Fréttatíminn - 29.06.2012, Síða 45
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Villingarnir / Stubbarnir / Hello Kitty /
Algjör Sveppi / Tommi og Jenni / Maularinn /
Tasmanía /Krakkarnir í næsta húsi
11:10 iCarly (1/25)
12:00 Hádegisfréttir
12:25 Nágrannar
14:10 Evrópski draumurinn (1/6)
15:00 2 Broke Girls (5/24)
15:30 Wipeout USA (11/18)
16:20 Sprettur (3/3)
16:50 Mad Men (12/13)
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:20 Frasier (13/24)
19:45 Last Man Standing (1/24)
20:10 Dallas (3/10)
20:55 Rizzoli & Isles (3/15)
21:40 The Killing (8/13)
22:25 House of Saddam (4/4)
23:25 60 mínútur
00:10 The Daily Show: Global Edition
00:35 Suits (3/12)
01:20 Silent Witness (8/12)
02:15 Supernatural (18/22)
02:55 Boardwalk Empire (1/12)
04:05 Nikita (1/22)
04:50 The Event (16/22)
05:35 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
11:35 Víkingur R. - Fylkir
13:25 Borgunarmörkin 2012
14:25 ÍA - FH
16:15 Sterkasti maður Íslands
16:45 Eimskipsmótaröðin 2012
17:15 Spænski boltinn: Sporting - Real Madrid
19:00 Spænski boltinn: Malaga - Barcelona
20:45 Oklahoma - Miami
22:35 PGA Championship
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
17:00 Peter Schmeichel
17:30 PL Classic Matches: Arsenal - Manches-
ter Utd, 2001
18:00 Tottenham - Man. City
19:45 Premier League World
20:15 Newcastle - Chelsea
22:00 PL Classic Matches: Tottenham -
Everton, 2002
22:30 Man. Utd. - Wigan
SkjárGolf
06:00 ESPN America
06:45 AT&T National - PGA Tour 2012
11:15 Golfing World
12:05 AT&T National - PGA Tour 2012
16:35 Inside the PGA Tour (26:45)
17:00 AT&T National - PGA Tour 2012
22:30 Ryder Cup Official Film 2006
23:45 ESPN America
1. júlí
sjónvarp 45Helgin 29. júní-1. júlí 2012
Þáttaröðin The River fór af stað á
Skjá einum í síðustu viku og fyrsti
þátturinn lofar góðu. Þátturinn
náði upp þokkalegri spennu með
notalegu hryllingsívafi þannig að
maður getur varla stillt sig um að
dóla niður myrka á ásamt nokkrum
bráðfeigum sálum á löskuðum
fljótabáti. Og ekki spillir fyrir að
höfundar The River virðast hafa sótt
innblástur í smiðju Josephs Conrad
og Heart of Darkness þannig að
vel má gera sér góðar vonir um að
blessað fólkið sá á siglingu í innstu
myrkur.
Ósköpin byrja þegar vinsæll sjón-
varpsmaður, einhvers konar blanda
af David Attenborough og krókódíla-
manninum Steve Irwin, hverfur
sporlaust í frumskógi.
Sá týndi hafði um langt árabil gert
furðum náttúrunnar hressileg skil í
sjónvarpsþáttum sínum og taldi sig
vera á höttunum eftir einhverju stór-
kostlegu, miklum galdri, þegar hann
gufaði upp. Hálfu ári síðar fer svo
staðsetningartæki hans að gefa frá
sér merki og eiginkona hans, sonur
og sérkennilega samansettur hópur
leggur upp í björgunarleiðangur.
Fyrstu vísbendingar benda til þess
að sjónvarpshetjan hafi gengið af
göflunum í einhverju svartagaldur-
skukli með innfæddum og því ekki
útilokað að blessaður sonurinn sé
kominn í spor Marlow í Heart of
Darkness og muni ekki finna föður
sinn, eins og hann þekkti hann,
heldur einhvern snarbilaðan Kurz.
Höfundur þáttanna Oren Peli
haslaði sér völl fyrir nokkrum árum
með þeim ágæta hrolli Paranormal
Activity og kann að slá á réttar nótur
í hryllingnum. Þá leikur sá geðþekki
Bruce Greenwood týnda manninn
þannig að Peli er mögulega með
kröftuga blöndu í höndunum og, eins
og Francis Coppola sýndi svo eftir-
minnilega með Apocalypse Now!,
má nú gera býsna göróttan graut
þegar notast er við krydd frá Joseph
Conrad.
Þórarinn Þórarinsson
Dómsdagur aftur!
Í sjónvarpinu The river