Fréttatíminn - 28.10.2011, Síða 40
Fært til bókar
Allar frúr sig illa bera
Áður fyrr urðu vísur landfleygar og
þurfti ekki nútímafjölmiðlun til. Fræg-
ust er eflaust vísa Páls J. Árdal er hann
kvað niður allar hugmyndir á Alþingi
um þegnskylduvinnu með fjórum línum
ferskeytlunnar. Vísuna orti Páll árið
1903 en hún birtist í ljóðmælum hans
tveimur árum síðar:
Ó, hve margur yrði sæll
og elska mundi landið heitt,
mætti hann vera í mánuð þræll
og moka skít fyrir ekki neitt.
Þótt fátíðara sé að vísur fljúgi svo ört
sem fyrrum kemur það þó fyrir. Þannig
er með vísu Jónasar Friðriks Guðna-
sonar, skálds á Raufarhöfn og fyrrum
hirðskálds Ríó-tríósins, sem hlýtur að
nálgast þann sess að kallast landfleyg.
Leiða setti að Húsvíkingum er þau tíð-
indi bárust að Reðasafnið, hið frægasta
í plássinu, yrði flutt til Reykjavíkur. Þá
orti Jónas Friðrik – og þarf ekki að hafa
um frekari orð:
Allar frúr sig illa bera
ótíðindi að heyra slík:
Frá tólfta okt. er talið vera
tittlingslaust á Húsavík.
Krabbameinsfélagið nýtur velvildar og
trausts landsmanna og það er fjöreggið
okkar. Við höfum unnið fyrir því trausti og
munum standa undir því áfram.
Ágæta Erna.
Í annars góðu viðtali
við þig í Fréttatímanum
21. október síðastliðinn
komu fram staðhæfing-
ar sem valdið hafa mis-
skilningi. Þarft er að
leiðrétta þær ekki síst
til að tryggja gott sam-
starf þeirra sem sinna
margvíslegum þörf-
um þeirra sem greinst
hafa með krabbamein
og aðstandenda þeirra.
Þú nefnir að Kræftens
bekæmpelse (Danska
krabbameinsfélagið, systurfélag
K rabbameinsfélags Íslands)
styðji f járhagslega við rekstur
endurhæf ingarstöðvar f yr ir
krabbameinssjúklinga í Árósum.
Þú berð þetta saman við Ljósið
og bendir á að þið fáið ekki slíkan
styrk frá Krabbameinsfélagi Ís-
lands.
Kræftens bekæmpelse á og
rekur ráðgjafarstöðina Heimdal
í Árósum, og er því þarna ein-
faldlega að greiða fyrir eigin
starfsemi. Þetta má skýrt sjá
á heimasíðu ráðgjafarstöðvar-
innar (sérstakt félag er um fast-
eignina), og var staðfest við
mig í símtali við forsvarsmenn
Kræftens bekæmpelse að þessu
væri svona háttað. Kræftens be-
kæmpelse á því og rekur endur-
hæfingarstöðina í Árósum alveg
eins og Krabbameinsfélag Íslands
á og rekur Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíð. Danska krabbameinsfélagið
er því ekki að styðja fjárhagslega
starfsemi annarra samtaka með
þessu. Sjö þjónustustöðvar aðild-
arfélaga Krabbameinsfélagsins
á landsbyggðinni njóta líka fjár-
hagslegs stuðnings okkar, enda
félögin innan vébanda okkar.
Við vildum gera miklu betur og
efla bæði þjónustustöðvarnar og
Ráðgjafarþjónustuna. Allur hinn
fjölbreytti rekstur okkar er hins
vegar í járnum, og erfitt að sjá að
fjárhagsleg staða félagsins leyfi
verulegan fjárstuðning við önnur
verkefni en okkar, eins og sakir
standa.
Í öðru lagi er rétt að halda því
til haga að Ljósið hefur fengið
styrki frá Krabbameinsfélaginu.
Árið 2006, á fyrsta starfsári
Ljóssins, lagði KÍ
2,5 milljónir króna
til starfseminnar og
2 milljónir árið eft-
ir. Þetta var gert til
þess að aðstoða við
að hleypa starfsem-
inni af stokkunum.
Enginn annar rekst-
ur hefur fengið svo
háar f járhæðir frá
Krabbameinsfélaginu
frá þessum tíma. Við
auglýsum starfsemi
ykkar dyggilega og
hvetjum þá sem koma
til okkar og við teljum að geti haft
gagn af því að fara í Ljósið ein-
dregið til að nýta sér þá þjónustu.
Við erum viss um að samlegðar-
áhrifin eru góð.
Þú bendir á að þeir sem styðja
Krabbameinsfélagið fjárhagslega
telji sig vera að styrkja Ljósið, og
kann svo að vera í einhverjum til-
vikum. Þetta gildir að sjálfsögðu
líka um þá sem greiða til Ljóssins,
en sumir þeirra segja þegar við
leitum eftir fjárstuðningi að þeir
séu búnir að styðja okkur því þeir
hafi greitt til Ljóssins. Þetta rek-
um við okkur því líka á. Krafa þín
um að söfnunarfé gefið í fjáröflun
til eins aðila renni síðan beint til
rekstur hjá öðrum myndi augljós-
lega gera þetta mun flóknara og
ógagnsærra. Við leggjum að sjálf-
sögðu megináherslu á að fé sem
okkur er trúað fyrir sé nýtt í sam-
ræmi við markmið með söfnun
þess. Þannig er safnað í átakinu
karlmenn og krabbamein (sem
þú virðist telja að eigi að renna
til ykkar að einhverju leyti) fyrir
fræðslu og forvörnum, ráðgjöf og
rannsóknum. Það er grundvall-
araðtriði að standa við þau áform
um nýtingu fjár sem við kynnum,
og það gerum við.
Krabbameinsfélagið nýtur vel-
vildar og trausts landsmanna og
það er fjöreggið okkar. Við höfum
unnið fyrir því trausti og munum
standa undir því áfram. Við vilj-
um því gæta þess í hvívetna að
upplýsingar um starfsemi okkar
í fjölmiðlum sem byggðar eru á
misskilningi eins og hér er raun-
in séu leiðréttar. Við munum að
sjálfsögðu leggja áfram áherslu á
gott samstarf við Ljósið og óskum
því starfi alls hins besta.
Krabbameinsfélagið
Opið bréf til forstöðu-
manns Ljóssins
Ragnheiður
Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameins-
félags Íslands
Reks
trarle
iga
Opið alla virka daga frá 10 - 18
www.benni.is
Tækifæri til að hagræða
í rekstri fyrirtækisins !
Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 590 2000
Bílabúð Benna - Tangarhöfða 8-12
Reykjavík - sími 590 2000
Sérfræðingar í bílum
Fyrir
tæki
færi!
Bílabúð Benna býður fyrirtækjum sem hafa hug á að yngja upp og
hagræða í bílaflota sínum, breiða línu af Chevrolet, til rekstrarleigu.
Um er að ræða rekstrarleigu á Chevrolet bílum í 12-24 eða 36 mánuði.
• Minni fjármagnsbinding fyrir fyrirtæki
• Engin endursöluáhætta
• Þjónustueftirlit og smurþjónusta innifalin
• Leigugreiðslur að fullu gjaldfærðar í bókhaldi
• Bifreiðar hvorki eignfærðar né afskrifaðar
• Bifreiðar fáanlegar vsk. breyttar
Bensín
Metan
Dísel
Fáanlegir:
Helgin 28.-30. október 2011