Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 15. janúar 2009
Evrópufundir
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Taktu þátt í að móta framtíðina!
í kvöld, fimmtudaginn 15. janúar kl. 20
- Stutt og almenn söguleg yfirferð yfir þróun Evrópusambandsins.
Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, stjórnmálafræðingur.
- Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga mun fjalla um stöðu
sveitarfélaganna og áhrif inngöngu Íslands í ESB á sveitarfélögin.
Fimmtudaginn 22. janúar kl. 20
- Áhrif inngöngu Íslands í ESB á sjávarútveg - samningsmarkmið Íslands. Örvar Már Marteinsson,
útgerðarmaður í Ólafsvík og miðstjórnarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins fjallar um málið.
- Áhrif inngöngu Íslands í ESB á landbúnaðargeirann - samningsmarkmið Íslands.
Jón B. Lorange frá Bændasamtökunum fjallar um málið.
Fundirnir eru haldnir í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins að Norðurbakka 1a og eru öllum opnir.
Landsmálafélagið Fram, félag sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.
www.evropunefnd.is
Nú er það komið fram sem ég
óttaðist mest, það er ekki öllum
gefið að virða niðurstöður lýð -
ræðis legra kosninga. Stuðnings -
menn stækkunar álvers ins í
Straumsvík hafa lagt fram lista sem
beiðni um nýjar kosn -
ingar um stækkun ál -
vers ins. Þetta er að mínu
mati ekkert annað en
virð ingarleysi við niður -
stöðu fyrri kosningar.
Sjálfur tók ég virkan þátt
í því ferli sem varð til
þess að kosið var um
stækk un álversins. Var
formaður samninga -
nefndar bæjar ins við
Alcan þar sem samið var um
forsendur deili skipulagsins svo
hægt væri að ná ,,sátt“ um niður -
stöðu kosninganna sama hver hún
yrði. Ég eins og aðrir Hafnfirðingar
gerði og geri ráð fyrir að sætta mig
við niður stöðu kosninganna.
Fólk sem hefur skrifað undir list -
ann núna verður að gera sér grein
fyrir því að ef stækkunin hefði
verið samþykkt hefði deili skipu lag -
ið strax verið samþykkt af skipu -
lags- og byggingarráði og bæjar -
stjórn. Þá hefðu þeir sem voru á
móti stækkuninni ekki haft neinn
möguleika til að kjósa aftur. Bíðið
nú aðeins við, er þá lýðræðislegt
vald þeirra sem voru hlynntir
stækk uninni meira heldur en hinna?
Er bæjarstjórn ekki jafn bundin nú
til að hlýta niðurstöðunni og þá? Á
nú að notfæra sér það að hægt sé að
fá mál í kosningu ef 25 % bæjarbúa
vilja það? Það er góð regla til að
tryggja aðkomu bæjarbúa að mál -
um en meingallað að því leyti að
ekkert er fjallað um hvað eigi að
gera í þeim tilfellum þegar búið er
að kjósa um ákveðin mál.
En má fólk ekki
skipta um skoðun? Jú
vissu lega það er mikil -
vægur réttur. En þá
getum við kosið um
þetta tiltekna mál til
eilífðarnóns því hver
segir að ef hugsanleg
kosning færi ,,já" fólki í
vil að „nei“ fólkið sætti
sig við það. Það safnar
þá bara undirskriftum
og gerir það jafnvel á
kosningadaginn sjálfan og heimtar
svo nýja kosningu ef það tapar.
Lýðræðið í þessu máli hlýtur að
virka jafnt fyrir alla, það er ekki
hægt að breyta reglunum í miðju
hlaupi.
Stækkun álversins er ekki á
dagskrá. Það liggur ekki fyrir nein
beiðni frá RioTinto-Alcan um
stækkun. Um hvað á þá að kjósa?
Ætlar bæjarstjórn sem skuldbatt sig
til að hlýta niðurstöðu kosninganna
að leggja fram sömu tillögu. Fyrir
hönd hvers ? Ætlar RioTinto-Alcan
að leggja fram sömu tillöguna? Það
er búið að kjósa um tillöguna með
skuldbindandi hætti. Vitinn er
merki Hafnarfjarðar, látum hann
loga að fullu frekar en að hálf kuln -
uð birta hans lýsi aðeins upp mis -
klíð.
Sjaldan hafa Hafnfirðingar mátt
vera jafn stoltir af sínu bæjarfélagi
og þegar ákveðið var að kjósa um
stækkun álversins. Já stoltir af því
að þora að takast á með lýðræðis -
legum hætti, fyrst bæjarfélaga, um
stórt umhverfismál. Í mínum huga
megum við líka vera jafn stolt af
því að þora að ,,vinna“ og ,,tapa“.
Verði það niðurstaðan að bera upp
sömu eða svipaða tillögu aftur, í
krafti undirskriftanna, þá verður
lýðræðið dregið niður á lægra plan
og stoltið hverfur. Það sem verra er
að erfiðara verður að vinna þeirri
hugmynd fylgi, sem ég styð
eindreigið, að auka verulega þátt -
töku almennings í ákvarðana tök -
um. Við verðum að skilja takmörk
lýðræðisins um að meirihlutinn á
ekki að kúga minnihlutann og
minnihlutinn þá ekki meirihlutann.
Ef að kosningar hætta að hafa
merk ingu og hinar og þessar valda -
klíkur fá sitt fram sama hvað, þá fer
fyrir okkur í Hafnarfirði eins og það
fór fyrir okkar spillta Íslandi og
ekki sér fyrir endan á.
Erlendir og innlendir auðhringir
hafa sýnt okkur svo ekki verður um
villst að þeir eru ekki í góð gerða -
starfsemi á Íslandi. Nú þegar góð -
ærið er ekki lengur eru álver lögð
niður í stórum stíl og fólk missir
vinn una. Það er heimskulegt af
okk ur Hafnfirðingum, við þær að -
stæður sem nú ríkja, að fara að
berjast innbyrðis og gefa auð -
hringum innlendum sem erlendum
tækifæri til að nota slæmt efna hags -
ástand til að deila og drottna.
Samningsstaða okkar er ekki upp á
marga fiska eins og stendur. Við
eigum að hugsa um að nota af -
rakstur auðlinda okkar þ.m.t. orku -
auðlinda til að gefa sem mestan arð
innanlands. Auka ágóða hverrar
orkueiningar sem við nýtum eins
og hægt er með því að fullvinna
vörur innanlands t.d. úr áli.
Það samstarf sem ég hef átt við
starfmenn álversins hef ég ekkert
annað en gott um að segja og stjórn
álversins og starfsmenn þess eiga
heiður skilið fyrir margar umbætur
í umhverfismálum undanfarin ár.
Það breytir hins vegar engu um
niðurstöðu lýðræðislegra kosninga
og engu um eðli starfseminnar og
umfang, en um það verður ekki
fjallað frekar hér.
Í ljósi síðustu atburða í okkar
þjóðfélagi væri ástæða til að fjalla
ítarlega um hver áhrif stórfram -
kvæmda hafa verið á verðbólgu
þ.a.l. á verðtryggingu, á skuldir
heim ila, á raforkuverð og á skuldir
vegna virkjanaframkvæmda. Einn -
ig er ástæða til að fjalla ítarlega um
afstöðu stéttarfélaga til verð trygg -
ingar og afskiptasemi verka lýð -
hreyf ingarinnar af umdeildum
verð bólgukvetjandi stórfram -
kvæmd um, t.d. stuðning stjórnar
ASÍ við Kárahnjúka. Stuðning sem
félagsmenn hafa ekkert haft um að
segja og án tillits til heildarafkomu
félagsmanna. Nú er t.d. að koma í
ljós að þessar framkvæmdir í góð -
æri voru m.a. upphaf þeirrar
vitleysu sem nú dynur yfir okkur.
Þessi umræða verður því miður líka
að bíða betri tíma en það má ekki
horfa framhjá þessum þáttum í
blindni eins og margir hafa gert. Ef
Virðingarleysi við lýðræðið?
Trausti
Baldursson
ekki verður tekið á stjórnarfarslegri
og fjárhagslegri spillingu á næstur
misserum, þ.m.t. nýtingu náttúru -
auðlinda, mun íslenskt þjóðfélag
skipt ast enn frekar í tvær fylkingar.
En að lokum gleðilegt ár til okkar
allra bæði jáara og neiara.
Höfundur er varaformaður
skipulags- og byggingarráðs
Hafnar fjarðar fyrir Sam -
fylkinguna.
Fram -
kvæmdir
stöðvaðar
Framkvæmdaráð Hafnar -
fjarðar bæjar samþykkti á fundi
sínum á mánudag að opnun
útboðs á leikskólanum Lilju -
völlum verði frestað um
óákveð inn tíma og að fram -
kvæmdir við grunn- og leik -
skólann Bjarkavöllum verði
stöðvaðar.
Á sama fundi var starfshópur
boðaður til yfirferðar á tillög -
um að grunn- og tónlistarskóla
á Völlum en tilboð voru opnuð
á þriðjudaginn.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n