Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 2
Þóra
Tómasdóttir
thora@
frettatiminn.is
Skemmtilegar hugmyndir fyrir fermingar-
veisluborðið á www.gottimatinn.is
fermingar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
1
-0
5
8
6
Sigmundur neitar
að veita skriflegt leyfi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, neitar að gefa Fréttatímanum
skriflegt leyfi til að fá yfirlit yfir námsferil hans í Ox-
ford-háskóla. Vegna persónuverndarlaga í Bretlandi
er skrifstofu skólans óheimilt að veita upplýsingar
um nemendur skólans án skriflegs samþykkis
þeirra sjálfra. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmað-
ur Sigmundar, staðfesti þetta við blaðamann Frétta-
tímans og vildi ekki gefa upp ástæðu þess að Sig-
mundur Davíð vill ekki veita þetta leyfi. Upplýsingar
um nám Sigmundar Davíðs hafa verið misvísandi
á hinum ýmsu vefsvæðum veraldarvefsins, jafnvel
þótt um sé að ræða síður sem lúta stjórn Sigmundar
sjálfs. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Fréttatím-
inn ekki fengið staðfest með óyggjandi hætti hvaða
námi Sigmundur Davíð hefur lokið. -óhþ
Helga Sigríður Sigurðardóttir gekkst
undir aðgerð á hjarta fyrir rúmlega tíu
dögum en bundnar eru vonir við að nú
hafi endanlega verið gert við hjarta-
galla sem hefur hrjáð hana undanfarið
hálft ár.
„Aðgerðin gekk vel og lækninum
tókst að gera það sem hann ætlaði sér.
Hins vegar var ástandið á hjartanu ekki
eins gott og við héldum og það var aug-
ljós súrefnisskortur í hjartavöðvanum,“
segir María Egilsdóttir, móðir Helgu
Sigríðar. „Hjartað tók svo við sér eftir
aðgerðina og nú vonum við það besta.“
Í nóvember í fyrra hné Helga
Sigríður niður með kransæðastíflu
þegar hún var í skólasundi á Akureyri.
Skömmu síðar fékk hún hjartaáfall og
þá uppgötvaðist galli í kransæð sem
gera átti endanlega við í þetta skiptið.
Opin brjóstholsaðgerð er hins vegar
heilmikið álag og Helga Sigríður hefur
dvalið á hjarta- og lungnaskurðdeild
yfir páskana. „Hún er líklega komin
með lungnabólgu í öðru lunganu og
þarf að vera hér eitthvað áfram. Við
vonumst þó til að fara heim í þessari
viku,“ segir móðir hennar.
Helga Sigríður var strax sett í stífa
endurhæfingu eftir aðgerðina. „Hér er
ekkert elsku mamma. Hún var fljótt
látin fara fram úr rúminu til að hreyfa
sig. Nokkrum sinnum á dag á hún að
ganga eftir spítalagöngunum en hún
verður í tvo til þrjá mánuði að jafna
sig á þessu. Við vonum bara að ekkert
komi upp á,“ segir María.
Heilbrigðismál Helga sigríður jafnar sig eftir Hjartaaðgerð
Á spítala um páskana
Helga Sigríður gekkst undir
velheppnaða hjartaaðgerð á
dögunum og vonast til að komast
heim til sín í vikunni.
u nnur Sigurðardóttir, sambýlis-kona athafnamannsins Hannesar Smárasonar, hefur selt lúxusvillu,
sem var á hennar nafni, á Fjölnisvegi 9
til Sparkle S.A., nýstofnaðs huldufélags í
Lúxemborg. Ekki kemur fram í kaupsamn-
ingnum hvert kaupverðið er en félagið yf-
irtekur fasteignalán frá Landsbankan-
um að upphæð 74,3 milljónir. Húsið,
sem er rétt tæplega 370 fermetrar
að stærð, hefur verið í eigu Hann-
esar Smárasonar frá árinu 2004.
Fyrst í gegnum félagið Fjölnisveg 9
ehf., sem var í eigu Hannesar áður
en Landsbankinn tók félagið yfir.
Hannes keypti húsið af félaginu
sínu í september 2007 og seldi síðan
sambýliskonu sinni, Unni Sigurð-
ardóttur, það í desem-
ber sama ár. Hús-
ið var keypt fyrir
70 milljónir árið
2004 og gerði
Hannes endur-
bætur á því
f yr ir 350
milljónir,
sam-
kvæmt
bók-
haldi
hans
sem
komst í fjölmiðla þegar hann reyndi að fá
ógilta húsleit efnahagsbrotadeildar Ríkis-
lögreglustjóra vorið 2009. Grunur efna-
hagsbrotadeildarinnar beindist að því að
sala hússins til Hannesar, og síðar Unnar,
hefði verið málamyndagjörningur vegna
þess hversu lágt kaupverðið var.
Um tíma var Hannes Smárason kon-
ungur Fjölnisvegarins. Hann átti bæði
hús númer 9 og 11 og hugðist tengja hús-
in saman með göngum. Áður en honum
tókst það ætlunarverk sitt yfirtók Lands-
bankinn félagið Fjölnisveg 9 ehf., sem átti
Fjölnisveg 11 og glæsiíbúð við Pont Street
í London, íbúð sem metin var á 7,5 milljónir
punda eða tæplega 1,5 milljarða.
Ekkert er vitað um eigendur huldu-
félagsins Sparkle S.A. í Lúxemborg eða
félagið sjálft nema að það er nýstofnað í
hlutafélagaskrá landsins. Tveir aðilar, C.
Godfrey og S. Bivek, skrifa undir samning-
inn fyrir hönd félagsins. Það er ekki skráð
í gagnagrunn samstarfsaðila Creditinfo í
Lúxemborg.
Af skötuhjúunum Unni og Hannesi er
það annars að frétta að þau eru búsett í
Barcelona á Spáni, nánar tiltekið á Carrer
de Josep Bertrand nálægt miðborginni, í
glæsilegu húsi.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Neyðarlög staðfest
Neyðarlögin voru staðfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á miðvikudag
þegar dómurinn úrskurðaði
Icesave-innlánin forgangskröfur í
þrotabú Landsbankans. Almennir
kröfuhafar höfðuðu mál gegn
slitastjórninni til að fá neyðarlög-
unum hnekkt. Ef Héraðsdómur
Reykjavíkur hefði komist að þeirri
niðurstöðu að Icesave-innlánin
væru almennar kröfur en ekki
forgangskröfur, hefði það sett
áætlanir um greiðslur úr þrotabúi
Landsbankans í uppnám því þá
hefðu breski og hollenski trygg-
ingarsjóðurinn fengið mun minna í
sinn hlut vegna Icesave-innistæðn-
anna. Búast má við því að dómnum
verði áfrýjað til Hæstaréttar.
fasteignamarkaður lúxusvilla seld
Huldufélag í Lúx kaupir
glæsivillu sambýliskonu
Hannesar Smárasonar
Sparkle S.A., nýstofnað félag í Lúxemborg, keypti villuna og yfirtók lán frá Landsbankanum að
upphæð 74,3 milljónir.
Húsið var
keypt fyrir
70 milljónir
árið 2004 og
gerði Hannes
endurbætur
á því fyrir
350 milljónir,
samkvæmt
bókhaldi
hans.
Hannes
Smárason
hefur slitið
tengslin við
Fjölnisveg
og býr nú í
Barcelona.
Fjölnisvegur 9 er
glæsilegt utan frá
séð og ekki síður að
innanverðu þar sem
það hefur verið gert
upp fyrir 350 millj-
ónir króna af smekk-
fólkinu Hannesi og
Unni. Ljósmynd/Hari
Þóranna til
Háskólans í Reykajvík
Háskólinn í Reykjavík hefur ráðið dr. Þórönnu
Jónsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og
stjórnunar. Meginverkefni Þórönnu felast í mann-
auðsstjórnun, samþættingu innra starfs skólans
og rekstri flestra stoðdeilda hans. Hún verður
enn fremur
staðgengill
rektors í
málefnum
tengdum
rekstri
skólans.
Þóranna
hefur DBA-
gráðu frá
Cranfield-
háskóla og
MBA-gráðu
frá IESE. Hún
starfaði á
árum áður hjá
Háskólanum
í Reykjavík,
meðal annars sem forstöðumaður og aðstoðar-
deildarforseti viðskiptadeildar og framkvæmda-
stjóri Stjórnendaskólans. Hún hefur undanfarin
ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra samskipta og
viðskiptaþróunar hjá Auði Capital.
2 fréttir Helgin 29. apríl-1. maí 2011