Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 28.10.2011, Blaðsíða 34
Úraránið upplýst Lögreglan í Reykjavík fann úrin sem rænt var úr verslun Michelsen á Laugavegi í síðustu viku og handtók einn mann vegna ránsins. Þrír aðrir sem grunaðir eru um aðild að því komust úr landi en eru eftirlýstir. Borin hafa verið kennsl á þá alla. Þrír vopnaðir menn ruddust inn í verslunina og létu greipar sópa. Þeir komust undan með þýfið, Rolex-, Tudor- og Michelsen-úr að andvirði 50-70 milljóna króna, en þau hafa nú verið endurheimt. Talið er að mennirnir, Pólverjar, hafi komið hingað gagngert til að fremja ránið. Ekki er vitað til þess að þeir hafi komið hingað áður. Páll áfram bæjarritari Páll Magnússon ákvað að taka ekki við starfi forstjóra Bankasýslu ríkisins. Ákvörðun hans kom í kjölfar þess að stjórn stofnunarinnar baðst lausnar. Páll dró uppsögn sína á starfi bæjar- ritara í Kópavogi til baka. Bæjarstjórn Kópavogs harmaði þá umræðu sem hófst eftir ráðningu Páls í forstjórastarfið og samþykkti einróma traustsyfirlýsingu þar sem sagði m.a.: „Bæjarstjórn ber traust til starfsmanns síns og veit að hann mun starfa fyrir bæjarfélagið af heilindum hér eftir sem hingað til.“ Deilur vegna Pennans Verslunareigendur og húsgagnaframleið- endur, sem eiga í samkeppni við Pennann, segja leikreglur á samkeppnismarkaði þverbrotnar. Það sé ómögulegt að keppa við fyrirtæki sem bankinn dæli peningum í. Hópurinn birti blaðaauglýsingu í vikunni þar sem þess var krafist að leikreglur á samkeppnismarkaði væru virtar. Bent var á að skilanefnd Kaupþings hefði tapað um átta milljörðum króna á gjaldþroti gamla Pennans og að félag í eigu Arion banka hefði á tveimur árum tapað ríflega einum milljarði króna á rekstrinum. Samt hefði Arion banki aukið hlutafé Pennans um 200 milljónir króna um síðustu mánaðamót. Forstjóri Pennans svaraði því til að engir peningar frá Arion banka hefðu farið í rekstur félagsins. Ísland brjálæðislegast Ísland var brjálæðislegast af öllu brjáluðu, þegar kom að bankamálum, sagði hinn heimsþekkti hagfræðingur og nóbels- verðlaunahafi, Paul Krugman, á ráðstefnu í Hörpu í gær. Erindi Krugmans nefndist A Song of Ice and Ire: Iceland in context. Krugman sagði, að því er fram kom á Vísi, að skuldir væru vandamál á Íslandi. Einkum hjá heimilum og fyrirtækjum. Erfitt væri að leysa málin öðruvísi en að borga þær til baka. Krugman sagði jafnframt að Ísland væri ekki í eins slæmri stöðu og margir héldu. Atvinnuleysi væri góður samanburðarmælikvarði milli landa. Þar stæði Ísland vel að vígi. Slæm vika fyrir Pál Magnússon, bæjarritara Kópavogs Góð vika fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, starfsmann Sameinuðu þjóðanna 12.052 Kílómetrar er fjarlægðin milli Reykjavíkur og Talcahuano í Chile þar sem Þór, nýjasta varðskip Landhelgisgæsl- unnar, var smíðað. Siglingin til Íslands tók tæpan mánuð. 31.000 Fuglar er rjúpnaveiðikvóti ársins sem er ríflega helmingi færri fuglar en í fyrra. Veiðitímabililið er alls fjórar helgar, fyrsta helgin er fram undan. 1.650 Krónur fær sá til baka frá veðmálafyrirtækinu Betsson þegar lagðar eru undir 1.000 krónur að Hanna Birna Kristjánsdóttir bjóði sig fram til formanns Sjálfstæðis- flokksins. Krónurnar verða hins vegar 2.650 ef veðmálið er á hinn veginn, að hún bjóði sig ekki fram. 2 Mörk sem landsliðsmaður- inn Alfreð Finn- bogason skoraði í 3-1 sigri Lokeren í belgísku bikarkeppn- inni eftir að hann kom af vara- manna- bekknum á 58. mínútu. Komin til Kabúl Gamla formannatrygging stjórnmálaflokkanna hljóðaði upp á feitt starf hjá hinu íslenska ríki þegar stjórnmálaferli fyrrum formanna lauk. Þessi óskrifaða samtryggingarregla stjórnmálaflokkanna ríghélt í mörg ár. Nokkur dæmi: Svavar Gestsson varð sendiherra, Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson líka, Steingrímur Hermannsson og Davíð Oddsson tylltu sér í Seðlabankann og svo fengu fyrrum varafor- menn í náðinni líka fín störf. Friðrik Sophusson varð forstjóri Landsvirkjunar og Guðmundur Árni Stefánsson varð sendiherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gaf þessari leiðu hefð langt nef í vikunni þegar hún kom sér fyrir í Kabúl þar sem sinnir hún stjórnand- astarfi fyrir UN Women, undirstofnun Sam- einuðu þjóðanna. Er það vel af sér vikið. Vondur mánuður, verri vika Þetta var vond vika fyrir Pál Magnússon sem stjórn Bankasýslu ríkisins var búin að velja sem forstjóra stofnunarinnar. Jafn- vel enn verri en sú síðasta sem var þó afleit fyrir hans eins og reyndar vikurnar tvær þar á undan líka. Í tæplega einn mánuð hefur Páll mátt þola látlausar glósur um að vera spillingarpési og einn af arkitektum helmingaskipta-einka-vina-væðingar gömlu ríkisbankanna, sem allt upplýst fólk veit þó að Davíð og Halldór teiknuðu upp eftir sínum smekk. Sjálfur var Páll bara starfsmaður á plani og var flestum gleymdur áður en hann var svo óheppinn að sækja um hjá Bankasýslunni. Það sem gerir þessa viku hins vegar þá verstu er að Páll ákvað að þiggja ekki forstjórastarfið en situr eftir með ómaklega flekkað mannorð. 67,5 vikan í tölum Hrunið í Hörpu Á fimmtudag fór fram einhvers konar útskriftarveisla íslenskra rík- isins úr fjármálanámi Alþjóða gjald- eyrissjóðsins í fundarsal Hörpu. Þar komu saman spekingar úr ýmsum áttum og ræddu efnahagshrunið og eftirleikinn á ráðstefnu ríksins og AGS. Willem Buiter, Paul Krugman, Martin Wolf voru á meðal þeirra sem tóku til máls og náðu eyrum Facebook-notenda. Brynjólfur Þór Guðmundsson Tek til og hlusta á ráðstefnu í Hörpu. Jebb svona fagnar maður frívöktum. Einar Kárason Þessi Martin Wolf, sem lofar okkur gullöld með krónu og utan ESB – var hann ekki hér líka 2007? Eða var það einhver annar sem bara sagði það sama? Erla Hlynsdóttir „Leita að sofandi gestum. Ég sé þrjá. Af hverju eru þeir sofandi? Er- indi Franeks, um smáatriðin í vinnu AGS, kemur til greina.“ VísisTwittið frá AGS-fundinum. Horfið á þetta, þið þarna fólk! Birgitta Jónsdottir Buiter sagði m.a. að 110% leiðin væri geðveiki og að við ættum að losa okkur við verðtrygginguna... fannst eins og aðstoðarmaður Jóhönnu hefði ekki heyrt þann hluta ræðunnar. Ómar R. Valdimarsson Krugman virðist vera að íhuga sjálfsmorð á meðan hann hlustar á ræða Gylfa Arnbjörnssonar frá ASÍ... Flugorrusta í fjölmiðlum Litlir kærleikar eru með þeim fyrrverandi vopnabræðrum hjá Iceland Express, Pálma Haraldssyni og Matthíasi Imsland, eftir að sá síðarnefndi gekk til liðs við Skúla Mogensen og nýja flugfélagið WOW Air. Skeytin ganga á milli manna í fjölmiðlum og fólkið á Facebook hristir hausinn. Illugi Jökulsson Rosalega hef ég mikinn áhuga á deilum Pálma Haraldssonar og Matthíasar Imsland. Magnús E. Finnsson Einhver erlendur auðkýfingur lét hafa það eftir sér ekki alls fyrir löngu að hann fjárfesti aldrei í flugfélögum því það væri eitt það vitlausasta sem menn gera við peninga sína. Gildir líklega ekki á Íslandi! Heiðar Ingi Svansson Skáld dagsins er......Pálmi Haralds- son. Aðalsteinn Kjartansson Skúli er með forgangsröðunina á hreinu. Alltaf, alltaf, alltaf að byrja á flugfreyjubúningunum…! Útlegðin góða í kabúl Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi utanríkisráðherra, hefur verið ráðin yfirmaður UN Women í Kabúl í Afganistan. Laun hennar komust í umræðuna í vikunni og sem fyrr sýnist hverjum sitt á Facebook. Heiða B. Heiðars Mér finnst ágætis skipti að hafa Ingibjörgu Sólrúnu í Afganistan fyrst hún þurfti ekki að mæta fyrir Landsdómi. Skítt með það þó hún fái nokkrar milljónir á mánuði.... hún kaupir aldrei mannorð sitt og trúverðugleika fyrir það drasl. Þráinn Bertelsson Hún ætti að mínu mati að vera fyrir Landsdómi! Íris Björg Kristjánsdóttir Fólk fær ekki svona stöðu í gegnum íslenska spillingarpólitík. Svo valdamikil erum við ekki. Ráðningarferlin hjá UN eru ekkert í líkingu við ráðningarferlin á Íslandi. Þau eru löng og erfið. Kannski í leiðinni að benda á að þetta er ekki þægindastarf og skrifstofurnar í Kabúl eru á hættusvæði. Hvernig væri að dást að henni að treysta sér í þessar aðstæður, og hætta á þessu launa/spillingarplani? í landi óttans og efans Samkvæmt könnun sem birt var í vikunni er traust almennings á ýmsum stoðum samfélagsins síst að aukast frá hruni. Færri treysta stjórnarandstöðunni en ríkisstjórn- inni sem hlýtur að teljast fáheyrt og ESB kemur nokkuð sterkt inn. Sveinn Andri Sveinsson ESB nýtur einnig meira trausts meðal almennings en íslenskir fjölmiðlar, Seðlabankinn og lífeyris- sjóðirnir!! Jónas Kristjansson Minna traust er á stjórnarandstöð- unni en ríkisstjórninni, en meira traust á Evrópusambandinu. HeituStu kolin á Tekið var á móti Þór, nýju og glæsilegu varðskipi Íslendinga, með viðhöfn á Miðbakka Reykjavíkurhafnar í gær. Skipið var smíðað í Chile og tók heimsiglingin um mánuð. Í fyrradag kom skipið við í Vestmannaeyjahöfn. Með komu þess verða kaflaskipti í öryggis- málum sjómanna og vöktun íslenska hafsvæðisins, hvort sem er á sviði auðlindagæslu, fiskveiðieftirlits, löggæslu, leitar eða björgunar. Varðskipið Þór er 93,80 metrar að lengd, 16 metra breitt og með 120 tonna dráttargetu. Sigurður Steinar Ketilsson skipherra og áhöfn hans sigldu skipinu heim. Ljósmynd Hari IÐAN - fræðslusetur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík, sími: 590 6400, bréfsími: 590 6401, netfang: idan@idan.is Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í desember, janúar og febrúar ef næg þátttaka fæst: Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn, og kjötiðn í desember. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Í húsasmíði og pípulögnum í desember. Sveinspróf í málaraiðn í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember. Í málmiðngreinum í janúar. Umsóknarfrestur til 1. desember. Í snyrtigreinum í janúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Í bílgreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Í hönnunar- og handverksgreinum í janúar/febrúar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.. Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2011. Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, veffang: www.idan.is og á skrifstofunni. Dagsetningar og nánari upplýsingar um prófin er að finna á www.idan.is. Mælist stuðningurinn við Steingrím J. Sigfússon meðal stuðningsmanna VG, samkvæmt skoð- anakönnun sem MMR gerði fyrir Viðskiptablaðið. Enginn annar íslenskur stjórnmálaforingi nýtur viðlíka hylli innan eigin flokks. 34 fréttir vikunnar Helgin 21.-23. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.