í hvert sinn sem verlsað er,
heldur fá þeir sendan reikning heim
fyrsta hvers mánðars. -kp
Mánudagur
Skór: Gs Skór
Sokkabuxur:
Mark s & spencer
Pils: H&M
Peysa: American
Apperal
Þriðjudagur
Skór: Urban
Outfitters
Stuttbuxur:
Nasty Gal
Peysa: Karakter
Hálsmen: For-
ever21
NÝ SENDING FRÁ