Bókbindarinn - 01.04.1975, Síða 4
4
BÖKBINDARINN
Marianne Kesting:
Bertold Brecht.
Band:
Kaj Pheiffer Hansen.
Rubowband. Pappír svart-
hvítur. Rautt skinn á
köntum.
við bókbindara í Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð, efnt til samkeppna og sýninga
í löndunum til skiptis. Islenskir bók-
bindarar hafa ekki, hingað til, tekið þátt
í þessu samstarfi, en þeim mun senni-
lega standa það til boða í framtíðinni.
1 fyrirlestri, sem Arne Moller Peder-
sen hélt, í tengslum við sýninguna,
laugardaginn 15. mars, sagði hann frá
starfi H.P.-hópsins og þessum samnor-
rænu bókbandskeppnum og sýningum,
auk þess sem hann ræddi um nútíma
bókbandslist, og kynnti sérstakan
pappír, sem þeir ýmist nota sem al-
klæðningu eða sem hliðarpappír. Á
sýningunni voru ýmiskonar sýnishorn
af slíkum pappír ásamt hinum inn-
bundnu bókum.
Arne Moller Pedersen var sjálfur
við, hluta úr báðum sýningardögunum,
og leiðbeindi um sýnisgripina. Hann er
formaður H.P-hópsins og vinnur á
Skjalasafni Norður-Sjálands að bandi
og viðgerðum á bókum og skjölum
safnsins.
Á sýningunni voru einnig verk eft-
ir allmarga íslenska bókbindara. Einar
Helgason aðstoðaði við uppsetningu
sýningarinnar, og Bókbindarafélag Is-
lands tók þátt í kostnaði.
Það var mjög ánægjulegt að fá, með
þessari sýningu, að kynnast verkum
hinna dönsku kollega okkar. Vonandi
verður þetta hvatning fyrir íslenska
bókbindara til að taka þátt í samstarfi
bókbindara á hinum Norðurlöndunum.