Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Síða 3
Það er algengt að því sé haldið
fram, að það skipti engu máli
hvaða einstaklingar eða flokkar
séu kosnir á þing eða í sveitar -
stjórn. Stundum er sagt að það sé
„sami rass inn undir
þeim öllum“. En er
það svo?
Það er misjafnt
hvern ig stjórn mála -
menn líta á hlutverk
sitt. Sumir líta þannig
á að þeir séu kosnir til
að stjórna fólki. Aðrir
líta þannig á að þeir
séu kjörnir til að
stjórna með fólki og
fyrir fólk.
Líklega hefur hvergi verið
gengið lengra á undanförnum
árum í að að stjórna með fólki,
en í Hafnarfirði. Hér hafa verið
þróaðar aðferðir sem tryggja að
íbúarnir geti gripið í taumana sé
þeim ofboðið. Í ágreinings mál -
um hefur verið leitast við að ná
sátt með samráði við þá sem eiga
hagsmuna að gæta.
Ekki allir – ekki alltaf
Sátt og samráð hafa ekki alltaf
ráðið för – og gera það ekki alls
staðar í dag. Við þurf um ekki að
fara lengra aftur en til áranna
fyrir 2002, þegar und ir skriftir
þúsunda Hafn firð inga vegna
skipu lagsmála á Hörðu völl um
voru hunds aðar. Í dag lítur út
fyrir að heil brigðis ráðherra,
Sjálf stæðis mað urinn Guð laugur
Þór Þórð ar son ætli að hundsa
vilja þúsunda Hafn firðinga, sem
birtist með skýr um
hætti á borgara fundi í
íþrótta húsinu við
Strand götu sl. laug -
ardag – og mun birtast
í þúsundum undir -
skrifta undir kjörorð -
inu Stöndum vörð um
St. Jósefs spítala.
Á síðasta bæjar -
stjórnarfundi sam -
þykktu allir bæjar -
fulltrúar að óska eftir viðræðum
við heil brigðis ráðuneytið um
fram tíðar fyrirkomulag heil -
brigðismála í Hafnarfirði. Þar er
sérstaklega bent á heilsugæsluna,
Sól vang og St. Jósefsspítala.
Bæjarstjórn er þeirrar skoðunar
að fjalla beri um framtíð þessara
stofnana í samhengi og færa
ákvörðunar vald ið heim í hérað,
eftir því sem kostur er, enda um
dæmigerða nærþjónustu að
ræða.
Sú bæjarstjórn sem nú situr er
samstiga í því að standa vörð um
Hafnarfjörð og grunnstoðirnar í
samfélaginu – í sátt og samráði.
Höfundur er formaður
fjölskylduráðs og bæjarráðs.
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 15. janúar 2009
www.fjardarposturinn.is
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 18. janúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
Kór og hljómsveit Fríkirkjunnar
leiðir sönginn,
Verið velkomin
í Fríkirkjuna!
www.frikirkja.is
Mótmæla
yfirlýsingu
Stjórn Félags eldri borgara í
Hafnarfirði mótmælir harðlega
yfirlýsingu Helga K. Hjálms -
sonar formanns Lands sam -
bands eldri borgara sem fram
kemur í Fréttablaðinu laugar -
daginn 10. janúar 2009. Það er
alvarlegt að koma fram með
slíka yfirlýsingu í nafni LEB.
Hermann
Ragnar í FH
Hermann Ragnar Björnsson
hefur gert samning við hand -
knattleiksdeild FH til ársins
2010. Hermann er alinn upp í
Stjörnunni og hefur leikið vel
með Garðbæingum það sem af
er móti. Hermann er 21 árs
bráðefnileg örvhent skytta.
Sátt og samráð
– stöndum vörð!
Guðmundur Rúnar
Árnason
Aðalfundarboð
Aðalfundur Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar
Verður haldinn laugardaginn 14. febrúar kl. 14.
Í félagsheimilinu að Flatahrauni 29.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Kaffihlé
Að loknum fundi flytur Árni Ísaksson forstöðu maður
Lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu erindi um veiðigæði
á Íslandi og svarar fyrirspurnum.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Ath! Framboð til stjórnarkjörs skulu berast skrifstofu
félagsins skriflega fyrir 31. janúar.
Stjórn SVH
www.svh.is
Fiskbúðin Lækj
ar
gö
tu
220 Hafnarfirði S-56
554
88
220 HafnarfirðiLækjargötu 34bFiskbúðin Sími-5655488
FISKBOLLUR
PLOKKFISKUR
ÝSA
RÚGBRAUÐ
FISKILASAGNE
Félag eldri borgara
opnar skrifstofu
Félag eldri borgara í Hafnarfirði hefur opnað skrifstofu
í Hraunseli, Flatahrauni 3 og er fastur viðverutími
mánudaga kl. 13-15 og föstudaga kl. 10-12.
Eldri borgarar eru hvattir til að nýta sér þjónustuna
og leita upplýsinga og ráða.
Félag eldri borgara í Hafnarfirði • Flatahrauni 3 • sími 555 6142
Kór Hrafnistu í Hafnarfirði var
stofnaður árið 2000 og sá elsti í
hópnum, Páll Þorleifsson er
elstur, aðeins 99 ára gamall.
Meðalaldurinn er 87 ár og eru
félagar nú um 20, karlar og
konur. Frá upphafi hefur stjórn -
andi verið Böðvar Magnússon.
Kórinn hefur heimsótt margar
stofnanir auk ferða út á lands -
byggðina og í dag heldur hóp -
urinn í í sína hundruðustu kór -
ferð þegar sambýli fólks með
Alzheimers að Logafold 56 í
Reykjavík verður heimsótt.
Áheyrendur kórsins eru af
öllum aldri enda hefur kórinn
sungið víða en elsti áheyrandinn
þegar Fjarðarpóstinn bara að
garði á þriðjudag var á 102. ári.
Eitt hundrað kórferðir
Sá elsti í kórnum er 99 ára og meðalaldurinn er 87 ár
Hluti kórsins ásamt Böðvari. Myndir Erlu Ásmundsdóttir í bakgrunn.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n