Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 24
V
issulega hefur þetta
áhrif á mann. Ég
held að það sé óhjá-
kvæmilegt vegna
þess að verkið fjallar
um hrikalega hluti sem eru í gangi
út um allan heim og í allt í kringum
okkur,“ segir Arnbjörg. „Eftir að ég
byrjaði að vinna við Hreinsun gerði
ég mér enn betur grein fyrir því
hversu mikil og djúpstæð áhrif allur
þessi hryllingur, bæði það sem teng-
ist verkinu, mansal og kynferðisof-
beldi, og svo stríð og aðrar hörm-
ungar, hefur á manneskjuna. Og í
raun finnst mér ég næstum hroka-
full að vera að tala um þetta svona -
maður finnur svo sterkt hvað maður
er eitthvað vanmáttugur þegar mað-
ur hugsar út í hvað stór hluti mann-
kyns býr við og þarf að þola miklar
hörmungar.“
Vinir mínir hafa bent mér á að það
sé svolítið sérstakt að fara í vinn-
una til þess að láta lumbra á sér og
grenja úr sér augun allan daginn og
fara síðan brosandi að sækja barnið
á leikskólann og elda kvöldmatinn.
Auðvitað tekur maður þetta að ein-
hverju leyti inn á sig enda er þetta
ekkert grín en ég er ekkert að vor-
kenna mér yfir þessu starfi. Þetta
er svona með svo margt þar sem
fólk fæst við hræðilega hluti, lækna
og lögreglumenn til dæmis, að fólk
verður að geta aðgreint sig frá starf-
inu og lifa sínu lífi áfram.“
Verkið fjallar líka um leið mann-
eskjunnar til þess að komast í gegn-
um svona hrikalegar hörmungar
og finna sjálfa sig aftur, sættast við
sjálfa sig og verða betri manneskja.
Sú barátta einstaklingsins getur orð-
ið erfið þegar hann lifir í samfélagi
þar sem óttinn hefur tekið öll völd
með tilheyrandi þöggun og kúgun.
Þetta er svo fjarri manni en samt
ekki og við vitum að þetta er í gangi
á Íslandi. Þetta er rosalegur hryll-
ingur hjá þeim stúlkum, börnum og
körlum líka sem lenda í þessu harð-
asta kynlífsofbeldi og er kannski
haldið í gíslingu og kynlífsþrældómi
árum saman.
Arnbjörg segir hópinn sem stend-
ur að Hreinsun hafa kafað ofan í
heim mansals og kynnt sér skugga-
hliðar Eystrasaltslandanna í mikill
forvinnu þar sem þau skoðuðu heim-
ildarmyndir og lásu sér til um við-
fangsefnið. „Við veltum þessu mikið
fyrir okkur og þá ekki síst því hvern-
ig kynferðislegt ofbeldi hefur verið
fylgifiskur stríða í gegnum aldrirnar.
Í nútímanum er svo hreinlega verið
að selja ungar stúlkur í vændi. Þeg-
ar maður las sér til um þetta fylltist
maður svo miklum hryllingi að ég
á erfitt með að tala um þetta,“ segir
Arnbjörg og bætir við að Sofi Oks-
anen gangi mjög nærri áhorfendum í
verki sínu og nái örugglega að hreyfa
betur við þeim með því að hlífa þeim
ekki við óhugnaðinum. „Þetta er of-
boðslega sjokkerandi verk og bókin
er rosalega vel skrifuð. Hún skrifaði
leikritið líka á undan skáldsögunni
sem er sérstakt. “
Hreinsun er þó ekki aðeins verk
um ofbeldi og þann hrylling sem
fórnarlömb mansals og kynferðis-
ofbeldi upplifa. „Manneskjan er
svo margbrotin og lífið líka og við
bregðumst við sömu aðstæðum og
mismunandi aðstæðum á svo ólíkan
hátt. Hvort sem það er gleði eða sorg
og þessi þáttur í eðli fólks er meðal
þess sem Oksanen er að fjalla um í
Hreinsun. Fólk er svo óútreiknan-
legt og verkið fjallar líka um ástina
og leiðina til þess að lifa af og komast
nær sjálfum sér.
Þetta var ofsalega djúp vinna og
hópurinn er frábær enda verður það
að vera þegar fengist er við svona
krefjandi verk. Það hefur ýmislegt
gengið á á æfingum eins og við er
að búast þegar svona brjálaðar til-
finningabombur vinna saman í svona
verki. Að leika í verki eins og Hreins-
un er gerólíkt því að leika í farsa eða
hressilegum söngleik og það er
skrítið að fara í vinnuna og rífa úr
sér hjartað í dramanu allan daginn.
En vonandi skilar þetta sér einhvers
staðar í einhverju en það er hvers og
eins að dæma um það.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Það er skrít-
ið að fara
í vinnuna
og rífa úr
sér hjartað
í dramanu
allan daginn.
Margrét Helga Jóhannsdóttir leikur hina rosknu Aliide, sem hefur mátt þola ýmis-
legt í gegnum tíðina, en hún skýtur skjólshúsi yfir Zöru, sem Arnbjörg Hlíf Valsdóttir
leikur.
Gæti vakið óhug hjá viðkvæmum
Leikritið Hreinsun, eftir Sofi Oksanen í leikstjórn Stefáns Jónssonar, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
á fimmtudagskvöld. Sagan er nærgöngul og í verkinu eru atriði sem geta vakið óhug- og eiga að
gera það – þar sem Oksanen opnar áhorfendum sýn inn í viðbjóðslegan heim mansals og kynlífs-
þrælkunar. Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikur annað aðalhlutverkið í Hreinsun, stúlkuna Zöru sem er
á flótta undan mansalsmafíósum sem hafa haldið henni í ánauð.
Arnbjörg Hlíf segist
eiga erfitt með að
tala um þann hrylling
sem fórnarlömb
mansals upplifi og
hefur upplifað miklar
tilfinningasveiflur á
æfingum með hópnum
sem frumsýndi
Hreinsun á fimmtu-
daginn. Ljósmynd/Hari
Sofi Oksanen hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Hreins-
un í fyrra. Hreinsun var upphaflega leikrit
sem sýnt var við miklar vinsældir í Finnlandi
árið 2007. Oskanen ákvað síðan í framhald-
inu að skrifa skáldsögu upp úr verkinu, með-
al annars til þess að leyfa fleiri röddum að fá
að heyrast í þessari átakanlegu örlagasögu
tveggja kvenna og heillar þjóðar.
Faðir Oksanen er Finni en móðir hennar
er eistnesk og með verkinu vildi Oksanen
vekja athygli á sögu þjóðar móður sinnar
á meðan Eistar voru undir ægivaldi Sovét-
ríkjanna.
Sagan gerist í Eistlandi og hefst árið 1992,
ári eftir að þjóðin lýsti yfir sjálfstæði. Aliide
er tæplega sjötug kona sem skýtur skjóls-
húsi yfir Zöru, unga stúlku sem hún finnur
illa á sig komna við lítinn bóndabæ. Þrátt
fyrir aldursmuninn sem á konunum er og
þá breyttu heimsmynd sem blasir við þjóð
þeirra kemur á daginn að margt er líkt með
sögum þeirra.
Saga Zöru kallast því á við samtímaum-
ræðuna um mansal en þegar hrikti í stoð-
um samfélagsins urðu Eystrasaltslöndin að
gróðrarstíu mannsals og hvítrar þrælasölu.
Zara er á flótta undan hættulegum glæpa-
mönnum sem hafa haldið henni í hlekkjum
mansals og vændis.
Aliide gekk í gegnum hörmungar á sínum
yngri árum þegar landið var í járngreipum
Sovétsins. Með sjálfstæðinu vaknaði von um
betri heim en Zara er lifandi sönnun þess
að þegar einn kúgari hverfur á brott tekur
annar við og rússneska mafían var fljótt að
fylla skarðið sem kremlarkúgararnir skildu
eftir sig.
Hreinsun kom út hjá Forlaginu í fyrra og
vakti bæði mikla athygli og umtal. Páll Bald-
vin Baldvinsson, bókmenntagagnrýnandi
Fréttatímans, sagði þá að Hreinsum væri
„líklega merkilegasta skáldverkið sem kem-
ur á markað í ár,“ og að bókin væri „hvalreki
öllum sem vilja næra sig með mikilvægri og
brýnni sögusmíð. Hreinsun verða allir að
lesa sér til gagns.“
Fyrsta bók Oksanen, Kýr Stalíns sem kom
út árið 2003, er nýútkomin hjá Forlaginu en
þar eru söguhetjurnar mæðgur og sú yngri
er einmitt jafngömul Oksanen sjálfri, dóttir
finnsk föður og eistneskrar móður þannig að
líklegt má telja að sagan sé að einhverju leyti
sjálfsævisöguleg. Oksanen hlaut Finlandia
verðlaunin, yngst allra höfunda, fyrir Kýr
Stalíns og skipaði sér með bókinni í fremstu
röð finnskra rithöfunda af yngri kynslóðinni.
Leikritið sem varð metsölubók
Sofi Oksanen skrifaði Hreinsun fyrst sem leikrit
og í kjölfar mikilla vinsælda verskins á sviði í
Finnlandi vann hún upp úr því skáldsögu sem
hefur farið sigurför um Evrópu og þar er Ísland
engin undantekning.
24 viðtal Helgin 28.-30. október 2011