Fréttatíminn - 29.06.2012, Blaðsíða 52
RESTAURANT- BAR
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík
Sími 551 2344 | www.tapas.is
Sumar er Sangria
Komdu á Tapas barinn og smakkaðu á sumrinu.
Glas 990 kr.
Kanna, 1 l 3.090 kr.
Láttu það eftir þér, vertu frjáls, njóttu lífsins.
Ísköld Sangría, stútfull af ferskum ávöxtum
með Fresita jarðaberjafreyðivíni, appelsínusafa
og leyniblöndu af sterku áfengi og líkjörum.
Heilsueldhúsið
heilsurettir.is
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS CAFÉ/BAR, opið 17-23
VERTU FASTAGESTUR!
Ódýrara í bíó með aðgangskortum!
Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS
SKÓLANEMAR: 25% afsláttur
gegn framvísun skírteinis!
NÝTT Í BÍÓ PARADÍS!
SAGA SVO
ÓTRÚLEG AÐ
HÚN HLÝTUR
AÐ VERA
SÖNN!
BERNIE JACK BLACKMATTHEW McCONAUGHEYSHIRLEY MACLAINE
FRÁ 5. JÚLÍ:
BÍÓ- OG TÓNLISTAR-
UPPLIFUN SUMARSINS!
GLASTONBURY
THE MOVIE
Þ essi hugmynd kemur náttúr-lega frá Halldóri Guðmunds-syni, nýja forstjóranum.
Hann var með skálann í Frankfurt
þar sem hann vakti gríðarlega
lukku og við höfum eiginlega verið
rukkuð um þennan skála síðan þá,“
segir Helga Thors, markaðsstjóri
Hörpu.
Í skálanum er sýnd 360 gráðu
kvikmynd, sem Sagafilm fram-
leiddi, þar sem veggir og loft
mynda sjónræna heild. Myndin,
sem er 15 mínútur að lengd, sýnir
Ísland í öllum sínum fjölbreytileika.
Myndskeiðum frá náttúru og borg
er varpað á fjórar hliðar og loft
skálans sem saman mynda tening
um gesti skálans. „Myndin er tekin
í fimm áttir og það sem gerir hana
svo sérstaka er að það er eins og
þú standir inni í miðri bíómynd og
er mjög sérstök upplifun,“ segir
Helga.
„Ég var hjá Sagafilm þegar þeir
settu upp skálann í Frankfurt
þannig að við Halldór unnum það
verkefni mikið saman. Þegar hann
byrjar hér sem forstjóri Hörpu
var það fyrsta sem hann gerði að
fá Expo-skálann hérna inn. Við
Halldór vorum í millitíðinni búin
að skoða hvort við ættum að stilla
skálanum upp í Listasafni Reykja-
víkur eða hvort við gætum komið
honum inn í eitthvert annað hús-
næði til þess að leyfa Íslendingum
að upplifa þetta. Nú hafa um þrjár
milljónir manns séð skálann og þar
af eru aðeins örfáir Íslendingar.“
Ný tækni, þróuð af Sagafilm, var
notuð við upptökur. Fimm sam-
tengdar tökuvélar festu landið
á filmu, frá lofti, láði og legi og
útkoman er kvikmyndaupplifun
sem aldrei áður hefur sést á Íslandi.
Markmið myndarinnar er að skapa
einfalda og áhrifaríka undraveröld
sem fær gesti til að nema staðar,
draga djúpt að sér andann og upplifa
Ísland á nýjan hátt. Veggir og loft
mynda sjónræna, lifandi heild og
mannlíf Íslands er speglað í sterkum
tengslum við frumkrafta náttúr-
unnar. Tónlistin við kvikmyndina er
eftir Hilmar Örn Hilmarsson og er
órjúfanlegur hluti verksins alls.
Ísland beint í æð
– úr öllum áttum
Meginhluti íslenska skálans, sem vakti mikla lukku á Heimssýningunni í Sjanghæ árið 2010 og
ekki síður á Bókamessunni í Frankfurt í fyrra, hefur verið opnaður almenningi í Silfurbergi
Hörpu. Þar getur fólk nú stigið inn í alíslenskan töfraheim með því að ganga inn í tening þar sem
kvikmynd er varpað á veggi og loft allt umhverfis gesti þannig að íslensk náttúra umvefur þá.
Halldór Guðmundsson hafði veg og vanda að Íslandskynningunni í Frankfurt og lét það verða sitt
fyrsta verk þegar hann tók við sem forstjóri Hörpu að fá skálann þar inn.
52 dægurmál Helgin 29. júní-1. júlí 2012