Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Page 9
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 15. janúar 2009
Fimleikar, klifur og taekwondo
Erum að bæta við nemendum í grunnhópa í
allar deildir.
Fimleikar fyrir fullorðna
Árangursrík og ekki síst skemmtileg líkams-
rækt sem byggir á fimleikaæfingum, þreki og
teygjum.
Fjör og fimi
Frábærir tímar fyrir krakka, 6-9 ára og 10-12
ára. Unnið er að því að bæta hreyfiþroska,
samhæfingu, þol, styrk, jafnvægi og
líkamsstöðu.
Þrek og teygjur, heljarstökk og hopp
Krökkum fæddum ’96 og ’97 gefst nú
tækifæri til að koma sér í gott form hvort sem
það er fyrir skíðin og snjóbrettin í vetur eða
bara til að auka styrk, liðleika og almennt
úthald.
Leikskólafjör á sunnudögum
Á sunnudagsmorgnum gefst litlum íþrótta-
álfum og foreldrum þeirra kjörið tækifæri til
að koma saman og hreyfa sig í um það bil
klukkutíma. Hentar börnum fæddum
’04, ’05 og ‘06.
Bjarkarhreysti!
Krakkar, fæddir ’93, ’94 og ’95, komið og
undirbúið ykkur fyrir skólahreysti! Frábær
þjálfari með mikla reynslu í þrek- og úthalds-
þjálfun.
Parkour
Spennandi og krafmikil íþrótt fyrir krakka,
12-16 ára, sem vilja prófa eitthvað nýtt. Íþrótt
fyrir bæði líkama og sál.
Nánari upplýsingar og skráning á fbjork@fbjork.is eða í síma 565 2311
Spennandi námskeið fyrir krakka á öllum aldri
Gríðarleg samstaða var á
borgarfundi um St. Jósefsspítala
sem haldinn var í Íþróttahúsinu
við Strandgötu. Yfir 2 þúsund
manns voru á fundinum og
heyrð ust engar stuðningsraddir
við ráðagerðir heil brigðis ráð -
herra og púaði salurinn á hann
eftir málflutning hans. Ráð -
herrann fór yfir skipulags breyt -
ingar í heilbrigðiskerfinu sem
mest snúast um að sameina
heils brigðisstofnanir og heilsu -
gæslu stöðvar í heilbrigðis um -
dæmi og einfalda stjórnsýslu
stofnana. Þessar breytingar eru
gerðar á grundvelli laga nr.
40/2007 um heilbrigðisþjónustu.
Eðlilega var þó áhuginn meiri á
kynningu hans á flutningi skurð -
stofu til Keflavíkur og flutningi
melt inga sjúkdóma- og lyflækn -
inga deildar til Land spítalans.
Eftir framsögu ráðherra talaði
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri og
upp lýsti m.a. að Hafnar fjarðar -
bær ætti 15% hlut í spítalanum á
móti ríkinu án þess að hafa
aðkomu að stjórnun hans. Hann
sagði að þegar heilbrgiðs ráð -
herra kynnti, í síðustu viku,
breyt ingar og uppstokkun á
starf semi St. Jósepsspítala, hafi
hann skýrt frá ákvörðun sinni og
sinna ráðgjafa. Það hafi ekki
verið lagðar fram tillögur til
umræðu og yfirferðar þeirra sem
málið snertir, heldur skýrar
ákvarð anir sem þó virðist eiga
eftir að skýra út að stærstum
hluta. Lúðvík sagði að endur -
skoðun og breyting á starfsemi
St. Jósepsspítala ættu að snúast
um eftirfarandi:
- um almenn heilbrigðismál.
- um þjónustu við íbúa hér á
stór Hafnarfjarðarsvæðinu
- um atvinnumál
- um að tryggja ábyrgan og
hagkvæman rekstur
- um að tryggja samráð og
samstarf.
Skoraði hann á ráðherra heil -
brigðismála að færa þessa vinnu
á upphafsreit og taka tilboði
bæjarstjórnar um samtöl, sam -
vinnu og samráð.
Voru ræðumenn allir á einu
máli um að taka ætti þessa
ákvörð un til endurskoðunar og
það má segja að mennta mála -
ráðherra, flokksfélagi Guðlaugs,
hafi sett í hlutalausa gírinn og
taldi rétt að skoða málin betur og
hlýtur mönnum að hafa brugðið
við þessi hörðu viðbrögð svo
breiðs hóps gegn áætlunum
heilbrigðisráðherra að sundra
starfseminni sem nú er á St.
Jósefsspítala.
Valkostir ráðherra
Í lokaorðum sínum á fundi
með starfsmönnum St. Jósefs -
spítala Sólvangs sagði heil -
brigðis ráðherra: „Það er ein -
lægur vilji okkar, nákvæmlega
að nýta þennan kraft sem hér er
og þá samstöðu sem hér er og
eins og ég nefndi og bara svo
menn átti sig á því að fáum við
ekki þessar leiðir þá mun það
hafa mjög alvarlegar afleiðingar,
það eru valkostirnir sem við
stöndum frammi fyrir, ég stend
frammi fyrir þessum einfalda
valkosti að hækka þjónustu -
gjöldin verulega – Ég get gert
það!“ .. „Ég enn og aftur býð
fram það að þið getið komið að
því að nýta þau tækifæri sem
framundan eru, það hef ég lagt
fram í kynningu á þessu máli frá
fyrsta degi. Við erum að setja af
stað þessa hópa með fólki sem
eru í forystu hjá ykkur til að geta
náð fram þeim árangri sem við
viljum og sannarlega nýta þann
kraft sem býr í ykkur, það er mín
einlæga von að við getum unnið
vel saman að því.“
Blaðamaður Fjarðarpóstsins,
sem laumaði sér á fundinn, getur
upplýst að hann hefur aldrei fyrr
upplifað þvílíka samstöðu og
metnað fyrir faglegu starfi í
samstarfi allra hjúkrunarstétta og
meðal starfsmenna á St. Jósefs -
spítala. Kom fram hjá starfsfólki
að það væri tilbúið til samstarfs
með ráðuneytinu um skoðun á
því á hvern hátt mætti hagræða í
rekstri spítalans. Starfsfólkið hafi
gert það áður og geti gert það
aftur.
Fjölmennasti borgarafundur í Hafnarfirði
Bæjarbúar púuðu á Guðlaug heilbrigðisráðherra
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins virtust áhyggjufullir.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n