Prentneminn - 01.11.1982, Qupperneq 12

Prentneminn - 01.11.1982, Qupperneq 12
„Gutenberg sálugi var líka fúskari í upphafi“ segir Olav Hansen einn af frumherjum offset- prentunar á Islandi. Hvernig byrjaðir þú i offseti og hvers vegna? Hvernig var þetta fyrstu árin, andrúmsloftið ofl. ? I sambandi við fyrstu árin get ég ekki sagt frá nema minum sjónarhóli. En þannig var það að ég datt inn í Lithoprent gamla sem þá hafði verið stofnað örfáum mánuðum fyrr. Þetta var i nóv. 1938. Þá var ég búinn að vera atvinnulaus í hálft annað ár og ég hefði sennilega aldrei annars farið inní þetta fag. Reyndar vissi ég ekki að þetta væri neitt fag. Þá hafði Guðmundur Jóhannsson, prentmyndagerðarmaður og prentari, og Einar Þorgrimsson, báðir verið vestur i Ameríku i mörg ár. Einar hafði verið 18 ár vestra og var nýfluttur heim, Guðmundur var búinn að vera einhvem svipaðan tíma. Þeir höfðu kynnst vestra og endumýjuðu kunningskapinn eftir að þeir komu heim. Sennilega hefur það verið hugmynd Guðmundar Jóhannssonar að setja á stofn einhverskonar prentverk. Þá hafði hann haft nasasjón af þvi sem við köllum offsetprentun, var þá reyndar kölluð ljósprentun. Ég var sem sagt búinn að vera atvinnulaus i hálft annað ár þegarkunningi minnfrá fyrri tíð hafði samband við mig og bauð mér þetta starf, að lakka spil á næturvakt. Það var reyndar samfellt fylliri í tvo mánuði, ekki af áhrifum áfengis, heldur af lakkinu. En þessi maður var einn af frumkvöðlum offsetprentunar á íslandi. Við vorum með eina litla Multilith prentvél, sem prentaramir kölluðu reyndar skrifstofuvél. Við prentuðum á hana ýmis konar eyðublöð og meira að segja bækur, eins og t.d. Fjölnir, en hann var ljósmyndaður og endurprentaður. Gerði það mikla lukku. 1939 alveg í striðsbyrjun fór Einar út til Englands til Multilith verksmiðjanna til að kynna sér eitthvað meðferð þessara véla. Var það raunar eina námið sem hann hafði í þessu sem við köllum offset. Þá fórum við Þorgrímur Einarsson, sonur hans, sem kaupmenn austur i Rangárvallasýslu meðan Einar var i Englandi. Þegar hann kom til baka kallaöi hann okkur samar. og er þá óhætt að segja að offsetið hafi hafist i þeirri merkingu sem við leggjum í þetta. Svo vinnum við þama, ég, Þorgrímur og þriðji maðurinn sem ég man ekki lengur hvað heitir. Guðmundur Jóhannsson fór nefnilega tiltölulega fljótt úr þessu samstarfi við Einar svo hann var einn með þetta. Svo smám saman vex þetta. Koma fljótlega tveir starfsmenn, Jón Sveinbjömsson og frændi hans Jónas Benediktsson, sem er nú í Noregi. Siðar komu Kristinn Sigurjónsson, siðar i Litbrá, Gunnar Pétursson, sem nú vinnur hjá Vitamálastofnuninni, Þórir Hall- grimsson frá Isafirði, Magnús Vigfússon og Rafn Hafnfjörð. Ég man nú ekki í hvaða röð þessir menn komu en þetta voru þeir fyrstu. En það var ekki um að ræða nein réttindi. Fljótlega upp úr 1940 var farið að tala um það, að þeir sem störfuðu við þetta öfluðu sér einhverra réttinda, svo Einar hafði tal af Gunnari i ísafold sem var formaður F.I.P og Stefáni Ögmundssyni formanni Prentara- félagsins. En þeir vildu ekkert við okkur tala, vildu ekkert hafa með okkur að gera, kölluðu okkur fúskara. Mér hefur oft dottið i hug síðar að Gutenberg sálugi var líka fúskari í upphafi, hann hlýtur að hafa verið það. Sennilega var Alois Senefelder, sá sem fann upp steinprentið líka fúskari. Það sat lengi i okkur að þeir vildu ekkert með okkur hafa, en seinna sáum við reyndar að við höfðum ekkert með þessa menn að gera. En eitt get ég fullyrt núna, að þetta fólk sem starfaði að offseti i upphafi og allmörg ár þar á eftir, var ekki fólk sem var aðeins að afla sér lífsviðurværis, heldur var það með lifandi áhuga á þessuinýja fagi, t.d. Rafn Hafnfjörð og Kristinn Sigurjóns- son sem stofnuðu Litbrá, sem var, að ég held ég megi fullyrða, annað offset- prentverkið hér á landi. Einnig mætti nefna Þóri Hallgrímsson og Magnús Vigfússon sem siðar stofnuðu Offset- myndir. Þeir þurftu sko að hafa fyrir lífinu og lífi fyrirtækisins. Við áttum i geysilegum erfiðleiku frá upphafi, bæði faglega séð, eins og allir þeir sem voru að hasla sér völl á nýju sviði. Út frá þessu var tekin önnur stefna og vann Einar Þorgrímsson mjög ötullega að þvi að fá þetta viðurkennt sem sér iðngrein. Þetta var að lokum gert. Ráðuneytið viðurkenndi þetta sem sérstaka iðngrein árið 1946 að ég held, en þá þegar höfðu flestir okkar verið búnir að taka iðnskólann utanskóla. Einar kenndi okkur sjálfur eða við kenndum okkur i raun sjálfir, sem við þurftum að læra undir skólann. Það var sérkennilegt að fjórir okkar fyrstu voru úr Reykjavik en lang flestir sem komu þar á eftir , ég held 6 eða 7, voru úr Hafnarfirði. Þeir fóru i strætó fram 12 PRENTNEMINN

x

Prentneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentneminn
https://timarit.is/publication/950

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.