Fréttatíminn - 28.10.2011, Page 70
Það kom okkur
mjög skemmti-
lega á óvart
hversu margir
góðir dansarar
mættu.
IngImar H. IngImarsson sagan sem varð að segja
Dans mIkIll fjölDI HæfIleIkafólks kallaðI á aukaþátt
Guðrún Ebba eftirsótt
Bókin Ekki líta undan rokselst þessa
dagana en í henni segir Guðrún Ebba
Ólafsdóttir frá því kynferðisofbeldi
sem faðir hennar, Ólafur Skúlason
biskup, beitti hana árum saman. Á
sunnudaginn kom Guðrún Ebba fram á
sögufundi Vonar hjá SÁÁ. 210 manns
mættu á fundinn sem er metaðsókn
á slíkum fundum. Fleiri hafa áhuga á
að fá Guðrúnu Ebbu til að flytja erindi
og hún hefur til dæmis verið beðin um
að flytja hátíðarræðu á aðventuhátíð
Íslenska safnaðarins í Noregi, fyrsta
sunnudag í aðventu. Fyrir utan formleg
erindi hafa fjölmargir sett sig í samband
við Guðrúnu Ebbu, til dæmis í gegnum
Facebook-síðu hennar og þakkað henni
fyrir að segja sögu sína.
Sá vaski viðskiptafrétta-
maður Magnús Hall-
dórsson sem söðlaði
nýlega um og færði sig
af Viðskiptablaðinu yfir
á Vísi.is er þegar farinn
að láta til sín taka á Vísi
svo eftir er tekið. Þannig
gernýtti Magnús mögu-
leikan vefmiðlunar á
fimmtudag þegar hann
lýsti ráðstefnunni um
efnahagshrunið beint
frá Hörpu í gegnum
samskiptavefinn Twitter.
Stutt og snörp frétta-
skeyti Magnúsar voru
býsna fjörug og gáfu
skemmtilega og óhefð-
bundna mynd af alvöru-
þrunginni ráðstefnunni.
Á köflum minntu
lýsingar Magnúsar einna
helst á útsendingu frá
íþróttakappleik með
innskotum á borð við:
„Gylfi Magnússon
er nú stiginn í pontu.
Hann talar ensku eins
og innfæddur Banda-
ríkjamaður. Gylfi er með
doktorspróf frá Yale
háskóla.“
Tekinn til við að twitta
Leðurblökumaður vildi
Borgríki
Glæpamyndin Borgríki eftir Ólaf Jó-
hannesson hefur lagst vel í landann og
hefur að auki vakið athygli og áhuga stór-
laxa í Hollywood. Greint hefur verið frá því
að leikstjórinn James Mangold hyggist
endurgera Borgríki Vestanhafs. Mangold
var þó síður en svo eini þungavigtar-
maðurinn sem sýndi mynd Ólafs áhuga og
nokkuð margir munu hafa verið um hituna.
Fréttatíminn hefur þannig heimildir fyrir
því að einn heitasti leikstjórinn í Banda-
ríkjunum um þessar mundir, sjálfur Chri-
stopher Nolan, hafi sýnt Borgríki áhuga
en lögmaður hans mun hafa falast eftir
því að fá að skoða myndina. Nolan hefur
undanfarin ár gert það gott með nýju
myndunum um Batman og sló hressilega í
gegn með Inception í fyrra.
Bjórfélagi Björgólfanna leysir frá skjóðunni
f jölmiðlamaðurinn Þorfinnur Ómarsson er þessa dagana að leggja lokahönd á ævi-
sögu Ingimars H. Ingimarssonar
arkitekts. Blaða- og fréttamenn
hafa mikið reynt að fá Ingimar til
þess að tjá sig um viðskipti sín og
þá ekki síst í St. Pétursborg en
þar komust Björgólfsfeðgar yfir
drykkjaverksmiðju hans og lögðu
með henni grunninn að veldi sínu
á Íslandi. Meðal þeirra spurninga
sem Ingimar svarar í bókinni, Sag-
an sem varð að segja, er hvað ís-
lenskur eigandi drykkjaverksmiðju
í Rússlandi gerir þegar hann fréttir
að landar hans og samstarfsmenn
hafi yfirtekið verksmiðjuna og læst
hann úti.
Ingimar hefur lítið viljað tjá sig
um viðskipti sín við Björgólfsfeðg-
ana hingað til en hann sendi Fjár-
málaeftirlitinu greinargerð þegar
feðgarnir voru að falast eftir kaup-
um á Landsbankanum. Þar sagði
Ingimar þá hafa stolið af sér verk-
smiðjunni með skjalafalsi og að
veldi þeirra virtist að einhverju leyti
byggt á þaulhugsuðu svindli.
Saga Ingimars er býsna reyfara-
kennd á köflum og næsta víst er að
bókin verði ein óvæntasta bomb-
an í jólabókaflóðinu enda Ingimar
manna líklegastur til þess að geta
varpað frekara ljósi á viðskiptaveldi
Björgólfs Guðmundssonar og Björg-
ólfs Thors.
Ingimar segir einnig frá því
hvernig hann, íslenskur arkitekt,
komst inn á gafl hjá æðstu ráða-
mönnum í St. Pétursborg skömmu
eftir fall kommúnismans en í ævin-
týri hans koma ekki ómerkari menn
en Vladimír Pútín og Anatolí Sobc-
hak, borgarstjóri í St. Pétursborgar,
við sögu. Þá skjóta einnig upp koll-
inum dularfullir náungar í austur-
þýska kommúnistaflokknum sem
gátu opnað ýmsar óþekktar dyr auk
þess sem kunnir íslenskir útrásar-
víkingar gegna veigamiklum hlut-
verkum. -þþ
Miðað við þá vitneskju sem Ingimar býr
yfir má reikna með safaríkri frásögn í
bókinni sem Þorfinnur skráir.
æ tlunin var að nota fyrsta þáttinn til þess að sýna frá prufunum en það kom okkur mjög skemmtilega á
óvart hversu margir góðir dansarar mættu.
Þau voru miklu fleiri en við bjuggumst við
þannig að þetta kom svolítið aftan að okk-
ur og okkur fannst ómögulegt að skera
þetta góða efni niður í einn þátt þannig að
það varð úr að við hefjum leikinn með
tveimur þáttum á laugardaginn,“ segir
Ragnhildur Steinunn sem er himinlif-
andi, bæði yfir áhuga dans-
ara á þættinum sem og
þeirri góðu stemningu
sem myndaðist í pruf-
unum.
Danskeppnin
sjálf hefst síðan
fyrir alvöru í bein-
um útsendingum á
laugardaginn eftir
viku en
þar sýna dansarar listir sínar, einstaklingar,
pör og hópar. Tvö atriði úr hverjum þætti
halda síðan áfram í úrslitakeppnina.
„Þetta er búið að vera ofboðslega gaman
og það voru sterkar tilfinningar í gangi í
prufunum, bæði grátur og gleði, og greini-
legt að allir eru að gefa sig í þetta af lífi og
sál. Og ég segi það í fullri alvöru að þarna
eru samankomnir bestu dansarar landsins.
Ég meina það. Það er frábært hvað allt þetta
hæfileikafólk sýnir þessu mikinn áhuga. Ég
heyrði það á dönsurunum að þeim leið eins
og þeir væru í útlöndum vegna þess hversu
mikil stemning var í prufunum.“
Dómnefnd þáttarins skipa, auk Katrínar
Hall, listræns stjórnanda Íslenska dans-
flokksins, þau Karen Björk Björgvinsdótt-
ir, fyrrverandi Íslands- og heimsmeistari í
samkvæmisdönsum, og Gunnar Helgason
leikari.
Ragnhildur Steinunn veit fátt skemmtilegra en
að horfa á dans þannig að hún verður í bana-
stuði þegar hún leiðir áhorfendur í gegnum
hádramatíska danskeppnina í vetur.
Mikið drama,
grátur og gleði
Þátturinn Dans, dans, dans, sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir stjórnar,
hefur göngu sína í Sjónvarpinu á laugardaginn. Slíkur fjöldi hæfileikaríkra
dansara mætti í prufur þannig að Ragnhildur og félagar sátu uppi með
svo mikið efni að ekki þótti annað fært en að gera prufunum skil í tveimur
þáttum sem verða sendir út á laugardagskvöld sitt hvoru megin við
Kexvexmiðjuna.
Dómararnir Gunnar Helgason, Katrín Hall og Karen Björk tóku þátt í dramanu í Laugardalshöllinni þar sem stutt var á milli
hláturs og gráts þegar tilfinningarnar tóku völdin hjá áköfum og einbeittunum dönsurunum.
66 dægurmál Helgin 28.-30. október 2011