Bókbindarinn - 01.04.1975, Síða 10
10
BÓKBINDARINN
Foreldrar hennar voru Jóhannes
Bjarnason skipstjóri og kona hans
Þorbjörg ölafsdóttir.
Ingibjörg lést 23. jan. 1973. Móðir
hennar, sem þá var 95 ára lést tveim
dögum fyrr og var útför þeirra
mæðgna gerð saman.
Stefanía starfaði skemur við bók-
bandsstörf vegna þess að hún giftist
Eggerti Arnórssyni, skrifstofustjóra
Ríkisprentsmiðjunnar.
Þau eignuðust þrjú börn, sem öll
eru á lífi. Þau eru: Ragnheiður banka-
gjaldkeri, fædd 1. maí 1946, Stefán há-
skólanemi, fæddur 18. júní 1951 og
Benóní Torfi mentaskólanemi, fæddur
7. janúar 1959.
Eftir að börnin voru komin upp
hóf Stefanía starf við bókband á ný
og vann þá hálfan daginn meðan heils-
an leyfði.
Stefanía var fædd 12. okt. 1917.
Foreldrar hennar voru Benóní Stefáns-
son, bóndi á Sveinseyri, síðar stýri-
maður á vitaskipinu Hermóði og kona
hans, Guðmunda Guðmundsdóttir.
Stefanía lést 22. nóv. 1972. Ég end-
urtek þakkir mínar til þeirra beggja
fyrir ágætt samstarf.
Blessuð sé minning þeirra.
Guðgeir Jónsson
JÖHANNA JÖNSDÓTTIR
Jóhanna var fædd í Reykjavík 20.
mars 1920, dóttir hjónanna Jóns
Grímssonar og Lilju Guðríðar Brands-
dóttur.
Jóhanna Jónsdóttir
Jóhanna byrjaði að vinna við bók-
band 1947 hjá Þorvaldi Sigurðssyni
og vann þar í tvö ár. Árið 1949 byrj-
aði hún að vinna í bókbandsstofu
Prentsmiðjunnar Eddu hf. í Reykja-
vík og vann þar síðan samfellt í nærri
24 ár. Hún var í stjórn Kvennadeildar
félagsins fyrsta starfsárið.
Jóhanna átti við nokkra vanheilsu
að stríða áður en hún lést snögglega
13. júní 1973.