Fréttatíminn - 29.06.2012, Blaðsíða 54
„Stolt,“ segir Greta Salóme Stefáns-
dóttir þegar hún lítur um öxl til Bakú
og lagsins, Never Forget, sem hún
samdi og flutti þar með söngvaran-
um Jónsa: Flutningurinn, skipulagið
og utanumhaldið hafi verið eldskírn
hennar á tónlistarmarkaðnum og
með þátttöku í keppninni hafi hún
tryggt sér plötusamning við Senu og
er platan væntanleg í vetur.
Íslenska Eurovision-lag Gretu
Salóme Stefánsdóttur hefði
færst upp um eitt sæti hefðu
dómnefndir einar fengið að
ráða úrslitum í keppninni í
ár. Lagið hefði þá verið í nítjánda sæti í stað þess
tuttugasta. Svíar eru í því fyrsta hjá dómnefndun-
um rétt eins og áhorfendum. Helsta mun má sjá hjá
Rússum, Tyrkjum, Írum og Frökkum. Rússnesku
ömmurnar urðu í 2. sæti áhorfenda og einungis
ellefu stigum frá sænsku Loreen, en í ellefta sæti
dómnefndanna – samanlagt því 113 stigum á eftir
Svíum og héldu öðru sætinu.
Áhorfendur settu Tyrki í fjórða sæti en dóm-
nefndir í 22. sæti. Frakkar voru í 13. sæti
dómnefnda en neðstir meðal áhorfenda,
Írar í 10. meðal sjónvarpsáhorfenda en
25. sæti dómnefnda og Ítalir í 4. sæti
dómnefnda en 17. sæti áhorfenda, sam-
kvæmt úttekt wikipedia á netinu. -gag
Eurovision GrEta salómE stolt
vEisluhöld BjörGólfur thor oG Kristín ólafs Bjóða til vEislu
Feðgin bítast um hlustun
Gestir fá
engar upp-
lýsingar
um hvert
ferðinni er
heitið eða
hvað bíður
þeirra á
áfangastað.
Boðskortið í
veisluna var
45 snúninga
vínilplata.
Björgólfur Thor og Kristín sjást hér ganga nýgift út af borgarskrifstofum Rómarborgar í nóvember árið 2010. Brúðkaupinu
og fertugsafmæli Kristínar verður fagnað í Englandi um næstu helgi.
Slá brúðkaupsveislunni
saman við fertugsafmæli
Vinir og ættingjar Björgólfs Thors Björgólfssonar og Kristínar Ólafsdóttur eiga von á góðu um
næstu helgi þegar hjónin bjóða til veislu í Englandi. Þá fagna þau hjónavígslu sinni fyrir einu og
hálfu ári síðan og fertugsafmæli Kristínar.
h jónakornin Kristín Ólafsdóttir og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa boðið vinum sínum og ættingjum til
tvöfaldrar veislu í Englandi um næstu helgi.
Veislan er bæði brúðkaupsveisla þeirra og af-
mælisveisla Kristínar, en hún verður fertug á
föstudaginn, 6. júlí. Ragnhildur Sverrisdóttir,
upplýsingafulltrúi Björgólfs Thors, staðfesti
við Fréttatímann að hjónin verði með veislu
um næstu helgi en vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið.
Samkvæmt upplýsingum Fréttatímans
verður veislan öll hin glæsilegasta. Gestum
frá Íslandi verður flogið út til Bretlands,
þeir verða sóttir á flugvöllinn og keyrðir til
veislunnar. Gestir fá engar upplýsingar um
hvert ferðinni er heitið eða hvað bíður þeirra
á áfangastað. Boðskortið í veisluna var 45
snúninga vínilplata. Meðal gesta sem boðið
er til veislunnar eru vinir Björgólfs Thors,
þeir Leifur Dagfinnsson framleiðandi hjá
TrueNorth, Birgir Bieltvedt athafnamaður og
Skúli Mogensen fjárfestir. Þá er við búið að
Björgólfur Guðmundsson og Þóra Hallgríms-
son, foreldrar Björgólfs, verði meðal gesta.
Eins og Fréttatíminn greindi frá í fyrra-
sumar fór brúðkaup Kristínar og Björgólfs
Thors fram í kyrrþey í nóvember árið 2010
eftir tólf ára sambúð. Athöfnin fór fram á
borgarskrifstofum Rómar, Palazzo dei Con-
servatori. Skrifstofurnar eru við hið forn-
fræga torg Piazza del Campidoglio sem er
hannað af Michaelangelo.
Látlaus athöfnin í kyrrþey í Róm þótti
stinga nokkuð í stúf við eftirminnilega fer-
tugsafmælisveislu Björgólfs Thors í febrúar-
mánuði 2007. Þá flaug Björgólfur Thor með
fjölda manns til Jamaíku þar sem hópurinn
dvaldi í nokkra daga við stanslaus veisluhöld
og skemmtiatriði tónlistarmanna á borð við
50 Cent, Jamiroquai og Ziggy Marley, son
goðsagnarinnar Bobs Marley. Þá bauð Björg-
ólfur Thor til að mynda öllum bekknum
sínum úr Versló. Ekki er búist við viðlíka
veisluhöldum um næstu helgi – hermt er að
fjöldi gesta hlaupi á tugum frekar en hundr-
uðum.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Blaðamaðurinn sjóaði Sigurjón M. Egils-
son þeysist um sinn Sprengisand alla
sunnudagsmorgna á Bylgjunni þar sem
hann fer yfir pólitíkina og þjóðmálin.
Rödd hans hefur einnig hljómað af og
til í sumar í morgunþætti Bylgjunnar, Í
bítið, þar sem hann hefur hlaupið í skarð
þeirra Heimis Karlssonar og Kolbrúnar
Björnsdóttur. SME, eins og hann er
jafnan kallaður, tekur sumarafleysingar
í morgunþættinum í júli og fer þá í beina
samkeppni við dóttur sína, Hjördísi Rut
Sigurjónsdóttur, sem situr við hljóðnemann á sama tíma í Efstaleiti í Morgunþætti
Rásar 2 en þessir þættir bítast um hylli árrisulla hlustenda.
Of Monsters and Men fær
styrk til útitónleikahalds
Ein helsta vonarstjarna Íslands á tónlistarsviðinu,
hljómsveitin Of Monsters and Men og útvarpsstöðin
Bylgjan fá 250 þúsund króna styrk frá borginni
til undirbúnings og þrifa vegna fyrirhugaðra
tónleika í Hljómskálagarðinum. Þetta var ákveðið
í borgarráði 21. júní en bæði borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna sátu hjá. Hljóm-
sveitin hefur boðið landsmönnum á útitónleika í
garðinum þann 7. júlí næstkomandi. Hún hefur náð
undraskjótum frama að undanförnu og segir meðal
annars á vefmiðlinum Pressunni að sveitin hafi
ákveðið þegar færi gafst á „örstuttu og langþráðu
fríi“ að koma heim, „heilsa uppá vini og ættingja og
sýna þjóðinni þakklæti sitt í verk með því að bjóða
henni til útitónleika.“ - gag
Mamma Hreiðars
opnar hótel
Ferðamönnum sem eiga leið í
Stykkishólm býðst nú að gista í
einu fallegasta húsi bæjarins. Í
vikunni var Hótel Egilsen opnað
í glæsilegu rauðu húsi við höfn-
ina en það er tíu herbergja, svo-
kallað „boutique“-hótel. Hótelið
þykir hið glæsilegasta en það
var Daníel Freyr Atlason sem
sá um hönnun þess. Í hverju
herbergi er til að mynda iPad
og glæsilegt hljóðkerfi. Gréta
Sigurðardóttir rekur hótelið
en hún er móðir Hreiðars Más
Sigurðssonar, fyrrum forstjóra
Kaupþings.
Athygli hefur
vakið að bar-
inn á hótelinu
er sjálfsaf-
greiðslubar,
„honesty-bar“
eins og það
heitir erlendis,
og treysta
eigendur
hótelsins því á
að gestir skrái
samvisku-
samlega niður
drykkju sína.
Dómnefndir höfðu lítil áhrif á gengi Gretu Salóme í Eurovision
Jedward-drengirnir hefðu orðið í tíunda sæti hefðu áhorfendur einir fengið að ráða,
en í því 25. hefðu dómnefndirnar haft niðurstöðuna í hendi sér. Þeir enduðu í 19. sæti.
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
54 dægurmál Helgin 29. júní-1. júlí 2012