Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 36
Bókaútgáfan Uppheimar
hefur verið iðin við að gefa
út ljóðabækur. Á liðnu ári
sendi hún frá sér ljóðasöfn
eftir Bjarna Gunnarsson og
Ara Trausta. Þýðingasafn
Gyrðis Elíassonar gladdi
marga sem kættust enn meir
þegar hann fékk bók-
menntaverðlaun Norður-
landaráðs fáum dögum
eftir útgáfu safnsins. Og
nú koma frá Uppheimum
fjórar nýjar ljóðabækur.
Þær eru: Blindir fiskar,
önnur ljóðabók Magn-
úsar Sigurðssonar. Fyrir
þá fyrstu, Fiðrildi, mynta
og spörfuglar Lesbíu, hlaut
Magnús Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
árið 2008.
Höfuð drekans á vatninu
kallast ellefta ljóðabók
Guðbrands Siglaugssonar.
Hinar tíu komu út á árabilinu
1977 til 2007.
Kafbátakórinn er fyrsta
ljóðabók Steinunnar G.
Helgadóttur sem hlaut
Ljóðstaf Jóns úr Vör 2011
fyrir ljóðið Kaf. Steinunn,
sem þekktust er fyrir störf
sín að myndlist, stígur hér
fram sem þroskað skáld.
Marlene og ég er þriðja
ljóðabók Gunnars M. G.
Fyrsta bók hans, Skimað
út, kom út árið 2007 og var
fylgt eftir með bókinni Milli
barna 2009.
Þá hafa Uppheimar
endurprentað Hundgá úr
annarri sveit, fyrstu ljóða-
bók Eyþórs Árnasonar sem
hann fékk bókmenntaverð-
laun Tómasar Guðmunds-
sonar fyrir 2009 . -pbb
Fimm ljóðabækur frá Uppheimum
Bókardómur Brotin egg eftir Jim Powell
S káldsagan endurspeglar heiminn: Hrun menningarsamfélaga Evrópu á síðustu öld er enn að birtast
okkur í skáldsögum af ýmsu tagi. Ný
skáldsaga í útgáfuröð Bjarts sem Snæ
björn Arngrímsson stofnaði til á sínum
tíma, Neon, er til marks um það. Brotin
egg er fyrsta skáldsaga bresks höfundar
sem skaust snöggt upp á stjörnuhimin
ensku skáldsögunnar í fyrra. Jim Powell
heitir maðurinn og á að baki fjölbreyttan
feril uns hann tekur til við sögusmíð.
Brotnu eggin hans er flunkuný og þýdd
snoturlega af útgáfustjóra Bjarts, Guð
rúnu Vilmundardóttur, og Arnari Matt
hías syni.
Þau hjá Bjarti kalla Neonklúbbinn á
góðum degi sjálfshólsins „besta bóka
klúbb í heimi“. Þar hafa komið út 67
verk, mörg hver merkileg en í seinni tíð
er sá heildarsvipur sem Snæbjörn mark
aði útgáfunni tekinn að raskast: Sam
hæfð kápuhönnun sem tengdist nafninu
Neon hefur vikið fyrir ábúðarmiklum
hönnuðum kápum og í seinni tíð fjöl
breyttum útfærslum. Kápan á Brotnum
eggjum er stæling á ensku kápunni og
Þrumulostinn eftir William Boyd, sem
kom út seint í fyrra, var af öðru sauða
húsi. Val á verkum í ritröðina er líka
tekið að bregðast upphafsstefnunni:
Þrumulostinn er bara venjulegur reyfari.
Ef Bjartsmenn vilja halda seríunni ættu
þeir að vanda valið í röðina en ekki nota
hana sem sópdyngju.
Brotin egg rekja sögu fórnarlamba
þeirra sem gengu á vit alræðiskenninga
kommúnisma og nasisma. Þar er sögð
saga fjölskyldu sem sundrast í ofsóknum
á hendur gyðingum og þjóðernishópum
sem lentu á skilum átakasvæða hug
myndafræði ríkiskommúnisma Stalíns
og flokksræðis Hitlers. Erkidæmið um
mann sem veður í villu og svíma er aðal
persóna verksins: Felix er eldri herra
maður sem býr í París í skjóli stalínista
franska kommúnistaflokksins. Hann
virðist í upphafi vera sögulaus maður
en er af pólskum gyðingum kominn og
fóstraður af austurrískum fasista. Hann
hefur lifað á því að semja ferðabækur um
lönd austurblokkarinnar sem eru samdar
eftir línunni og eru lygi mestan part, eins
og ferðabæklingar eru yfirleitt. Þegar
hann fær tilboð frá bandarísku fyrir
tæki um kaup á röðinni fer hann vestur
um haf og notar tækifærið til að leita
uppi bróður sinn. Í okkar fjölskylduvæna
heimi er það með miklum ólíkindum en
ekki með öllu óþekkt með öðrum þjóð
um. Þess þekkir maður dæmi sjálfur.
Leitin að bróðurnum og salan leiðir Felix
svo á vit fyrra lífs og eigin örlaga sem
hann hefur byrgt í minni sínu.
Höfundurinn vill draga upp mynd af
hinni sundruðu fjölskyldu og hvernig
hörð hugmyndafræði leiðir menn í villur
frá sjálfum sér og gæskunni sem í öllum
býr.
Þetta er ekki ósnoturt verk en ansi
reyfarakennt á köflum og verður harla
sápukennt er yfir lýkur. Það verður seint
talið til merkilegra nýsprottinna verka og
er til dæmis um þau miðlungsverk sem
Bókmenntasjóður styrkir til þýðinga en
þar á bæ virðast menn vera eftirlátssamir
í meira lagi.
Brotin egg er því gott dæmi um það
hvernig menn hvika frá settum mörkum:
Bókmenntasjóður á að styrkja útgáfu
bókmennta sem eru yfir meðallagi, Neon
átti að koma á framfæri verkum sem
væru athyglisverð og stæðu upp úr. Brot
in egg eru miðlungs afþreyingarsaga,
þægileg afþreying; á skjön við stefnu
Bókmenntasjóðs og erindi Neon.
36 bækur Helgin 29. apríl-1. maí 2011
Bókadómur minningar úr menntaSkóla ...
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Síðunni hefur borist leiðrétting á frétt í
liðinni viku um fyrstu útgáfu á bókum um
týnda soninn Valla en JPV hefur nú gefið
út tvær harðspjaldabækur um þennan
húfukarl. Í elskulegri ábendingu frá Sigurði
Valgeirssyni, fyrrum framkvæmdastjóra
Almenna bókafélagsins, kemur fram að
fjórar bækur um Valla hafi komið út á ár-
unum 1991-1993. Eftir sömu ábendingu
verður að viðurkenna að Vallabók kom
út í endurútgáfu á vegum Hóla 2003.
JPV-menn eru því sporgöngumenn í
útgáfum á þessari vandfundnu fígúru
með skotthúfuna. -pbb
Það sem sannara reynist
Frá dögum
kreppunnar miklu Að baka ommilettu
Ekki ósnoturt verk en ansi reyfarakennt á köflum og verður harla sápukennt er yfir lýkur.
Út er komin, í fallegu rauðu bandi, viðtalsbók með
viðaukum sem geymir samtöl við Eymund Magnús
son skráð af Ólafi Grími Björnssyni. Eymundur var
fæddur 1913, bróðir hins kunna teiknara Tryggva
Magnússonar, en þeir voru ættaðir að norðan, úr
Skagafirði, Húnavatnssýslu, Selströnd við Stein
grímsfjörð og af Langanesinu. Báðir fluttu í bæinn
og störfuðu hér á meðan þeir lifðu. Eymundur kom
suður og settist í Menntaskólann í Reykjavík og var
búinn að vera í skólanum í sex vetur þegar hann var
rekinn úr skóla fyrir grein í Skólablaðinu sem þótti
sneiða um of að kennurum. Honum var meinað að
ljúka prófi og olli brottvikning hans, sem var af póli
tískum ástæðum, miklu uppnámi í skólanum. Þetta
var í öndverðri kreppunni og tilheyrði Eymundur
hópi ungra kommúnista. Deilur um kaup og kjör voru
harðar og værur með hægri sinnuðum ungum mönn
um og kommúnistum. Eftir brottvikninguna var Ey
mundur atvinnulaus og hefur það vísast ráðið miklu
um að hann fór við þriðja mann til Mosku og settist
þar á skólabekk og lærði prentmyndasmíði. Heim
kominn tók hann til við að gera prentmyndir, stofnaði
merk fyrirtæki sem voru framarlega á því sviði og rak
þau til loka starfsævi sinnar. Hann var alla tíð vinstri
sinnaður og tilheyrði þeim hópi sem var lengst til
vinstri þótt hann væri sjálfur atvinnurekandi.
Efni bókarinnar er fróðlegt. Hér gefst tækifæri
til að stökkva inn í heim þeirra sem trúðu ungir á
nýtt samfélag og kynntust á eigin skinni hvaða að
stæður voru í Moskvu þegar hreinsanirnar hófust
á árunum fyrir stríð. Eymundur var handgenginn
mörgum þeirra sem voru teknir höndum og létu lífið
í fangelsum leyniþjónustu Stalíns og Bería. Hér koma
við sögu norrænir menn sem hurfu og voru myrtir;
Arne MunchPetersen og Allen Wallenius. Hér er enn
komið að sögu Veru Hertzsch en þau Eymundur voru
kunnug ef ekki náin. Lýst er heimi sem er á hverf
anda hveli – hinu alþjóðlega samfélagi róttæklinga
sem flúði stéttaátök og hörku heima fyrir og leitaði
skjóls í gini úlfsins sem kostaði margan manninn
lífið.
Bókin er fallega um brotin og skreytt ljósmynd
um. Nokkuð er þar þó um tvíbirtingar af myndum
sem eru óþarfar en viðtölin birtust fyrst í tímaritinu
Súlum. Eymundur lést í september 2009. Bókin mun
fást í Bókinni á Hverfisgötu. -pbb
Kiljuútgáfan af bók
Yrsu Sigurðardóttur,
Ég man þig, er komin
aftur á topp aðallista
Eymundsson. Á hæla
Yrsu koma alþjóðlegu
metsöluhöfundarnir
Jussi Adler Olsen og Jo
Nesbö, sem eru krimma-
höfundar eins og hún.
feikivinSæl YrSa
Valli hefur verið á ferli í ís-
lenskum bókum í tuttugu ár.
minningar úr
menntaskóla og
meira en það.
Eymundur Magnússon
Ólafur Grímur Björnsson
skráði
102 bls. Útgefandi
ótilgreindur 2011.
Brotin egg
Jim Powell
Þýðing: Guðrún Vilmundar-
dóttir og Arnar Matthíasson.
334 bls. Bjartur 2011
Jim Powell sló í gegn með sinni fyrstu og einu
skáldsögu til þessa.
Fróðleg viðtals-
bók um heim
alþjóðlegra
róttæklinga í
gini úlfsins í
Moskvu
Vera Hertzsch
Brotin egg er því gott dæmi um það hvernig menn hvika
frá settum mörkum: Bókmenntasjóður á að styrkja útgáfu
bókmennta sem eru yfir meðallagi, Neon átti að koma á
framfæri verkum sem væru athyglisverð og stæðu upp úr.
Mikið úrval
dekkjum!
af sumar-
Sumardekkin
eru komin
í BYKO!