Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 32
Fúlakvísl rennur í Hvítárvatn. Ljósmynd/Sigurgeir Sigurjónsson
É
g er þrællofthræddur en það er
svo skrítið þegar maður horfir í
gegnum vélina, jafnvel þó mað-
ur sitji fyrir utan þyrluna eða
þegar búið er að taka hurðina
af flugvélinni, þá hverfur hræðslan,“ segir
Sigurgeir Sigurjónsson ljósmyndari sem
hefur undanfarin fimm ára verið á flugi yfir
Íslandi og myndað landið frá sjónarhorni
fuglsins. Afrakstur flugferða Sigurgeirs er
kominn út á 192 blaðsíðum og er ævintýra-
legur.
„Ég datt inn í þetta verkefni fyrir hálf-
gerða tilviljun. Ég hafði aldrei haft neinn
áhuga á loftljósmyndun en tók að mér eitt
slíkt auglýsingaverkefni fyrir bandarískan
viðskiptavin árið 2006. Og þá kviknaði
áhuginn, eiginlega alveg óvart en vatt svo
bara upp á sig og nú er þessi bók komin út.“
Sigurgeir hefur verið stórtækur í bókaút-
gáfu undanfarin ár. Í fyrra kom frá honum
bókin Poppkorn með frábærum myndum
úr tónlistar- og menningarlífinu á sjötta og
sjöunda áratugnum. En þekktastur er þó
Sigurgeir fyrir ljósmyndabækur með mynd-
um af íslenskri náttúru. Þar á meðal eru
mest seldu bækur af þeirri gerð: Amazing
Iceland og Lost in Iceland.
En hvað segir Sigurgeir, er önnur kúnst
að mynda úr lofti en af jörðu? „Ekki svo,
þetta snýst um tilfinninguna fyrir formi. Og
úr lofti að ramma inn þessi málverk sem
liggja á jörðinni.“
Sigurgeir er fljótur til svars þegar hann
er spurður um hvort hann eigi sér uppá-
halds svæði til að mynda.
„Ég hef farið út um allan heim að taka
ljósmyndir en svæðið í kringum Torfajökul,
Tungnaá, Landmannalaugar og nágrenni
er fallegasti bletturinn í veröldinni. Engin
spurning.“
Málverkin sem liggja á jörðinni
Bók Sigurgeirs heitir Yfirsýn. Hún er í
stóru og voldugu broti (35 cm x 35 cm)
og kemur í sérstæðum umbúðum.
32 ljósmyndun Helgin 28.-30. október 2011