Bókbindarinn - 01.04.1975, Page 8
8
BÖKBINDARINN
ur að fara eins grunnt með sköfuna og
hægt er, til þess að eyða sem minnst
af leginum. Ef allt er í lagi eiga lit-
irnir að fljóta alveg ofan á leginum.
Ef þeir byrja að sökkva er ekkert ann-
að að gera en að henda honum og laga
nýjan.
Á þennan hátt er einnig hægt að
marmorera hvítan pappír (þó ekki
glanspappír) og fá sama munstur á allt.
Pappírinn þarf að vera aðeins mjórri
en bakkinn. Haldið er í báða enda
hans, annar endinn fyrst látinn nið-
ur og honum síðan smá rennt niður á
löginn, svo að ekki myndist loftbólur.
MARMORERAÐ MEÐ PAPPlR:
Önnur aðferð við marmoreringu er
að nota til þess svokallaðan marmor-
pappír. Munstrið er á pappírnum og
er flutt af honum yfir á snið bókanna
á svipaðan hátt og gert er við þrykki-
myndir. Þó að nú sé orðið mjög vont,
og kannski ómögulegt að fá slíkan
pappír, ætla ég að fara um þessa að-
ferð nokkrum orðum.
Af þessum pappír eru, eða voru, til
margar tegundir og þola þær ekki all-
ar jafn mikið vatn. Verður að þekkja
hverja tegund, en það kemur með æf-
ingu. Bækurnar verða að vera vel
skornar, sniðin rispulaus, og farið yfir
þau með fínum sandpappír. Síðan eru
þær rúnnaðar og falsbarnar. Raða má
t. d. 3-4 bókum, eftir þykkt, sitt á hvað
þegar endarnir eru teknir, og góð tré-
spjöld sitt hvoru megin. Þær eru sett-
ar í pressu og hert vel að. Þá sníður
maður marmor-pappírinn þannig, að
hann nái vel út á spjöldin og leggur
hann á sniðin. Með annarri hendinni
heldur maður pappírnum og passar að
hann hreyfist ekki, en með hinni hend-
inni þrýstir maður blautum svampi
(barnasvampi, ekki gúmmísvampi) á
pappírinn. Ekki má hreyfa pappírinn
til að gá hvort munstrið er komið á.
Eftir litla stund vindur maður svamp-
inn og þrýstir fast beint ofan á. Ekki
strjúka, því þá getur munstrið hreyfst.
Vissara er að hafa svampinn ekki of
blautan í fyrstu, þá hefur ekkert
skemmst, en sé of mikil bleyta rennur
munstrið saman, og þá verður að skera
bækurnar aftur.
Það er hægt að sjá hvort marmorer-
ingin hefur lukkast, því þá kemur
munstrið skýrt í gegn. Sé það eins og
í þoku fer maður aftur yfir með blaut-
um svampinum og þrýstir svo aftur
með honum þurrari, og á þá munstrið
að koma rétt út Einnig er hægt að
lyfta upp horni á pappírnum og gá,
en leggja hornið niður aftur ef munstr-
ið er ekki skýrt. Ef allt er í lagi er
pappírinn tekinn af og sniðin látin
þorna dálitla stund.
Ef margar bækur eru hafðar í press-
unni þegar sniðin eru tekin að framan,
þarf að hafa á milli þeirra þykk spjöld,
mjórri en bækurnar, til að skemma
ekki falsinn. Ekki er hægt að marmor-
era nema eina bók í einu að framan,
þó fleiri séu í pressunni, af því að
búið er að rúnna þær. Ef marmorerað
er áður en rúnnað er, verður munstrið
óskýrt við rúnninguna.