Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 35
V
iðtökur við Meniga hafa farið
fram úr björtustu vonum,
segir Helgi Bjarnason,
framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs Arion banka, en
Meniga-heimilisbókhaldið er einn af fjöl-
mörgum liðum í fræðsluátaki Arion banka.
Markmið fræðsluátaksins er að stuðla að
auknu fjármálalæsi, en með auknu fjár-
málalæsi nær fólk betri tökum á eigin fjár-
málum og tekur betri fjárhagslegar ákvarð-
anir fyrir sig og fjölskyldu sína.
Meniga-heimilisbókhaldið hefur nú staðið
viðskiptavinum Arion banka til boða síðan
í byrjun hausts og hafa viðtökurnar verið
hreint út sagt frábærar. Hátt í átta þúsund
viðskiptavinir Arion banka eru farnir að nýta
sér Meniga til að fá betri yfirsýn yfir útgjöld
heimilisins.
Óþarfa útgjaldaliðir upp á yfirborðið
Með Meniga-heimilisbókhaldinu er hægt
að fylgjast vel með því í hvað peningarnir
eru að fara þar sem kerfið sækir sjálfvirkt
færslur af reikningum og greiðslukortum
og flokkar þær saman. Þannig er auðveld-
lega hægt að sjá hversu mikið fjölskyldan
er að eyða í bensín, mat, læknisþjónustu og
fatainnkaup svo fátt eitt sé nefnt. Meniga
er mjög þægilegt og einfalt í notkun þar
sem búið er að útbúa flesta flokkana sem
færslurnar tilheyra auk þess sem hægt er
að tengja maka við heimilisbókhaldið svo
heildaryfirsýn náist.
Kostir Meniga eru margir en það sem
kemur mörgum notendum á óvart er að
neyslumynstur þeirra er annað en þeir hafa
talið það vera og oftar en ekki rekur fólk
augun í útgjaldaliði sem auðvelt er að lækka
til muna. Það er svo auðvitað misjafnt hvað
fólk hefur mestan áhuga á varðandi heim-
ilisbókhaldið; sumir vilja fá góða yfirsýn
yfir sín eigin fjármál og hvernig þau eru að
þróast, aðrir hafa áhuga á að bera útgjöldin
saman við útgjöld annarra, t.d. fjölskyldu
af sömu stærð, en það er eiginleiki sem
kerfið býður upp á. Fyrir aðra skiptir svo
mestu máli að geta gert góða áætlun fram
í tímann.
Mikil aðsókn á Meniga-námskeið
Nú í haust hefur Arion banki boðið við-
skiptavinum sínum á námskeið í Meniga
og eru þau ætluð þeim sem vilja fá aðstoð
við fyrstu skrefin. Námskeiðin hafa verið
haldin í Háskólanum í Reykjavík sem og á
landsbyggðinni til að mæta eftirspurn þar,
en heildarfjöldi námskeiða er í kringum 20
talsins sem er virkilega ánægjulegt.
Breki Karlsson, forstöðumaður Stofn-
unar um fjármálalæsi, hefur umsjón með
námskeiðunum en Arion banki hefur
undanfarin ár verið aðal bakhjarl stofnun-
arinnar.
Það er mikið ánægjuefni hversu góðar
viðtökur Meniga-heimilisbókhald hefur
fengið og Arion banki hefur brugðist við
mikilli aðsókn á námskeiðin með því að
bæta við fleiri námskeiðum. Skráning og
nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
bankans arionbanki.is eða í síma 4447000.
Meniga-heimilisbókhald slær í gegn
Kynning
HeimilisbókHald
Hátt í átta þúsund skráðir notendur í Meniga-heimilisbókhaldi Arion banka
Fjármál heimilanna
Helgin 28.-30. október 2011
Breki Karlsson
a
rion banki býður viðskipta-
vinum sínum nú þá nýjung
að taka óverðtryggð íbúðal-
án til 25 eða 40 ára þar sem
vextirnir eru fastir í fimm ár.
Að þeim tíma liðnum eru vextirnir endur-
skoðaðir og ef lántaka líst ekki á þá vexti
sem honum standa þá til boða, getur hann
valið á milli annarra kosta ef honum sýnist
svo. Hann getur þá breytt láninu í verð-
tryggt lán, annað óverðtryggt lánsform ef
það er hagstæðara eða greitt lánið upp án
sérstaks uppgreiðslugjalds.
Áður en lán er tekið er ýmislegt sem þarf
að huga að, s.s. hver er greiðslugetan og
hvaða áhrif hefur lántakan á fjárhag heim-
ilisins. Gott er að verða sér úti um allar
upplýsingar um lánið, vexti, greiðslubyrði,
uppgreiðslugjald, lántökukostnað og svo
framvegis. Eins þarf lántaki að skilja hver
áhættan og ávinningurinn er við lánið.
Vert að hafa í huga hvernig talið er að
verðbólga muni þróast yfir lánstímann. Afar
erfitt er að spá fyrir um verðbólgu en best
er að leggja saman áætlaða verðbólgu og
vexti verðtryggðs láns. Sé útkoman lægri en
vextir óverðtryggðs láns er að öðru óbreyttu
skynsamlegt að velja verðtryggt lán. Sé út-
koman hærri gæti verið skynsamlegt að
velja óverðtryggt lán. Eins er möguleiki á að
blanda saman óverðtryggðu og verðtryggðu
láni og dreifa þannig áhættunni.
Það getur skipt sköpum að taka upp-
lýsta ákvörðun þegar kemur að því að taka
íbúðalán enda er oft um að ræða stærstu
fjárfestingu einstaklinga. Mikilvægt er að
ákvörðunin sé byggð á réttum forsendum
og taki mið af persónulegum þörfum hvers
og eins.
Greiðslubyrði óverðtryggðra lána er að
öðru jöfnu þyngri en verðtryggðra lána en á
móti kemur að höfuðstóll óverðtryggðu lán-
anna lækkar hraðar en verðtryggðu lánanna
og eignamyndunin er því örari.
Arion banki býður hagstæð
óverðtryggð íbúðalán
óVerðtryggð íbúðalán arion banka
Landsbankinn hefur nú kynnt ný
óverðtryggð íbúðalán og bætt kjör
á verðtryggðum íbúðalánum sem
eru þau hagstæðustu sem bjóðast
í dag. Það er markmið bankans að
viðskiptavinir hafi raunhæft val
í mikilvægum ákvörðunum sem
snúa að fjármálum heimilanna og
að bjóða upp á lausnir sem taka
mið af aðstæðum þeirra.
Eftirspurn eftir óverðtryggðum
lánum hefur aukist en greiðslubyrði þeirra er
hærri á sama tíma og eignamyndun er hraðari.
Landsbankinn býður nú óverðtryggð íbúðalán með
föstum vöxtum til 3 eða 5 ára og að bindingu lok-
inni geta viðskiptavinir fest vexti aftur, greitt upp
lánið án uppgreiðslugjalds eða endurmetið stöðuna
án mikillar fyrirhafnar. Ekkert lántökugjald er tekið
við endurfjármögnun hjá Landsbankanum og er þá
hægt að velja aðrar fjármögnunarleiðir sem í boði
verða. Gott er fyrir viðskiptavini að hafa í huga að
ríkissjóður innheimtir ekki stimpilgjöld við kaup á
fyrstu fasteign né af þeim hluta nýja lánsins sem
samsvarar uppreiknuðu virði eldra lánsins en það
síðarnefnda gildir fram til áramóta.
Íbúðalán Landsbankans eru til allt að 40 ára og
með því hafa viðskiptavinir mikinn sveigjanleika
í vali á lengd lánstíma. Hámarks-
lánshlutfall er 70% af markaðs-
virði eða verðmati eignar en ekki
fasteignamati líkt og tíðkast hefur.
Viðbótarlán er í boði fyrir allt að
85% þar sem lánað er til allt að
15 ára með jöfnum afborgunum,
sem hraðar eignamyndun. Þessi
íbúðarlán og viðbótarlán eru í
boði óverðtryggð með föstum eða
breytilegum vöxtum og verðtryggð
með breytilegum vöxtum.
Landsbankinn býður ný óverðtryggð íbúðalán með
föstum vöxtum:
Lánshlutfall Binding vaxta
36 mánuðir 60 mánuðir
Allt að 70% 6,40% 6,60%
Frá 70 til 85% 7,40% 7,60%
Þeir viðskiptavinir Landsbankans sem kaupa
sína fyrstu fasteign og standa í skilum með lánið
sitt fá árlega endurgreiðslu frá bankanum sem
nemur 0,25 prósentustigum af greiddum vöxtum.
Til að koma til móts við núverandi viðskiptavini
býður Landsbankinn helmingsafslátt af lántöku-
gjöldum til þeirra fjölmörgu viðskiptavina sem eru í
vildarkerfum Landsbankans.
Óverðtryggð íbúðalán
Landsbankans
Kynning HeimilisbókHald
Viðskiptavinir eiga að hafa val og kostirnir þurfa að vera góðir.