Fjarðarpósturinn - 20.09.2007, Page 16
Fjarðarpóstinum hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Einari Ágústssyni hjá BSH:
„Nafn BSH hefur um nokkurt
skeið verið misnotað gróflega af
nýrri leigubílastöð en málavextir
eru þeir að Ný-ung seldi BSH til
NL í mars 2007.
Þann 1. maí 2007 var stofnað
fyrirtækið Aðalstöðin-BSH sem
ýmsir fyrr um bílstjórar BSH
stóðu að. Fyrirtækjaskrá svipti
nýja fyrirtækið BSH nafninu en
engu að síður var haldið áfram
fram í september 2007 að aug -
lýsa í Fjarðarpóstinum undir
heitinu BSH. Þetta var gert til að
nýta viðskiptavild BSH með
ólög mætum hætti. Neytenda -
stofa hefur úrskurðað að Aðal -
stöðinni ehf. sé óheimilt að nota
heitið Aðalstöðin en fyrirtækið
heldur áfram að nota heitið í aug -
lýsingum sínum í Fjarðar póst -
inum. BSH og Aðalbílar gera
alvarlegar athugasemdir við
auglýsingar sem nota heitið
BSH, heitið Aðalstöðin og merki
Aðalbíla.“
Athugasemd ritstjóra:
Aðalstöðin ehf. tók stafina
BSH út úr auglýsingu sinni hér í
blaðinu í síðustu viku. Aðal -
stöðin hefur áfrýjað úrskurði
Neytendastofu og mun blaðið
ekki gera athugasemd við inni -
hald auglýsingarinnar á meðan
niðurstaða liggur ekki fyrir.
„Leigubílamálið“
Athugasemd
Úrslit:
Knattspyrna
Haukar - ÍR: 3-3
Afturelding - ÍH: 0-2
Breiðablik - FH: 4-3
Handbolti
Konur:
Fram - Haukar: 28-26
FH - Stjarnan: 13-39
Karlar:
Valur - Haukar: 20-23
Næstu leikir:
Knattspyrna
23. sept. kl. 17, Kaplakriki
FH - Valur
(úrvalsdeild karla)
Handbolti
22. sept. kl. 16, Ásvellir
Haukar - ÍBV
(úrvalsdeild karla)
23. sept. kl. 16, Akureyri
Akureyri - FH
(úrvalsdeild kvenna)
66. sept. kl. 20, Kaplakriki
FH - HK
(úrvalsdeild kvenna)
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. september 2007
Óska eftir að leigja 4-5 herb. íbúð
í 3-4 mánuði. Íbúðin þyrfti að
afhendast í nóv. nk. Nánari
upplýsingar í síma 820 1708
(Elísabet)
2-4 herbergja íbúð óskast fyrir
reglusama konu. Er með ljúfan
hund hjá sér. Uppl. í s. 552 8222,
662 3196.
27 ára tæknifræðingur óskar eftir
2 herb. íbúð í Hafnarfirði. Reykir
ekki og er mjög reglusamur. Hægt
er að hafa samband í síma
660 0301 eða tk@rafteikning.is
Á Hjallabraut: 2-3ja herbergja (1
herbergi gluggalaust) kjallaraíbúð í
raðhúsi með sér inngangi til leigu.
Uppl. í síma 825 8205
Bíl- og húslyklar merktir K
töpuðust fyrir utan Skipalón.
Finnandi gefi sig vinsamlegast fram
í s. 561 8032 og 822 4599.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
Tapað - fundið
Húsnæði óskast
Húsnæði í boði
Eldsneytisverð
19. september 2007 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 125,9 124,9
Atlantsolía, Suðurhö. 125,9 124,9
Orkan, Óseyrarbraut 125,6 124,2
ÓB, Fjarðarkaup 125,7 124,4
ÓB, Melabraut 125,7 124,4
Skeljungur, Rvk.vegi 128,0 126,0
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð u olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Íþróttir
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Rakel 869 7090 • Sindri 861 7080 • www.kolbrunrakel.is
Næring + Hreyfing + Fræðsla = Árangur
Sjálfstæðir dreifingaraðilar
Barmmerki við öll tækifæri
www.barmmerki.tk
Frábær árangur með Herbalife
Ráðgjöf og eftirfylgni. Fríar prufur
Þyngdarstjórnun - Aukin orka
Gerður Hannesdóttir sjálfst. dreifingaraðili.
865 4052 • 565 1045 • ghmg@simnet.is
HERBALIFE
Áður auglýstur aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins Fram í Hafnarfirði,
verður haldinn þriðjudaginn 25. september nk. kl. 20
í Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu.
Dagskrá fundarins
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins Fram.
Aðalfundur Fram
Íþróttaskóli Badmintonfélags
Hafnarfjarðar er starfræktur á
sunnudögum í Íþróttahúsinu við
Strandgötu. Íþróttaskólinn er
námskeið fyrir börn á aldrinum
3-5 ára og foreldra þeirra.
Mest áhersla er lögð á leiki og
þrautir sem efla hreyfiþroska
barna að sögn Önnu Lilju Sig -
urðardóttur þjálfara hjá BH.
Þetta er mjög almenn hreyfi -
þjálf un en einnig fá börn og for -
eldr ar að kynnast aðal íþrótta -
grein félagsins, badminton.
Hverju barni þarf að fylgja einn
fullorðinn.
Námskeiðið er 10 tímar, á
sunnudögum kl. 14.30 - 15.20 og
endar í byrjun desember.
Hafnarfjarðarbær niðurgreiðir
námskeiðið fyrir öll þau börn
sem eru með lögheimili í
Hafnarfirði og kostar nám skeið -
ið 1000 kr. en fullt verð er annars
9.000 kr.
Skráning fer fram á netfanginu
bhbadminton@hotmail.com og
hjá Önnu Lilju í síma 868 6361.
Einnig má mæta og skrá sig á
staðnum.
Hjá Badmintonfélagi Hafnar -
fjarðar starfa vel menntaðir
þjálfarar og aðstoðarþjálfarar.
Allir þjálfarar eru eldri en 20 ára.
Nánari upplýsingar um Bad -
mintonfélag Hafnarfjarðar má
finna á heimasíðunni http:// -
bh.sidan.is.
BH rekur íþróttaskóla fyrir 3-5
ára börn og foreldra þeirra
Fataviðgerðir og
fatabreytingar
Tek að mér alhliða
fataviðgerðir og breytingar.
Buxnastyttingar, lásaviðgerðir
og margt fleira.
Yfir 20 ára reynsla.
Er á Völlunum.
Uppl gefur Jóhanna
í síma 899 4642.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Enskumælandi par,óskar eftir
2ja herbergja íbúð sem allra fyrst.
Sími 892 4391, Cristy.
Um þessar mundir eru að
hefjast nýtt námskeið á vegum
Fullorðinsfræðslu Hafnarfjarðar -
kirkju undir heitinu „Hvað viltu
mér Kristur?“.
Á námskeiðinu verður leitað
svara við ýmsum brenn andi
spurn ingum um mál efni sam -
tímans og kristinnar trúar. Trúar -
brögðin eru í sókn um víða ver -
öld, mikið er rætt um stöðu trúar -
bragð anna í heiminum í dag í
fjöl miðlum. En hversu mikið vit -
um við kristnir menn í raun um
okkar eigin trú og áhrif hennar
og boðskap í samtímanum? Um
það verður fjallað á þessu nýja
námskeiði.
Námskeiðið fer fram á
fimmtu dagskvöldum og leið -
bein andi er sr. Þórhallur Heimis -
son. Auk hans munu fjölmargir
gestir koma í heimsókn og taka
þátt í umræðum. Verða þeir kynnt -
ir nánar hverju sinni. Að gangur er
ókeypis og skráning er á
thorhallur.heimisson@kirkjan.is
eða í síma 8917562.
Hvað viltu mér Kristur?
Nýtt námskeið í Hafnarfjarðarkirkju
Sr. Þórhallur Heimisson