Fréttatíminn - 28.10.2011, Page 43
T raust á stjórnmálamönn-um er rýrt bæði hérlend-is og í löndum í kringum
okkur. Sama gildir um lýðræðið
sjálft og stofnanir þess, ekki síst
Alþingi. Sagt er að allt sé þetta
blekking. Að vísu kjósi þjóðin
menn á þing á fjögurra ára fresti
en eingöngu pakkalausnir séu í
boði; flokkslistar sem kjósendur
fái ekki hnikað. Myndun ríkis-
stjórna sé einatt lítt í samræmi
við kosn-
ingaúr-
slit;
jafnvel
flokkur
sem galt
afhroð
veiti rík-
isstjórn
forystu.
Ríkis-
stjórn
valti síð-
an yfir
þingið
en láti sjálf leiðast af „sérfræð-
ingastóði“. Yfir öllu tróni svo
hagsmunasamtök og ekki síst
peningaveldið.
Þjóðin, kjósendur, finna til
vanmáttar og gefa lýðræðinu
langt nef. Undirritaður ræddi
við fólk í stórmörkuðum í að-
draganda kosningarinnar til
stjórnlagaþings fyrir ári um
þetta lykilmál; benti á mikilvægi
bættrar stjórnarskrár sem lið í
því að efla vald fólksins, að bæta
stjórnarfarið og svo framvegis.
Margir, of margir, brugðust
þannig við að allt væri rotið, að
þeir sem fást við að stjórna séu
allt sama hyskið - þar með talin
við sem buðum okkur fram.
Þessu verður að snúa við eigi
ekki illa að fara.
Hvað er til ráða?
Hvarvetna er rætt um þessa
stjórnmálaþreytu en lausnir
liggja ekki á lausu. Í margra
augum, ekki síst ungs fólks,
skiptir gagnsæi miklu, að allt
liggi upp á borðinu, að hætt verði
öllu laumuspili. Beint lýðræði,
þar sem kjósendur geta hafnað
lögum og jafnvel sett lög, er líka
til þess ætlað að auka tiltrú al-
mennings á mátt lýðræðisins.
En það sem oftast er nefnt, bæði
heima og erlendis, er að styrkja
þurfi þingræðið, efla vald þjóð-
þingana.
Um þessar mundir takast þing
og ríkisstjórnir víða í Evrópu á
um stuðning við fjárhagslega
fallvölt ríki, eins og Grikkland.
Þýski stjórnlagadómstóllinn tók
af skarið í þessum efnum þegar
hann kvað upp úr með það að
ríkisstjórn Þýskalands yrði að
spyrja þingið áður en hún tæki
skuldbindandi ákvarðanir sem
þessar. Að margra dómi er þetta
dæmi um að nú sé pendúllinn
að snúast við þjóðþingunum í
vil eftir síminnkandi völd þeirra
undanfarna áratugi.
Ný stjórnarskrá
Blásum lífi í lýðræðið!
Þorkell Helgason
sat í stjórnlagaráði
viðhorf 39Helgin 28.-30. október 2011
Hvað leggur stjórnlagaráð til?
Fulltrúar í stjórnlagaráði voru mjög meðvitaðir
um þennan vanda og taka á honum í tillögum
sínum með margvíslegum hætti. Helstu atriðin
í því sambandi eru:
• Kjósendur fá nær öllu ráðið um það hverjir
veljist á þing af framboðslistum.
• Alþingi kýs forsætisráðherra með beinum
hætti og ræður þar með í raun alla ríkis-
stjórnina. Ríkisstjórn getur þá vart starfað í
blóra við vilja þingsins.
• Þingmál hefja göngu sína í þingnefndum.
Með þessu er ýtt undir það að þingið taki
ekki við stjórnarfrumvörpum sem gerðum
hlut, heldur taki þátt í mótun mála.
• Kjósendur geti haft frumkvæði bæði að því
að fella lög úr gildi eða skapa nýja löggjöf.
• Stjórnmálaflokkum verða sett lagafyrirmæli
um starfshætti, fjármál o.fl.
• Ráðherrar sitja ekki á þingi og ganga þar
ekki um gólf sem ráðamenn. Þeir koma fyrir
þingið eins og hverjir aðrir embættismenn.
• Ráðherrar bera sameiginlega ábyrgð á
helstu ákvörðunum sínum.
• Upplýsingaréttur almennings um opinber
gögn er tryggður um leið og frelsi fjölmiðla
er elft verulega.
• Fjölmiðlum er tryggt ritstjórnarlegt frelsi og
þeir sem upplýsa njóta verndar.
• Forseta Íslands er ætlað verulegt aðhalds-
hlutverk m.a. til að koma í veg fyrir gerræð-
islega skipun dómara.
• Umboðsmaður Alþingis er festur í sessi,
en hlutverk hans er að veita stjórnvöldum
aðhald.
• Rannsóknarnefndir Alþingis fá stöðu í
stjórnarskránni.
• Fjármálalegt aðhald að stjórnvöldum er
aukið með ýmsum hætti.
Komum góðri stjórnarskrá á grunni þessara til-
lagna í höfn!
Undirritaður ræddi við fólk í
stórmörkuðum í aðdraganda
kosningarinnar til stjórnlaga-
þings fyrir ári ... Margir, of
margir, brugðust þannig við
að allt væri rotið, að þeir sem
fást við að stjórna séu allt
sama hyskið - þar með talin
við sem buðum okkur fram.