Fréttatíminn - 29.04.2011, Page 8
www.forlagid.is
Blóðugasta
Bók ársins?
skurðlæknirinn
vill hitta þig …
MetsöluBók
tess gerritsen
er koMin út
á íslensku
ný
kilja
Áhugi þeirra á sjálf-
virkri sótthreinsun
kemur til vegna árang-
urs sem við höfum náð
í sótthreinsun um-
hverfis í matvælaiðnaði
og vegna nýrrar
tegundar sótthreinsis
sem við höfum
þróað ... “
Landinn heldur svartsýnn
Brún landans þyngist enn og er langt í að
hann geti talist vera bjartsýnn á ástand
og horfur í efnahags- og atvinnumálum
þjóðarinnar. Þetta má sjá af Væntinga-
vísitölu Gallup fyrir apríl sem birt var fyrr
í vikunni. Vísitalan lækkaði þriðja mán-
uðinn í röð. Að þessu sinni lækkaði hún
um 2,3 stig milli mánaða og mældist gildi
hennar 55,5 stig sem er svipað og það var
í apríl fyrir ári. Á síðustu tólf mánuðum
hefur vísitalan að meðaltali mælst rúm
57 stig og er því ljóst að landinn er heldur
svartsýnni nú en hann hefur að jafnaði
verið á þessu tímabili. Vísitalan mælir
væntingar neytenda til efnahags- og at-
vinnulífsins. Þegar vísitalan er undir 100
stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en
bjartsýnir. -jh
Kjaradeilur
harðna
Samninganefnd Alþýðusam-
bands Íslands hefur beint því til
aðildarsambanda og félaga að vísa
kjaradeilum við Samtök atvinnu-
lífsins til ríkissáttasemjara. Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir
að þolinmæði launþegahreyf-
ingarinnar sé brostin. Flóafélögin
svokölluðu, Efling, Hlíf og Verka-
lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur,
tóku samninganefndina á orðinu
og afhentu Magnúsi Péturssyni
ríkissáttasemjara bréf þar sem
kjaradeilunni var vísað form-
lega til embættisins. Flóafélögin
munu af sinni hálfu hverfa aftur
B reskt fyrirtæki sem hannar og byggir hátæknisjúkrahús og svokölluð „Clean Room“
um allan heim hefur óskað eftir bún-
aði frá DIS. Þeir vilja innleiða slíka
lausn í hágæðaverkefni sem verið er
að leggja lokahönd á. Ef vel tekst til
vilja félögin kynna DIS -lausn-
irnar fyrir forráðamönnum
1.200 sjúkrahúsa sem
þeir hafa aðgang að.
Þeir eru einnig með til
prófunar nýja gerð af
handsótthreinsi sem
sendur hefur verið
til Mið-Austurlanda,“
segir Ragnar Ólafs-
son, framkvæmda-
stjóri tæknisviðs
DIS.
„Áhugi
þeirra á
sjálfvirkri
sótt-
hreinsun
kemur
til vegna
árangurs
sem við
höfum
náð í sótt-
hreinsun
umhverfis í matvælaiðnaði og vegna
nýrrar tegundar sótthreinsis sem
við höfum þróað,“ segir Ragnar enn
fremur.
Síldarvinnslan tók fyrsta DIS -kerf-
ið í gagnið fyrir áratug en síðan hafa
fleiri bæst í hópinn, meðal annars
HB Grandi. Alls eru um fjörutíu sótt-
hreinsunarkerfi frá DIS í notkun,
flest hér á landi en sjálft sótthreinsi-
efnið er notað í nokkrum stórum
matvælaverksmiðjum í Bretlandi.
Í skýrslu sem Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins gerði í Síldarvinnsl-
unni 2002 eru niðurstöður örveru-
mælinga á yfirborði flata. Rann-
sóknirnar voru gerðar í flökunar- og
pökkunarsölum Síldarvinnslunnar
nokkrum vikum eftir uppsetningu
búnaðarins og á sömu stöðum þrem-
ur árum seinna. Niðurstöðurnar
sýndu nánast allar tölur undir einum
en það er árangur sem ég held að
menn gætu verið ánægðir með í heil-
brigðisgeiranum.“
Að mati Ragnars eru bundnar
miklar vonir við að DIS-kerfin fái
frekari dreifingu á Bretlandi.
„Leiðandi verslanakeðja á Bret-
landseyjum telur okkur með þessari
tækni breyta öllum helstu við-
miðum hvað varðar fjölda örvera í
matvælavinnslum sem leiðir af sér
minni gerlamengun matvæla. Þessi
verslanakeðja er með efnið frá okkur
í rannsókn og að henni lokinni munu
þeir votta efnið. Verslanakeðjan
ætlar að boða sína fiskframleiðendur
í Skotlandi til kynningar á okkar
lausnum í maí og við væntum mikilla
viðskiptatækifæra í kjölfarið.“ –ÞT
Sótthreinsunarkerfi DIS úða sótthreinsandi þoku og ná þannig að hreinsa alla fleti í rýminu.
Íslenskur sótthreinsibún-
aður eftirsóttur í Bretlandi
Íslenska fyrirtækið DIS framleiðir sjálfvirkan sótt-
hreinsibúnað sem vakið hefur athygli nokkurra stórfyrir-
tækja í Bretlandi, þeirra á meðal eru Bakkavör group og
leiðandi verslanakeðja á Bretlandseyjum.
nýsköpun sótthreinsiBúnaður dis setur ný viðmið
til upprunalegrar kröfugerðar um stuttan
kjarasamningstíma. Í yfirlýsingu Samtaka
atvinnulífsins kemur fram að besti kosturinn
fyrir þjóðina sé að atvinnuleiðin svokölluð
verði farin út úr kreppunni en mikilvægur
þáttur í þeirri leið sé að samið verði til
þriggja ára. Samningaviðræðum hafi ekki
verið slitið þótt tímabundið hlé hafi verið
gert. Ekki sé hægt að gera kjarasamning til
þriggja ára án aðkomu stjórnvalda. -jh
DIS hefur
þróað sótt-
hreinsandi
vökva sem á
að vera mildur,
langvinnur og ekki
ætandi. Hér er
Ragnar Ólafsson með
sótthreinsinn.
Helgin 29. apríl-1. maí 2011