Fjarðarpósturinn - 23.04.2008, Side 16
16 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 23. apríl 2008
FJARÐARPÓSTURINN OG SKÁTARNIR
Munum að flagga
fyrir nýju sumri!
Kenni á mótorhjól
létt bifhjól og bíl
Grunnskólar
Ágústa
ráðin
skólastjóri
Fræðsluráð samþykkti á
fundi sínum sl. mánudag ráðn -
ingu Ágústu Bárðardóttur ein -
róma fyrir sitt leyti í stöðu
skóla stjóra Hraunvallaskóla og
vísaði tillögunni til afgreiðslu
bæjarstjórnar. Ágústa hefur
verið settur skólastjóri Hraun -
vallaskóla í leyfi ráðins skóla -
stjóra sem nýlega hefur sagt
stöðu sinni lausri.
Sjö sækja um stöðu
aðstoðarskólastjóra
Sjö umsóknir bárust í stöðu
aðstoðarskólastjóra Öldu túns -
skóla:
Bogi Ragnarsson, Efemía
Gísladóttir, Finnbogi Sigurðs -
son, Guðfinna Emma Sveins -
dóttir, Guðrún G. Halldórs -
dóttir, Herþrúður Ólafsdóttir
og Valdimar Víðisson.
Upplýsingar í síma
896 1030
Birgir Bjarnason
ökukennari
Mikil hætta hefur skapast af
sinubrunum í nágrenni byggðar í
Hafnarfirði svo ekki sé minnst á
óþægindi vegn reyks sem lagst
hefur yfir hluta byggðar. Fólk
hefur þurft að flýja hús sín, svo
mikill var reykurinn um tíma.
Flest útköllin á höfuð borgar -
svæðinu hafa verið í Hafnarfirði
að undanförnu og telur lögreglan
brýnt að upplýsa þá sem kveikja
sinu, þvílík hætta sem slíkur
bruni getur skapað. Mjög auðvelt
er að missa tök á eldinum og
enginn vill verða við því að
missa eigur sínar vegna þess
einhver var að leika sér með eld.
Þurr fallin lúpína brennur mjög
hratt og því mjög varasamt að
leika sér að því að kveikja í
henni.
Á sunnudagskvöldið var
slökkviliðið kallað út 5 sinnum,
tvisvar að flóttamannaveginum
nokkuð ofan við Lindarberg, að
Klausturtúninu, að Hvaleyrar -
vatni og að Híðarbergi. Alls stað -
ar logaði sinueldur og talið er
víst að kveikt hafi verið í á öllum
stöðunum.
Á mánudaginn var slökkvi lið -
ið kallað út um kl. 13 vegna
sinubruna á Norðlingahálsi, ofan
við Lindarbergið en á því svæði
hafði verið kveikt í kvöldið áður.
Þrátt fyrir þá miklu hættu sem
skapaðist virðist sem brennu -
vargarnir hafi ekki skynjað
hættuna og aftur var kveikt í upp
úr miðnætti á mánudag á svip -
uðum slóðum.
Hefur slökkviliðið miklar
áhyggjur af þessum íkveikjum
enda geti það hægt á við -
bragðstíma slökkviliðsins ef
eldur kemur upp í t.d. íbúðar -
húsi. Það hús gæti verið heimili
brennu vargsins sem vart vill að
liðið sé þá bundið við sinubruna.
Stórhættulegur sinubruni
Fólk varði hús sín með garðslöngum í stórhættu í reykjamekkinum
Eldurinn var kominn ískyggilega nálægt íbúðarhúsum við Lindarbergið.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
©
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
. –
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n
08
04
Allar helgar ..
.. eru tertuhelgar!
Allar tertur
á 1090 kr.
föstudaga - laugardaga - sunnudagaTjarnarvöllum 15 (milli Bónus og Europris)
Íbúar lögðu sig í stórhættu við slökkvistarfið.
Íbúar fengu lánuð verkfæri hjá
slökkviliðinu og aðstoðuðu við
að slökkva eldinn.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n