Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Síða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 15. janúar 2009
Með Evrópuumræðu Sjálf -
stæðisflokksins, stendur yfir ein -
hver umfangsmesta og lýð -
ræðislegasta umræða sem farið
hefur fram í jafn stórum félaga -
samtökum á Íslandi.
Óskað er eftir þátttöku
og samráði sem flestra
og hafa undirtektirnar
verið gríðarlega góðar.
Grasrótin í Sjálf stæð -
is flokknum hefur sýnt
það og sannað að hún
er öflugri en nokkru
sinni fyrr.
Evrópunefnd Sjálf -
stæðisflokksins, sem
hóf formlega starf sitt þ.
12.desember sl., hefur haldið
undirbúningsfundi í 7 undir -
nefnd um um stöðu Íslands
gagnvart Evrópusambandinu,
ríkjum Evrópu og valkostum
Íslands í alþjóðasamstarfinu.
Nefndin heldur úti mjög öflugri
heimasíðu á www.evropu nefnd.is
þar sem allir geta fræðst og
spurst fyrir. Nú er hafin fundar -
her ferð Evrópunefndarinnar en
haldnir verða 28 opnir
fundir víðsvegar um
landið. Kristján Þór
Júlíus son formaður
nefndar innar kom
hing að í Hafnarfjörð
sl. sunnudag og kynnti
starf nefndarinnar,
svar aði fyrirspurnum
og skrifaði hjá sér
ábendingar fundar -
gesta.
Nefndin mun skila af sér
skýrslu til landsfundar sem fram
fer dagana 29. jan. – 1. feb. nk.,
en fundurinn mun á grund velli
þeirrar skýrslu meta hvort
framtíð Íslands sé betur borgið
innan Evrópusambandsins en
utan þess.
Næstu tvö fimmtudagskvöld
verða fundir á vegum Sjálf -
stæðisflokksins í Hafnarfirði og
verða þeir öllum opnir. Í kvöld,
fimmtudaginn 15. janúar, verður
stutt og almenn söguleg yfirferð
yfir þróun Evrópusambandsins
auk þess sem Halldór Hall -
dórsson formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga mun fjalla
um stöðu sveitarfélaganna og
áhrif inngöngu Íslands í ESB á
sveitarfélögin. Fimmtudaginn
22. janúar munu fulltrúar út -
gerðar manna og landbúnaðarins
kynna og fara yfir sjónarmið
þessara tveggja grunn atvinnu -
vega á Íslandi.
Höfundur er stjórnarmaður í
Fram, félagi sjálfstæðismanna
í Hafnarfirði.
Evrópuumræða Sjálfstæðisflokksins
Sigurlaug Anna
Jóhannsdóttir
Á haustdögum vöknuðum við
Íslendingar upp í þjóðfélagi sem
var okkur flestum alls ókunnugt.
Stoðir þjóðfélagsins okkar
hrundu. Spari- og áhættufé ótal
margra fuðraði upp. Nú þegar frá
líður blasir við stöðnun í at vinnu -
lífi, sem vekur upp óöryggi um
nánustu framtíð okkar allra um
leið og það veikir undirstöður
vel ferðarkerfisins. Það er eins og
hyldýpi í ævintýramynd eftir
Spiel berg hafi opnast og gleypt
hér alla peninga þjóðarinnar, þeir
bara hurfu, en hvert?
Okkur er ráðlagt að spara, ríkið
þarf að spara, og við þær að -
stæður koma fram ýmsar hug -
myndir um hvar best sé að hefja
sparnaðinn bæði á heimilunum og
hjá hinu opinbera.
Heilbrigðiskerfið okkar hefur
þótt dýrt og verið mikið í um -
ræðunni alla tíð. Þar hafa stjórn -
mála menn og þeir sem að mála -
flokknum koma reynt að hagræða
eins og kostur er m.a. með sam -
einingu stofnana, flutnings þeirra
og svo framvegis.
Athygli hefur vakið á liðnum
áratugum, að þegar kemur að
sparn aði í heilbrigðisgeiranum
hefur St. Jósefsspítali í Hafnar -
firði verið ofarlega á blaði. Það
var síðast árið 1991, sem leggja
átti spítalann niður og var því
harð lega mótmælt þegar konur í
Banda lagi kvenna í bænum
gengu í hvert hús og fengu undir -
skriftir flestra bæjarbúa, að horfið
var frá þeirri ákvörðun.
Nú er bankað upp á aftur af
ríkisvaldinu og talað um að leggja
spítalann niður í núverandi mynd,
opna þar öldrunarþjónustu og
færa þá faglegu þekkingu sem
spítalinn hefur staðið fyrir suður
með sjó og til Reykja víkur.
Þessi ákvörðun hefur ekki verið
studd nein um rökum þar sem
hvorki liggur fyrir fjár -
hagslegur sparn aður né
hagræð ing.
Þetta er kjörein ing í
rekstri og stærð sjúkra -
húss, þar sem boðin er
fagleg lækna þjónusta í
fjölskylduvænu um -
hverfi. Þar eru
sjúklingar í nánu
sambandi við lækni
sinn og hjúkrunarfólk.
Hjúkrunarheimilið Sólvangur
var opnað árið 1953 og hefur
sinnt öldrunarþjónustu með sóma.
Þar hefur starfsfólk hugað vel að
mörgum sjúklingum í þröngu
húsnæði en nú hefur rúmum þar
verið fækkað og þar með að -
stæður fyrir sjúklinga og starfs -
fólk til hjúkrunar og umönnunar
stórbættar.
Öldrunarsamtökin Höfn hafa
byggt 68 íbúðir á Sólvangs torf -
unni, þar njóta íbúar nálægðar við
Sólvang enda valið þann kostinn
að búa í nálægð við hjúkrunar -
heimili. Þá er heilsugæslan í húsi
Sólvangs sem eykur enn frekar á
öryggi heimilismanna á svæðinu.
Undirrituð hefur alltaf staðið á
þeirri meiningu að Sólvangur og
Lækjarskóli væru góðir grannar
sem gætu blómstrað í návist hvors
annars. Sólvangur ætti möguleika
til fjölgunar herbergja með við -
bygg ingu í norður og eða Öldrun -
ar samtökin Höfn byggðu fleiri
íbúðir á svæðinu. Þá er sund laug
og íþróttahús við Lækjar skóla
sem nýst gæti ungum sem öldn -
um.
Sveitarfélögin hafa verið að
taka yfir þjón ustuþætti frá ríkinu á
liðnum árum, og er nær tækt að
nefna skól ana í því
dæmi en þeir hafa eflst
og dafnað í umsjá
sveitarfélaganna. Það
væri verðugt verk efni
fyrir bæjarstjórn Hafn -
ar fjarðar að skoða
mögu leikann á því að
gera þjónustusamning
við ríkið um rekstur
viðkomandi stofnana
og tryggja á þann hátt
áframhaldandi rekstur þeirra í
núverandi mynd.
Sú metnaðarfulla faglega þekk -
ing og starfsemi sem ríkir á St.
Jósefsspítala - Sólvangi er rómuð
af öllum landsmönnum. Það hef -
ur ekki farið fram hjá þeim sem
að stuðningsyfirlýsingu við St.
Jósefsspítala standa. Það er styrk -
ur í rekstri stofnana og fyrirtækja
að vera ekki of stór og að þar
starfi gott teymi, með þeim
framtíðarhugmyndum sem fyrir
liggja með rekstur spítalans er
verið að brjóta það upp og tæta í
sundur þannig að enginn fái notið
þess.
Það er svo merkilegt þegar litið
er yfir starfsemina og söguna, að
tíminn hefur ekki náð að vinna á
þeirri umhyggju og þeim góða
starfsanda sem stofnað var til við
opnun St. Jósefsspítala árið 1926.
Stöndum vörð um St. Jósefs -
spítala.
Höfundur er f.v. bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks.
St. Jósefsspítali
Kjöreining í rekstri og stærð sjúkrahúss
Valgerður
Sigurðardóttir
Nú líður að þorra og hefur
Fjörukráin verið vinsæll staður
til þorraáts enda einn þjóðlegasti
staður landsins. Þetta árið verður
ekkert gefið eftir, segir Jóhannes
Viðar Bjarnason, því hlaðborðið
kemur til með að svigna undan
þorrakræsingunum. Víkinga -
sveit in heldur uppi stemmningu
með söng og léttleika meðan á
átinu stendur. Hin vinsæla
hljóm sveit Paparnir leikur síðan
fyrir dansi allan þorrann sem er
fimm helgar að þessu sinni.
Stefán Páll matreiðir
Nýr matreiðslumaður, Stefán
Páll Jónsson, er tekinn við í eld -
húsinu. „Hann hefur unnið á virt -
um veitingastöðum hér heima og
erlendis, það er ekki nokkur vafi
á því að hann kemur til með að
verða sterkur hlekkur í okkar
annars ágætu keðju,“ segir
Jóhannes. „Birna Rut Viðars -
dóttir er komin í fast starf og
verður yfirþjónn.
Við byrjum nýja árið af krafti
og hefjast dansleikir að nýju nú
eftir jólin og væntum við þess að
Paparnir komi til með að létta
okkur lund í skammdeginu. Betri
hljómsveit er vart að finna þann -
ig að það kemur til með að verða
glatt á hjalla á Fjörukránni í
vetur,“ segir Jóhannes.
Tilboðsmatseðlar verða um
helgar og í miðri viku þar sem
verði verður haldið í lágmarki og
gæðum í hámarki.
Víkingahátíðin er í fullum
undirbúningi; hún byrjar 12. júní
og lýkur 17. júní og segist
Jóhannes eiga von á að yfir 200
víkingar verði á svæðinu meðan
á hátíðinni stendur, innlendir
sem erlendir.
Þorragestir á hótelinu
„Hótelpakkarnir okkar hafa
gengið vel og hefur fólk utan af
landi verið duglegt að nýta sér
þá. Það var nær upppantað á
hótelinu allar helgar í desember
og við eigum von á þó nokkrum
hópum sem eru á leið í þorrann
til okkar. Við lítum því björtum
augum fram á veginn með
bjartsýni og von í farteskinu,
ákveðin í að gera okkar besta og
vonandi verður nýja árið okkur
öllum farsælt,“ segir Jóhannes
Viðar, víghreifur að vanda.
Þorrinn og Víkingasveitin
Fjörukráin undirbýr hátíð á þorranum
Paparnir spila í Fjörukránni
Er Fjarðarpósturinn besti auglýsingamiðillinn fyrir Hafnarfjörð?
Hafnfirðingar lesa sitt blað og þar ná auglýsingar til lesendanna.
Þurfir þú að ná til Hafnfirðinga – Hafðu þá samband!
w w w . f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
auglýsingasími:
565 3066
auglysingar@fjardarposturinn.is