Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 44
Annað hefti Ritsins 2011 er komið út. Í því eru ljóð í forgrunni og lesendur þeirra – greining og miðlun ljóða. Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson fjalla um þýðingu Helga Hálfdanarsonar og sex annarra á „Hrafninum“ eftir Edgar Allan Poe en þýðing Helga er frumbirt í heftinu. Greinin er einkum samanburður á frumtexta „Hrafnsins“ og íslenskum gerðum hans í þýðingarfræðilegu, brag- fræði- og bókmenntasögulegu ljósi. Bergljót Kristjánsdóttir les í nýja ljóðabók Antons Helga Jónssonar út frá kenningum hugrænnar bókmenntafræði. Guðni Elísson greinir orðalista í skáldskap Sjón sem sundra hefðbundnum skilningi og væntingum. Helga Kress leggst í handrita- og samanburðarrannsóknir í bragfræði- og bókmenntasögulegri greiningu á sonnettu Jónasar Hallgríms- sonar „Ég bið að heilsa“. Niðurstöður Helgu eru líklegar til að vekja umræður. Sveinn Yngvi Egilsson les í ljóð Huldu með aðferðum vistrýninnar sem fær sérstaka kynningu í þýddri grein eftir enska fræði- manninn Jonathan Bate aftast í heftinu.Síðasta þemagreinin eftir Dagnýju Kristjánsdóttur er svo bókmenntasöguleg, hugmyndafræðileg og öðrum þræði feminísk samanburðarrannsókn á útgáfu skóla- ljóða hérlendis og erlendis. Þýðing á grein þýska heimspekingsins Theodors W. Adornos, „Ræða um ljóð og samfélag“, tengist einnig ljóðaþemanu. Í henni má sjá skýrt dæmi um heimspekilega ígrundaða ljóðgreiningu höfundarins. Og síðast en ekki síst er að þessu sinni ein aðsend grein í heftinu en það er ítarleg úttekt Hjalta Hugasonar á inntaki og merkingu trúmálabálks stjórnarskrárinnar ásamt breytingar- tillögum. Ritstjórar þessa heftis eru þau Ásdís R. Magnúsdóttir og Þröstur Helgason. -pbb Ritið komið á góðum tíma ljóðsins 40 bækur Helgin 28.-30. október 2011  Bókadómur meistaraverkið og fleiri sögur Í vikunni komu út austan hafs og vestan enskar þýðingar á þriggja binda bálki Murakami, IQ84. Bindin þrjú komu út í Japan í vor sem leið og sættu mikilli forvitni enda er sagan fyrsta verk hans um fimm ára skeið. Stutt brot birtist vestan hafs nokkru áður og þar sagði frá borg kattanna sem ýmsir töldu að væri Reykjavík. Murakami var talinn líklegur til að fá Nóbels- verðlaunin í haust en af því varð ekki. Nýja sagan rekur sérstæðan þráð og virðist vera blandað form. Vænta má eintaka af henni hingað til lands fljótlega því Murakami á sér stóran aðdáendahóp hér á landi. Bjartsmenn verjast aftur allra frétta hvort farið verður að þýða bókina enda þýðendur hér á landi úr japönsku vandfundnir. -pbb Þriggja binda bálkur Murakami Hollráð Hugos eftir Hugo Þórisson sálfræðing sest í efsta sæti fræðibókalista Eymundssonar og í þriðja sætið á aðallistanum. Í bókinni deilir Hugo yfir 30 ára reynslu sinni af vinnu með börnum og foreldrum. Þörf Hollráð  meistaraverkið og fleiri sögur Ólafur Gunnarsson Sendir frá sér kjarnyrtar og hugs- aðar smásögur. JPV 186 bls. 2011. Ólafur Gunnarsson gaf út sína fyrstu texta 1970 en í hartnær tvo áratugi komu síðan frá honum styttri og meðallangar skáldsög- ur, það var ekki fyrr en 1992 að hann fór að senda frá sér stórar skáldsögur sem allar áttu það sameiginlegt að hann lýsti fjölskyld- um á tímum erfiðleika. Ef frá er talin Öxin og jörðin, gerðust þær á þeim tíma í sögu lýð- veldisins sem gjarna er kallaður eftirstríðs- árin. Svo komu Dimmar rósir sem gerðist á sjöunda áratugnum og Höfuðlausn sem hann sviðsetti á öðrum áratug síðustu aldar. Óli er sér á parti í höfundahópnum ís- lenska, hann tilheyrir raunar aldurslega þeim Óla Hauk og kó, listaskáldahópnum frekar en hinum yngri sem á eftir komu, hann var lengi að finna fjölina sína en þegar hann var kominn á skrið með bálknum sem hófst á Tröllakirkju var ljóst að hann væri framtíðarhöfundur. Viðfangsefni hans eru stór, trúin gnæfir að baki stórum siðferðileg- um efnum, sviðsetningin er þaulhugsuð í heim sem hann þekkir flestum öðrum höfundum betur nú um stundir: miðborg Reykjavíkur á tíma skömmtunar og viðreisnar. Nú sendir hann frá sér smásagnasafn, dægilega lesningu með skýrum persónulýsingum, víða kát- legum atburðum fólks af öllum stéttum og standi, tíminn er frá stríðslokunum, sumar sögurnar lýsa beinlínis aðgerðum ameríska hersins við að losa sig við góss sem hann kærði sig ekki um að lenti í höndum gráðugrar þjóðar sem hafði aldrei fyrr lifað ólguár stríðs með her í landinu. Ólafur notar þannig atvik tengd brottför hersins í minnst tveimur sögum, önnur kímileg saga af nábúakryti og hinu forníslenska sporti, deilum um umgang- srétt, en í hinu tilvikinu verður förgun í vatn bak- grunnur heiftarlegra deilna milli bræðra. Það er engu líkara en Ólafur eigi auðveldara með að finna kímileg atvik til að slá um stuttri sögu en lesandi minnist úr stærri bókum hans. Frásögnin er að vanda hefðbundin, streymið jafnt og þétt, orðtakið þroskamikið og nákvæmt í lýsingum á persónum og aðstæðum þeirra. Átakasvæðin eru oftar en ekki í kringum kvennamál, samtölin sannverðug og laus við hástemmt blaður sem svo margir leið- ast út í : hér eru kjarnyrtar og hugsaðar smásögur á ferð. -pbb Sögur eftir stríð og af okkar dögum  Bókadómur Hjarta mannsins eftir jón kalman stefánsson H ið íslenska umhverfi sveitar-ómagans er aðeins afsökun, til-efni til að lýsa aðstöðu skáldsins í baráttu nútímans ( ...) Það mannlega er alþjóðlegt,“ sagði HKL í viðtali við Þjóðviljann haustið 1937. Í þriðja, síðasta og stærsta bindi bálks Jóns Kalman um Djúpið og byggðirnar þar í kring við alda- mót heldur hann áfram sögu stráksins þar sem hann er kominn til byggða eftir háskaför í síðustu veðrum vetrarins. Á tæplega 400 síðum lokar hann sögu- hringnum með dramatískum hætti. Fjögur ár eru liðin frá því fyrsti parturinn birtist, róðurinn og förin yfir fjöllin og fyrsta kynning á þorpinu. Í þessum síð- asta hluta verður vettvangur þorpsins aft- ur þungamiðja í frásögninni þótt náttúran umkringi söguhetjuna, vitund hennar og verund sem fyrr. Fyrsta athugasemd þessa lesanda er sú að mikið vanti á upp- rifjun á því persónugalleríi sem fyllir sög- una á ný. Lesanda er ekki lengur í minni hvaða fólk fer um síður sögunnar, hann verður áttavilltur, tapar sjónum á megin- efni textans á mörgum stöðum í þrálátri upprifjun á fyrri frásögnum af sambönd- um og stöðu nær allra sem koma á ný við sögu. Það er bagalegur galli. Við honum er aðeins eitt ráð: hefja lestur bálksins alls á ný og lesa hann í striklotu. Þessi ágalli smitar út frá sér: hér er spunninn þéttur og marglitur vefur af beinum lýsingum á aðstæðum sálar sem þráir annað líf í sögum og ljóðum, er ofur- seld stéttskiptu samfélagi sem er grimmt og harðneskjulegt. Fátæktin skapar öllum þröngan kost, lítið val. Þetta eru öreigabókmenntir og því er vitnað til upp- hafsorðanna að hér takast á fegurðarþrá skáldskaparins og örreytislíf á opnum bátum og strits á fiskreitunum. Hvata- lífið tekur svo að ólga er líður á sumarið sem sagan lýsir, lokaþáttur bálksins fellur í nokkra parta sem virðast eftir á að hyggja vera nokkuð ósamstæðir sem ekki verður metið til fulls fyrr en allur textinn á nærri þúsund síðum verður lesinn aftur og aftur. Því þess þarf: sagan er flókin og Jón dregur saman svo margt í samslungn- um og fallegum stílbrigðum sínum. Hann beitir ljóðrænum stemmningum óspart og leggst í tilvistarlegar pælingar svo víða að lesandi hneigist til að spyrja hvort eng- inn hafi fengist til að stytta textann og klippa úr honum málalengingar. Svo má á móti bera að í munni er frásögnin hátt- bundin og öðlast við það tregafullan blæ. Aftur af upphafinu: fegurðarþráin (sem leiðir um síðir til þess að strákurinn tekur að pára) versus harðræði hins líkamlega erfiðis er gamalt þema: þú verður blindur ef þú lest svona mikið sagði ömmusystir mín. Er það raunin? Er flóttinn í huliðs- heima bókmenntanna ekki einhverskon- ar blinda. Þegar kvikmyndasöguneminn hafði heilan vetur setið í myrkum sal si- nemateksins og gleypt í sig allt sem hann hafði ekki séð í henni Reykjavík af bestu ræmum heimsins, þá staulaðist hann út í vorið og birtan gerði hann blindan og þegar hann loks sá, blasti við honum að heil árstíð hafði þotið hjá án þess hann vissi af því, kona, börn, vinir, lífið. Í vikunni áður en Hjarta mannsins kom út hófst mikil pressa: þráin eftir hinum mikilfenglega höfundi var svo sterk í vinahópnum (hann fær íslensku bókmenntaverðlaunin, sagði einn) og er bókin var komin út vitnaði útgefand- inn til orða útlendings sem spáði Jóni Nóbelnum. Í svoleiðis selskap passar illa sá sem skipar sér ekki í lofkórinn athugasemdalaust. Hjarta mannsins er mikilfenglegt verk en verður ekki skilið nema í samhengi fyrri bókanna. Það er erfitt lesanda, kröfuhart á nákvæman hægan lestur en eykur vel á frægð Jóns Kalman og virðingu. Undrar okkur ekki sem höfum lengi talið hann styrka stoð í íslenskum sagnaskáldskap. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Eftir harðan vetur kemur sumar Jón Kalman Hjarta mannsins er verk sem er erfitt lesanda, kröfuhart á nákvæman hægan lestur en eykur vel á frægð höfundar og virðingu.  Hjarta mannsins Jón Kalman Stefánsson Bjartur, 394 bls. 2011. Jón Kalman Stefánsson lokar þríleiknum með dramatískum hætti. Þetta er mikilfenglegt verk en verður ekki skilið nema í samhengi fyrri bókanna. Ólafur Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.