Fjarðarpósturinn - 14.01.2010, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. janúar 2010
Stjórnmálaflokkum leiðist ekki að setja
reglur. Oft er það gert í nafni jafnréttis og
lýðræðis en höggva svo þar sem síst skyldi.
Fjölmargar reglur eru gallaðar, ekki hefur verið
nægilega til þeirra vandað og dómstólar hafa
jafnvel túlkað lög á annan veg en höf und ar
þeirra og má þá oft um kenna óná kvæmu
orðalagi. Samfylkingin í Hafnarfirði hefur sett
sér prófkjörsreglur þar sem m.a. segir:
„Auglýsingar frambjóðenda í ljósvakamiðlum, prent miðl um og
vefmiðlum eru óheimilar og mælst er til þess að fram bjóðendur
gæti hófs í kynningarstarfi. Kostnaður frambjóðenda vegna
þátttöku í prófkjörinu má ekki fara yfir 250 þúsund krónur.“ Gott
og blessað að takmarka kostnaðinn en að heimila prentun
kynningarrita og dreifa þeim með póstinum á sama tíma og
frambjóðendum er bannað að kaupa birtingu á samskonar efni í
Fjarðarpóstinum og spara fé, er með ólíkindum og er dæmi um
óvandaðar reglur og miðstýringu. Á sama tíma ætlast fram
bjóðendur til að Fjarðarpósturinn birti greinar þeirra endur
gjaldslaust, sem blaðið hefur gert í fjölmörg ár og jafnvel stækkað
blaðið til að koma öllum greinum fyrir. Þannig er Samfylkingin að
velta kostnaði við prófkjör sitt yfir á sjálfstæðan fjölmiðil á sama
tíma og flokkurinn í krafti meirihluta síns í bæjarstjórn sker niður
aug lýsinga kostnað til bæjarblaða um yfir 60% á milli ára.
Það væri bænum kostnaðarsamt ef ekkert væri bæjarblaðið og
mun erfiðara að koma upplýsingum til skila til bæjarbúa.
Hins vegar er gaman að sjá að fjölmargir taka nú þátt í próf
kjörum flokkanna en minna gaman að sjá að sitjandi bæjarfulltrúar
hafa greinilega sameinast í fylkingu við „röðun“ í sæti til að
freista þess að tryggja sér örugg sæti. Spyrjum þó að leikslokum.
Guðni Gíslason
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Ragnar og Ingunn sýna í
Hafnarborg
Á laugardaginn kl. 15 verða
opnaðar tvær sýningar í Hafnarborg.
Á efri hæð sýnir Ragnar Kjartansson
afrakstur sýningar Íslands í Fene
yjatvíæringnum 2009 og nefnist
sýningin Endalokin. Tónlistar og
mynd bandsverkinu, Endalokin
Kletta fjöll, er varpað á fimm tjöld
sam tímis. Á hverju þeirra leikur
Ragnar á ólíkt hljóðfæri ásamt tón
listarmanninum Davíð Þór Jónssyni.
Verkið var tekið upp um hávetur úti
undir berum himni í ægifegurð hins
kanadíska Banff þjóðgarðs.
Á neðri hæð sýnir Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir inn setninguna Ljós
brot. Innsetningin fyllir allan sýn
ingarsalinn með marg litum strengj
um sem minna á geisla úr óskil
greindum ljósgjafa. Verkið er eins
konar völundarhús gagnsærra lita
flata sem áhorfandinn hefur yfirsýn
yfir um leið og litaspil þeirra blandast
saman og úr verður heild.
Prjónakaffi í kvöld
Prjónakaffi Kvenfélags Hafnarfjarðar
kirkju verður haldið í Vonarhöfn,
Hafnarfjarðarkirkju, gengið inn frá
Suð urgötu, kl. 20-22 í kvöld
fimmtu dag. Allir eru velkomnir.
Sýningar í Bæjarbíói
Á þriðjudaginn kl. 20 sýnir
Kvikmyndasafn Íslands myndina
Síðasti bærinn í dalnum eftir Óskar
Gíslason í leikstjórn Ævars Kvaran.
Myndin var tekin á Tannastöðum í
Ölfusi, í Kershelli og í Kjós. Í mynd
inni bregður fyrir tæknibrellum sem
á þeim tíma þóttu nýstárlegar og
gáfu henni aukið gildi, að minnsta
kosti fyrir yngstu áhorfendurna.
Loftnets og símaþjónusta
Viðgerðir og uppsetningar á
loftnetum, diskum, heimabíóum,
flatskjám. Síma og tölvulagnir
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Kaffisetur
Samfylkingarinnar 60+
í Hafnarfirði
alla þriðjudaga og
föstudaga kl. 10-12
Strandgötu 43
Rjúkandi kaffi og meðlæti.
Fjörugar og lýðræðislegar
umræður um fjölbreytt málefni.
Allir velkomnir
Útfararþjónusta
Hafnarfjarðar
Frímann Andrésson
útfararstjóri
hÁLFDÁN hÁLFDÁNARSON
útfararstjóri
Sími 565 9775 - ALLAN SóLARhRiNgiNN - uth.iS
Eldsneytisverð
13. janúar 2010 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 194,6 193,3
Atlantsolía, Suðurhö. 194,6 193,3
Orkan, Óseyrarbraut 194,5 193,2
ÓB, Hólshrauni 194,6 193,3
ÓB, Melabraut 194,6 193,3
ÓB, Suðurhellu 194,6 193,3
Öll verð miðast við sjálfs af greiðslu og
eru fundin á vef síð um olíufélaganna.
Að auki getur verið í boði sérafsláttur
www.fjardarposturinn.is
Tölvuþjónusta Rthor
Fartölvuviðgerðir
og almennar tölvuviðgerðir.
Kem í heimahús
Ódýr og góð þjónusta
Sími: 849 2502
Sunnudagur 17. janúar
Messa kl. 11
Fermingarbörn aðstoða. Báðir prestar kirkunnar þjóna.
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Barbörukórinn leiðir söng.
Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma
í safnaðarheimilinu.
Gregorgs morgunmessa
alla miðvikudaga kl. 8.15
Víðistaðakirkja
sunnudagurinn 17. janúar
Sunnudagaskólinn kl. 11
Skemmtileg stund fyrir börn á öllum aldri,
fer fram í loftsal kirkjunnar.
Guðsþjónusta kl. 11
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
TÖLVUHJÁLPIN
Viðgerðir, vírushreinsanir,
uppfærslur og uppsetningar
á PC tölvum. Kem í heimahús.
Sanngjarnt verð
Sími 849 6827
Nú hafa 12.000 manns tekið
þátt í hjónanámskeiðum Hafn
ar fjarðarkirkju. Og enn fjölgar
þeim sem taka þátt. Því fullt er
að verða á næstu námskeið nú á
vorönn.
Námskeiðin byggja á fræðslu,
verkefnum og heimavinnu. Þau
eru öllum opin og henta sér
staklega vel þeim hjónum sem
vilja gera gott hjónaband betra
en ennig hinum sem eiga í
erfiðleikum. Þó þau heiti
hjónanámskeið eru pör í óvígðri
sambúð einnig velkomin.
Leiðbeinandi á námskeið
unum frá upphafi hefur verið sr.
Þór hallur Heimisson, sóknar
prestur. Nánar á hafnar
fjardarkirkja.is
1200 á hjónanámskeiðum
Það er alltaf gaman að fyljast
með ungu handbolta mönn un um
okkar. Hér í leik FH og Hauka.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n