Prentneminn - 01.11.1982, Page 34
modular Campasiiian System
NÝn HUGTAK I UPPBYGGINGU SETNINGARTÖLVA
í mai 1981 kynnti Compugraphic
Corp. I Bandaríkjunum nýja gerð af
Modular Composition System eða
MCS. Setningarkerfið þetta er þannig
að hægt er að byggja það upp á
modelum sem gefur möguleika á því
að hver og einn geti byggt upp sitt eigið
setningarkerfi, miðað við þörf á
hverjum tíma og bæta síðan við eftir
þvi sem kröfurnar aukast.
MCS setningarkerfi samanstendur af
5 einingum þ.e. skermi, lykilborði,
diskdrifi, tölvu og setningarvél. Einnig
má tengja við það prentara og
umbrotsskerm. Þessi kerfisuppbygging
gerir að stækka kerfið þegar þess
verður þörf. MCS setningarkerfið er
byggt í kringum eina grunneiningu sem
er sjálf tölvueiningin, en hún er byggð
upp úr 16 bita tölvu sem getur verið
með minnst 128k minni og allt upp í
512k minni, eitt diskettudrif (4
tengjanleg), einn skerm og eitt
lykilborð. Þegar t.d. þörf verður fyrir
viðbótarskerm við kerfið, þá þarf
aðeins að kaupa sjálfan skerminn og
tengja hann inn á tölvuna og hafa þá
innskriftarafköst tvöfaldast. Við sjálfa
MCS tölvuna er síðan hægt að tengja
þrjár mismunandi ljóssetningarvélar.
Það sem skilur þær að er mismunandi
hraði og mismunandi fjöldi af letur-
tegundum sem inni eru á hverjum
tima.
8200 setningarvélin.
8200 serían af ljóssetningarvélum
samanstendur af tveimur gerðum með
mismunandi fjölda af leturgerðum til
staðar í vélinni á hverjum tíma.
Hraðinn er sá sami eða 57.000 stafir á
klst. Mesta breidd setningarpappirs er
70 „pica“ eða 12“ og fjöldi leturstærða
er 63 í hálfs punkts skrefum. 8208
setningarvélin er með 8 leturgerðir inni
i einu en 8216 setningarvélin er með
16 leturgerðir inni í einu. Hægt er að
tengja tvo skerma „on line“ við 8200
setningarvélarinnar.
8400 setningarvélin.
8400 setningarvélin er ódýrasta crt
setningarvélin á markaðinum i dag.
Setningarhraðinn er 270.000 stafir á
klst eða 150 línur á minútu. Hægt er að
kaupa viðbót við setningarvélina sem
eykur hraðann i 450.000 stafi á klst, eða
250 linur á minútu. Standard er vélin
með allt að 16 leturgerðir inni i einu
en hægt er að fjölga þeim í 100. Fjöldi
leturstærða er 136 i hálfs punkts
skrefum. Mesta breidd setningar-
pappírs er 12“ eða 70 „pica“. 8400
setningarvélin gefur möguleika á því
sem flestar crt setningarvélar hafa, en
það er að þjappa saman, breikka
hækka eða halla letrinu i allt að 30°á
hvom veg sem er. Leturgerðimar em á
8“ diskettu í digiltalsemðu formi og
eru allt að 16 leturgerðir á hverri
diskettu. Hægt er að tengja 4 skerma
„on line“.
MCS tölvan.
Hægt er að fá tölvuna i fimm mis-
munandi útfærslum, MCS 10, MSC 20,
MSC 22, MSC 40 og MCS 42. Hægt er
að tengja einn skerm og lykilborð fyrir
MCS 10,20 og 40 en tvo skerma og tvö
lykilborð fyrir MCS 22 og 42. í MCS
em 128k minni, í MCS 20 og 22 em
256k minni en i MSC 40 og 42 em 512k
minni. Þessi viðbót við minni gefur
möguleiku á alls kyns viðbótarforritun
sem Compugraphic hefur verið að
kynna og mun kynna á næstunni. Hægt
er að tengja allt að 4 diskdrif við MCS
kerfið. Hver diskur hefur rýmd upp á
160.000 tákn og getur hver spalti verið
upp i 99 síður á lengd. Hver siða er 200
linur eða 6000 stafir. Ef þörf er á mun
meira geymslurými en 4 diskettudrif
gefa, er hægt að tengja 5 eða 10 MB
(MB 1.000.000 stafir ) fastan disk við
tölvumar. Tenging við fasta diska
eykur vinnsluhraða vemlega. öll
innskrift i MCS tölvuna fer fram i
„counting mode“ en það þýðir að
notandinn sér alla „typografiska-
parametra" uppi á skerminum, hann
sér nákvæmlega hvar hann er staddur í
linunni og vélin ,justerar“ textann um
leið og hann er skrifaður inn. Óþarfi er
að senda textann i svokallað „back-
ground composition“ til þess að ná
fram auknum hraða.
Ef þörf er á breytingum er hinn
,justeraði“ texti kallaöur upp og
breyting gerð á honum og hann er
siðan endurskrifaður á sama stað á
diskettunni og hann var áður. Þetta
sparar mjög mikið allt diskpláss í
vélinni þar sem óþarfi er að geyma
textann i tveimur mismunandi upp-
setningum þ.e. einn „ójusteraðan“texta
og annan ,justeraðan“ sem innihalda
nákvæmlega sama efni. Hægt er að
kalla upp hvaða siðu sem er og í hvaða
röð sem er og sér vélin um að gefa
hverri siðu númer þannig að ef efnis-
yfirlit er kallað'upp, sést nákvæmlega
hversu margar siður hver spalti er og
hægt er að fara inn á hverja siðu beint.
Skermar og lykilbord.
Skermurinn, lykilborðið, diskdrifið
og tölvan eru frítt standandi sem gefur
notandanum möguleika á að setja
tækin upp nákvæmlega þar sem hann
vill hafa þau. Til viðbótar þá er hægt
að halla skerminum upp og niður
þannig að hægt er að stilla hann
nákvæmlega í þá hæð sem þörf er á.
34
PRENTNEMINN