Fjarðarpósturinn - 15.01.2009, Blaðsíða 10
Rúmgóðar 2ja,3ja og 4ra
herb.íbúðir á Völlunum. Leigjast
með öllum tækjum, ljósum og
gardín um. Leiguverð 2ja
herb.kr.109.685,- 3ja herb. kr.
120.656,- 4ra herb. kr. 134.130,-
með hússjóð.
Upplýsingar í síma 895 2463.
Tvö samliggjandi herbergi
(svefnherbergi og lítil stofa) í fallegu
húsi í Setbergi til leigu fyrir
reglusaman einstakling með aðgang
að baði, eldhúsi og þvottahúsi.
Nánari upplýsingar í s. 663 2990.
50 m² íbúð til leigu í Hvömmunum
í Hafnarfirði. Laus strax. Til greina
kemur að greiða hluta leigunnar
með þrifum.
Upplýsingar í síma 840 7003.
Hafnfirskar hundapeysur.
Prjóna eftir beiðni en eru einnig til á
lager. Upplýsingar gefur Díana
í s. 695 1086, 478 1378.
Humar og stórar, girnilegar rækjur
til sölu fyrir félagasamtök, kóra og
íþróttafélög. Góð leið til fjáröflunar.
Uppl. í s. 697 8720.
Tek að mér að stytta buxur og
annan fatnað. Er klæðskeri og bý í
Hafnarfirði. Uppl. í síma 866 2361
eftir kl. 16 alla daga.
Svört og hvít læða af skógar -
kattakyni með svarta hálsól,
tapaðist þann 22. des. frá Háabergi
11 í Setbergshverfi í Hafnarfirði.
Hennar er sárt saknað af eigendum
sínum. Vinsamlega látið vita í síma
896 1488 ef einhver getur gefið
upplýsingar um hana.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a .
V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Til sölu
Tapað - fundið
Þjónusta
Fjáröflun
Húsnæði í boði
Eldsneytisverð
14. janúar 2009 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 139,8 164,2
Atlantsolía, Suðurhö. 137,5 161,2
Orkan, Óseyrarbraut 137,2 161,6
ÓB, Fjarðarkaup 137,2 161,6
ÓB, Melabraut 139,8 164,2
Skeljungur, Rvk.vegi 141,4 165,8
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
N1 gefur ekki upp verð á heimasíðu.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann JónassonSverrir Einarsson Jón G. Bjarnason
Fimmtudagur 15. janúar 200910 www.fjardarposturinn.is
ÍBÚÐIR TIL LEIGU
í Hafnar firði,
Reykjavík og Keflavík.
upplýsingar á
www.heimahagar.is
Ritstjóri eina hafnfirska frétta -
blaðsins sem gefið er út í Hafnar -
firði birti athugasemdir í leið ara við
þá ákvörðun Íþrótta- og
tómstunda ráðs (ÍTH) að
bæta við vali á Íþrótta -
konu Hafn ar fjarðar
þegar íþrótta menn frá
Hafnarfirði voru heiðr -
aðir og að tek in hafi
verið sú ákvörð un að
velja íþrótta mann af
báð um kynj um og
heiðra fyrir frá bæran
árang ur á árinu 2008.
Jafnframt spyr hann að því hvort
Jafnréttisnefnd hefði fengið málið
til skoðunar. Ef ritstjórinn hefði
haft fyrir því að stíga niður úr
fílabeinsturni sínum hefði hann
get ið fengið upplýsingar um það að
ÍTH tók þessa ákvörðun í samráði
við Íþróttabandalag Hafnarfjarðar
og öll íþróttafélögin í Hafnarfirði.
Á vettvangi ÍTH er starfandi
vinnu hópur um jafnréttismál þar
sem í eiga sæti fulltrúar úr íþrótta -
hreyfing unni og jafnréttisnefnd og
studdu þeir þessa ákvörðun.
Forsenda þessarar ákvörðunar
eru þær að ÍTH vill leggja áherslu á
það sem vel er gert á íþróttasviðinu
og viðurkenna þau afrek. Það er
stundum erfitt að leggja mat á hver
hefur skarað fram úr og hvað eigi
að leggja til grundvallar slíku vali.
Sitt sýnist hverjum og oftar en ekki
er litið yfir þau afrek sem við -
komandi íþróttamenn hafa unnið
og því flett upp hvað staðið hefur
uppúr á hverjum tíma. Ef skoð uð er
umfjöllun í prent miðlum og dag -
blöðin skoðuð, þá kemur í ljós að
87% af íþrótta um fjöllun í þessum
miðl um er um íþróttir karla (sjá
lokaverkefni Önnu Guðrúnar
Stein dórs dóttur við KHÍ, Laugar -
vatni um íþróttafréttir í dag -
blöðum). 53% af allri
íþrótta um fjöllun er
síðan um knattspyrnu
og 28% um hand -
knattleik. Þessi um -
fjöllun er í engum takti
við iðkenda tölur
íþrótta hreyfingarinnar
þó svo vissulega séu
fleiri strákar sem stunda
íþróttir en stúlkur.
Brott fall er því miður
einnig meira úr röð um stúlkna og
þær hætta fyrr í íþróttum en strákar.
Sú ákvörðun að breyta vali á
Íþróttamanni Hafnarfjarðar er því
byggð á því sjónarmiði að viður -
kenningin sé ætíð hvatning fyrir
bæði stráka og stelpur og rétt er að
geta þess að í flestum nágranna -
ríkjum okkar eru íþróttamenn sem
heiðraðir eru af báðum kynjum þó
svo það hafi ekki verið gert hér á
landi. Þá hafa sérsambönd innan
Íþrótta- og Ólympíusambands Ís -
lands einnig valið bæði íþróttakarl
og konu viðkomandi íþróttagreinar.
Hvað varðar tillögur ritstjóra um
að viðurkenna leiðtoga og fyrir -
myndir í öðru félagsstarfi en íþrótt -
um þá er sú tillaga athyglisverð og
verður vonandi skoðuð nánar, þó
rétt sé að geta þess að slíkir leið -
togar hafa verið heiðraðir á öðrum
vettvangi s.s. í framhaldskólunum.
En hrósið er mikilvægt tæki til
hvatningar og mættum við beita
því miklu oftar í okkar starfi. Það
held ég að ritstjóri Fjarðarpóstsins
mæti líka temja sér.
Höfundur er varaformaður
íþrótta- og tómstundaráðs.
Frábær árangur íþrótta -
manna í Hafnarfirði
Hörður
Þorsteinsson
Bókhald - uppgjör - skattskil
Getum tekið að okkur viðbótarverkefni í
bókhaldi, skattskilum og uppgjörum
fyrir einstakinga og smærri fyrirtæki.
Aðstoðum við að semja um skuldir.
Mikil reynsla.
Upplýsingar í síma 697 8771
Á fundi ráðherra með starfs -
fólki St. Jósefsspítala - Sólvangs
voru eftirtaldir skipaðir í vinnu -
hóp til að undirbúa flutninginn.
Stýrihópur leiðir verkið og í
honum eru:
Ragnar Þ. Guðgeirsson, ráð -
gjafi hjá Heilbrigðis ráðuneytinu,
Árni Sverrisson, forstóri St.
Jósefsspítala - Sólvangs, Hall -
grímur Guðmundsson, stefnu -
mótunarsviði í Heilbrigðis ráðu -
neytinu.
Hópur um skurðstofurekstur í
Reykjanesbæ:
Ragnar Þ. Guðgeirsson, ráð -
gjafi, Sveinn Geir Einarsson,
yfir svæfingalæknir á St. Jósefs -
spítala, Sigríður Snæbjörnsdóttir,
forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, Ragnhildur Jó -
hanns dóttir, deildarstjóri hjúkr -
unar á St. Jósefsspítala, Oddur
Fjalldal, sviðsstjóri Landsspítala,
Elís Reynarsson, framkvæmda -
stjóri fjármála og rektrar, HSS,
Vigdís Hallgrímsdóttir, heil -
brigðis ráðuneytinu.
Hópur um flutning meltinga-
og lyflækningadeilda St. Jós -
efs spítala - Sólvangs:
Björn Zoega, lækningaforstjóri
Landspítala, Ásgeir Theodórs,
lækningaforstjóri St. Jósefs -
spítala - Sólvangs, Kristín Ólafs -
dóttir, deildarstjóri hjúkrunar, St.
Jósefsspítala, Guðmundur Þor -
geirsson, sviðsstjóri LSH, Dagný
Brynjólfsdóttir, heil brigðis ráðu -
neyti.
Hópur um öldrunarsþjónustu
Hafnarfirði:
Margrét Björnsdóttir, Heil -
brigð is ráðuneytinu, Gunnar Val -
týsson, yfirlæknir á hjúkr unar -
deild um St. Jósefsspítala Sól -
vangs, Gunnar Rafn Sig ur -
björns son, Hafnarfjarðarbæ,
Birna G. Flygenring, fram -
kvæmda stjóri hjúkrunar á
Sólvangi, Ólafur Þór Gunn ars -
son, yfirlæknir LSH, Helgi Freyr
Kristinsson, fjármálastjóri St.
Jósefsspítala Sólvangs.
Óundirbúið
Fyrsti fundur hópanna var á
mánudag og kom þá í ljós að
hvorki hópurinn í Reykjanesbæ
eða á Landspítalanum var undir -
búinn og vissi í raun lítt hvað
nákvæmlega til stóð. Er það sagt
renna stoðum undir það að
tilfærslan hafi verið illa ígrunduð
og tekin í flýti á síðustu stundu.
Hóparnir eiga að gefa álit á
morgun, föstudag og því ljóst að
tíminn er naumt skammtaður og
að áliti þeirra sem þekkja til ekki
tími til vel ígrundaðra niður -
staðna.
Ráðherra fundaði með
bæjarstjóra
Bæjarstjóri, Lúðvík Geirsson
átti fund með heilbrigðisráðherra
og sagðist bæjarstóri hafa ítrekað
ósk allrar bæjarstjórnar um
samráð um rekstur heilsugæslu,
öldrunarþjónustu og rekstur St.
Jósefsspítala.
Vinnuhópar vegna breytinga á
St. Jósefsspítala
Illa undirbúnir hópar á LSH og HSS
Innsýn, fagdeild hjúkrunar -
fræð inga starfandi við lungna
og meltingafærarannsóknir, for -
dæmir harðlega ákvörðun heil -
brigðisráðherra Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar um fyrirhugaða
lok un Meltingarsjúkdómadeildar
St. Jósefsspítala Sólvangs og
flutning til LSH.
Segir í tilkynningu að erfitt
séað koma auga á hagræðingu
eða sparnað með fyrirhugaðri
aðgerð og ekkert í tillögum
ráðherra sem rökstyðji þann
sparn að. Fagdeildin lýsir jafn -
framt furðu sinni á að ekkert
sam ráð var haft við fagaðila
speglanadeilda, hvorki á St.
Jósefsspítala Sólvangi né á LSH.
Fagdeild hjúkrunarfræðinga mótmæla
Dong Huang
Chinese Resturant
Take away-sími: 555-6999
Ef keypt er fyrir meira en 3.000.- kr. af
matseðli okkar, fylgir frítt með annaðhvort:
• Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu eða..
• Steiktar núðlur með grænmeti, eggi og kjöti.
Tilboð!
Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði • 862 0598
Opið:
mánud. - föstudaga kl. 11.30-22
laugard. og sunnud. kl. 16-22