Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Blaðsíða 12
Tvívegis
brotist inn í
skátaheimilið
Tækjabúnaði stolið
Tvívegis var brotist inn í
skátaheimilið Hraunbyrgi við
Víðistaðtún. Aðfararnótt laug -
ar dags var hljóðkerfi stolið,
læstum skáp og bassaboxum.
Aðfararnótt sunnudags var
brotist inn, innihurð sparkað
upp og skjávarpa, sem festur
var hátt uppi í lofti, stolið. Þá
var reynt að brjótast inn í
minjageymslu skátafélagsins.
Tjónið er tilfinnanlegt og
hefur öryggiskerfi hússins
verið endurskoðað. Ef einhver
hefur orðið var við manna -
ferðir við Hraunbyrgi á þessum
tímum er viðkomandi beðinn
um að hafa samband við lög -
reglu.
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 15. janúar 2009
Komdu á æfingu!
www.haukar.is
Árangur með
Herbalife
Aukin orka -
Betri líðan
Gerður Hannesdóttir
gsm 865-4052
ghmg@internet.is
Pantaðu frían
prufupakka!
Hið árlega Actavis körfubolta -
mót sem körfuknattleiksdeild
Hauka stendur fyrir var haldið
um helgina og hefur aldrei verið
fjölmennara.
Alls kepptu um 140 lið frá 85
félögum. Keppendur voru á
aldrinum 6-11 ára, drengir og
stúlkur og var gleðin í fyrirrúmi
hjá þeim öllum. Þó var barist
eins og á venjulegu móti og allir
gerðu sitt besta, sumir nýbyrjaðir
að æfa og aðrir orðnir nokkuð
vanir. Stig eru ekki talin og
einungis 4 leikmenn inná frá
hvoru liði og svigrúm og leik -
gleði því meiri.
Aðstandendur mótsins voru
himinlifandi eftir mótið enda
hafði það tekist mjög vel í alla
staði.
Um 800 krakkar á körfuboltamóti
Guðbjörg Norðfjörð, íþróttastjóri Hauka aðstoðar kátar stúlkur.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Sýning á Hrafnistu
Sýning á málverkum Erlu Ásmundsdóttur var opnuð í Menningar -
salnum á Hrafnistu Hafnarfirði. Þetta er gestasýning frá Gerðubergi
sem er hluti af samstarfi Hrafnistu og Gerðubergs í Reykjavík.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n