Fjarðarpósturinn - 20.09.2007, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. september 2007
Bikarmeistaramót Skotíþrótta -
sam bands Íslands fór fram í
norðan kalda hjá Skotíþrótta -
félagi Suðurlands sunnudaginn
16. september. Fyrir mótið voru
þeir Sigurþór Jóhannesson og
Bjarni Viðar Jónsson, báðir í SÍH
efstir og jafnir með 44 stig. Lítil
von var fyrir aðra keppendur að
sælast í bikarinn því næsti maður
Gunnar Gunnarsson frá SFS var
með 36 stig og Guðmann Jónas -
son frá Markviss með 32 stig.
Sigurþór hafði titil að verja því
hann var Bikarmeistari 2005 og
2006 og gat því unnið titilinn í
þriðja sinn í röð. Enda kom það á
daginn að hann ætlaði ekki að
gefa sinn hlut og var sjö dúfum
yfir Bjarna fyrir úrslitahringinn.
Bjarni var það langt á eftir að
hann átti enga von um að snúa
málum sér í hag á síðustu stundu.
Sigurþór Jóhannesson er því
Bikarmeistari STÍ þriðja árið í
röð.
Skotíþróttafélag Hafnar fjarð ar
hefur því endurtekið leik inn frá
því í fyrra og unnið alla titla sem
í boði eru í íþróttinni. Bikar -
meist ara, Íslandsmeistara karla,
Íslands meistara unglinga og Ís -
lands meistara í sveita keppni.
Sigþór bikarmeistari
þriðja árið í röð
Sigurþór Jóhannesson, SÍH, bikarmeistari 2007.
Nýstofnaður kór við Hafnar -
fjarða rkirkju, A Cappella, kemur
fram við guðsþjónustu í fyrsta
sinn á sunnudaginn og hefst
guðs þjónustan kl. 11. Kórstjóri
er Guðmundur Sigurðs son sem
jafnframt er kantor kirkjunnar.
Guðs þjón ustan verður í Há -
sölum Strandbergs vegna við -
gerða á kirkjuskipinu. Prestur er
Þórhallur Heimisson.
Við guðsþjónustuna mun kór -
inn leiða safnaðarsöng en auk
þess flytja eftirfarandi kórverk
án undirleiks eftir predikun.
Flytur kórinn Haustvísur til
Máríu, lag eftir Atli Heimir
Sveinsson og ljóð eftir Einar
Ólafur Sveinsson. Þá syngur
kórinn Grüss Gott sem er þýskt
þjóðlag og þjóðvísa í útsetningu
Heinrich Spitta.
Allir eru hjartanlega velkomnir
til að hlýða á kórinn og taka þátt
í helgihaldinu.
Nýr kór við
Hafnarfjarðarkirkju
Syngur í guðsþjónusta kl. 11 á sunnudaginn
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Góður árangur hefur náðst í að
jafna launamun kynjanna hjá
starfsmönnum Hafnarfjarðar -
bæjar en munur á dagvinnu -
launum karla og kvenna mælist
ekki. Þegar litið er til starfs -
grein ar, aldurs, starfsaldurs og
fjölda yfirvinnustunda mælast
heildar laun kvenna nú 6% lægri
en heildarlaun karla. Ef kennarar
eru teknir úr greiningunni þá eru
heildarlaun kvenna nú 9% lægri
en heildarlaun karla.
Hafnarfjarðarbær lét gera
launa könnun meðal starfsmanna
bæjar ins. Greindar voru launa -
upplýsingar fyrir 1.325 starfs -
menn Hafnarfjarðarbæjar sam -
kvæmt launabókahaldi mars
2007. Helstu niðurstöður könn -
unarinnar eru þær að munur á
heildar launum karla og kvenna
hefur minnkað frá árinu 2001 hjá
Hafnarfjarðarbæ að teknu tilliti
til starfsgreinar, aldurs, starfs -
aldurs og fjölda yfirvinnustunda.
Laun kvenna mælast nú 6%
lægri en laun karla en mældust
8% lægri 2001. Ef kennarar eru
teknir úr greiningunni þá eru
laun kvenna nú 9% lægri en laun
karla en mældust 12% lægri
2001. Munur á dagvinnulaunum
hefur að auki minnkað frá árinu
2001. Laun kvenna mælast nú
0,6% lægri en laun karla í stað
6% 2001 og án kennara mælast
laun kvenna nú 0,8% hærri en
laun karla en voru 8% lægri 2001.
Lýðræðis- og jafnréttisnefnd
og bæjarráð Hafnarfjarðar
fagna þeim árangri sem náðst
hefur í baráttunni við kynb und -
inn launamun hjá Hafnar fjarðar -
bæ. Þó er lögð áhersla á að áfram
verði unnið með markvissum
hætti að því markmiði að útrýma
kyn bundnum launamun hjá
bænum með öllu.
Kynbundinn launamunur
minnkar hjá Hafnarfjarðarbæ
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Konur hjá Hafnarfjarðarbæ fá nú sömu dagvinnulaun og karlar.