Fréttatíminn - 29.06.2012, Page 6
Grunnskóli Foreldrar ósáttir við ákvörðun klettaskóla
Bodensee telst með fallegustu vötnum Evrópu og á landamæri að Þýskalandi,
Austurríki og Sviss. Þessi töfrandi ferð hefst á flugi til München. Þaðan er haldið
til Füssen þar sem ævintýrahöllin Neuschwanstein verður skoðuð. Gist í Füssen
og síðan ekið til Friedrichshafen við Bodensee þar sem gist verður í 4 nætur
á hóteli alveg við vatnið. Farið verður í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d siglt
yfir vatnið og blómaeyjan Mainau heimsótt. Heiðurinn að þessum stórglæsilega
lystigarði á Bernadotte greifi. Ekið inn í Sviss til Urnäsch við Säntis fjall, þar sem
hægt er að komast upp í 2502 m hæð með kláfi. Þaðan er stórkostlegt útsýni
yfir til 6 landa. Komið til Lindau, sem er heillandi bær og sá stærsti við vatnið.
Ferðin endar í Augsburg þar sem gist verður í 2 nætur. Þar skoðum við m.a.
fyrstu verkamannabústaði í heimi, sem Fugger kaupmannaættin reisti á 15. öld
og enn er búið í, en leigan hefur ekki hækkað síðan þá!
Fararstjóri: Þórhallur Vilhjálmsson
Verð: 179.700 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með rútu,
ferja frá Meersburg til Konstanz og íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 9
2. - 9. ágúst
Blómálfar & vatnadísir
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
G unnar Ólafsson, stofnandi Einherjanna, segir að um hundrað manns hafi hópast saman við Drekkingarhyl
þegar til stóð að kasta munki
í fullum skrúða í vatnið.
„Við stóðum við hylinn þrír
víkingar og munkurinn í
sínum kufli með kross. Ég
bauð fólkinu að ráða hvort
við gæfum munkinum líf að
þessu sinni með því að setja
þumalfingur upp eða niður,“
segir Gunnar. Að talningu
lokinni kom í ljós að meiri
hluti viðstaddra vildi þyrma
lífi munksins. „Ég sagði
fólkinu þá að; að þessu sinni
fengi hann að lifa vegna þess
að á Íslandi væri lýðræði og
við færum eftir því og ég kall
aði yfir mannskapinn: „Það
verður því enginn munkur
drepinn í dag.““
Gunnar bætir síðan við
að það hafi ekki verið fyrr
en eftir á sem væringjarnir
áttuðu sig á því að á meðan
þeir ákváðu að hlífa munkinum var verið að
vígja nýjan biskup yfir Íslandi. „Þetta hitti
bara þannig á.“
Gunnar segir þá félaga vekja mikla lukku
hvar sem þá ber niður með vopn sín og verj
ur. „Fararstjórunum sem eru þarna, oft með
rútufylli af fólki, finnst þetta frábært. Þetta
er bara eins og með hvalaskoðunina. Þegar
lagt er á sjóinn spyr fólkið hvort það muni
sjá hvali og fararstjórarnir hafa sagt okkur
að þegar þeir komi með fólk á Þingvelli þá
spyrji það hvort það muni sjá víkinga. Fólk
inu fannst þetta meiriháttar á Þingvöllum
á sunnudaginn og þar sem við komum vilja
allir taka af okkur myndir og fá myndir af sér
með okkur.“
Gunnar segist ekkert skilja í því hvers
vegna Íslendingar geri ekki miklu meira
af því að nota arfleið víkinganna til þess
að draga ferðafólk til landsins enda finni
Einherjarnir svo sterkt fyrir
áhuga útlendinga á víking
unum og sögu þeirra. „Við
þurfum að gera miklu meira
að þessu.“
Einherjarnir æfa sig í vopna
burði og bardögum þrisvar í
viku og reyna að berjast þar
sem ferðafólk kemur saman í
hópum. „Við berjumst þar sem
ferðamenn eru og þeir eru að
fíla þetta í botn þannig að þetta
virkar.“ Gunnar segist hafa
farið víða undanfarin tvö ár og
spurt ferðafólk hvað það vilji
helst sjá á Íslandi og langflestir
nefni þá víkinga til sögunnar.
„Þau segjast vera komin til
þess að sjá víkingalandið
okkar. Við erum bara að reyna
að vekja athygli á okkur með
þessu og erum að reyna að fá
ferðaskrifstofurnar til þess að
taka þetta svolítið inn í ferða
mannapakkana,“ segir Gunnar um íslensku
víkingana sem geta vel hugsað sér að berjast
fyrir borgun með reglulegum uppákomum.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Fararstjór-
unum sem
eru þarna,
oft með
rútufylli
af fólki,
finnst þetta
frábært.
Þetta er
bara eins
og með
hvalaskoð-
unina.
einherjarnir Gleðja FerðaFólk með víkinGabardöGum
Þyrmdu lífi munks
á Þingvöllum
Víkingarnir í Einherjum, Víkingafélagi Reykjavíkur, stunda
bardagaæfingar sínar þrisvar í viku og mæta gráir fyrir
járnum á helstu staði þar sem erlendir ferðamenn spóka
sig. Ferðafólkið tekur víkingunum fagnandi, dáist að
vopnfimi þeirra og lætur taka myndir af sér með vígamönn-
unum. Á sunnudag tókst ferðafólkinu meira að segja að fá
víkingana til þess að þyrma lífi munks sem þeir ætluðu sér
að drekkja í Drekkingarhyl... í plati, að sjálfsögðu.
Barist á Þingvöllum.
„Við viljum vera
meira á Þingvöllum
enda slæmt að
ekki sé meira af
víkingum að sjá
þar í ljósi þess að
þingið var stofnað
þar 930. Það er
ekkert að gerast
þarna en félagar
okkar í víkinga-
félögum í útlöndum
dauðöfunda okkur
af því að vera með
þennan sögulega
stað nánast í bak-
garðinum. Þeir þrá
að koma hingað,
þó ekki væri nema
bara einu sinni á
ævinni. Þingvellir
eru eins og Mekka
víkingaheimsins.“
Munkurinn var sýnd veiði en
ekki gefin en hefði fengið að
gossa í Drekkingarhyl ef góð-
mennska erlendra ferðamanna
hefði ekki komið til.
Áprentað
merki fyrirtækis
eða eigin hönnun
500 stk á aðeins
120.000 án vsk.
Höfuðklútar
fyrir öll
tækifæri!
Sími: 533-1510
elin@markadslausnir.is
Foreldrar tæplega ellefu ára þroska
skerts drengs, Inga Kristmanns,
þau Ágúst Kristmanns og María
Björg Benediktsdóttir, hafa kært þá
ákvörðun Klettaskóla til mennta
málaráðuneytisins, að neita honum
um skólavist í eina sérskóli landsins;
Klettaskóla fyrrum Öskjuhlíðarskóla.
Foreldrar Inga telja fullreynt að
skólaganga í almenna skólakerfinu
henti honum og fara fram á að ráðu
neytið nýti sér þær heimildir sem það
hefur og ógildi ákvörðun skólans. Þau
telja ekki aðeins brotið á stjórnarskárvörðum réttind
um Inga heldur einnig á ákvæðum Barnasáttmálans,
á lögum um grunnskóla, lögum um rétt nemenda með
sérþarfir í grunnskóla og lögum um
málefni fatlaðs fólks.
„Félagslegi hlutinn er stærsta
vandamálið,“ segir Ágúst við
Fréttatímann. Syni þeirra hafi vegn
að vel í almennum skóla fyrstu árin
og þau töldu gott að hann kynntist
krökkunum í hverfinu. „En eftir því
sem þau verða eldri breikkar bilið á
milli þeirra og Inga.“
Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri
Klettaskóla, segir hann annað
tveggja barna sem hefur verið
neitað um skólavist vegna hertra reglna frá árinu
2008. „Þetta er málefnaleg afgreiðsla í samræmi við
inntökureglur skólans.“ -gag
Kæra í von um að koma syni sínum í sérskóla
Foreldrar Inga Kristmanns. M/Hari
6 fréttir Helgin 29. júní-1. júlí 2012