Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 26
SKAPAÐU ÞÍNA EIGIN FRAMTÍÐ NÁMSBRAUTIR SEM HEFJAST Í HAUST: TAKTU SKREFIÐ Námsráðgjöf og upplýsingar: sími 525 4444 endurmenntun.is - umsóknarfrestur til 30. maí - umsóknarfrestur til 9. september LEIÐSÖGUNÁM Á HÁSKÓLASTIGI GÆÐASTJÓRNUN FRAMKVÆMDAFERLI MANNVIRKJAGERÐAR – fjármögnun, samningar, útboðsreglur og uppgjör VERKEFNASTJÓRNUN – LEIÐTOGAÞJÁLFUN HUGRÆN ATFERLISMEÐFERÐ - Eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám - Tveggja ára nám fyrir sálfræðinga og geðlækna FJÖLSKYLDUMEÐFERÐ - NÁM Á MEISTARASTIGI NÁM TIL LÖGGILDDINGAR FASTEIGNA-, FYRIRTÆKJA OG SKIPASALA REKSTUR, STJÓRNUN OG MARKAÐSSETNING SMÁFYRIRTÆKJA – MARKVISS LEIÐ Einnig í fjarnámi „Já, ég er tiltölulega agaður. Ég lifi skikkanlegu lífi og passa upp á sjálfan mig. Það gera það ekki aðrir.“ Þú hefur tekið á sjálfum þér og hættir til dæmis að drekka áfengi. Hefur það verið barátta? „Nei, það gengur bara mjög vel. Ég hætti árið 1996 og hef ekki skilið við bíllyklana síðan.“ Það eru miklar andstæður að lifa og hrærast í íþróttum en eiga við áfengis- vandamál að stríða. „Já. Ég lít ekki svo á að ég eigi við áfengisvandamál að stríða. Það voru ákveðin atriði sem gerðu það að verkum að ég vildi breyta lífi mínu. Ég var ekk- ert í neinni neyslu, þannig lagað séð. Ég tók bara þetta skref, svipað og þegar fólk þarf að létta sig. Ég ástunda núna lífsstíl sem gengur út á að eiga góða daga og ekki bara í nánustu framtíð. Ég ætla að lifa og vera lifandi í lífinu. Ég hef ekki séð brennivín bæta nokkurn mann.“ Hvað gerði það að verkum að þú vildir breyta um lífsstíl? „Ég sé ekki eftir neinu en það gera allir mistök. Það skiptir öllu máli þegar maður gerir mistök, hvort sem það er í fótbolta eða öðru, að eiga það við sjálfan sig. Viðurkenna sín mistök og gera eitt- hvað í málunum. Ég gerði það. Sá sem gerir aldrei neitt af sér, hann gerir ekki neitt. Ef þú vogar engu þá vinnur þú ekkert.“ Ekki hægt að gera verr Eitt af því sem stendur upp úr á ferli þínum er árangurinn með íslenska lands- liðinu. Hvernig blasir landsliðið við þér í dag? „Mér finnst það hálf dapurlegt. Það er sorglegt hvernig liðið hefur drabbast niður og farið í ógæfugír. Ég held að það þurfi að breyta mörgu. Það eru menn sem stjórna þessu, framkvæmdastjórar, þjálfarar og heilt teymi í kringum liðið. Þeir eru sjálfsagt að reyna að gera eins og þeir geta en það dugar ekki til.“ Er það þá Knattspyrnusambandið frekar en leikmennirnir sem klikka? „Ég held að það séu margir góðir leikmennir í liðinu sem gaman væri að vinna með og hægt að fá meira út úr. Ég þekki marga af þessum strákum og veit að þeir geta gert betur. Skilaboðin þurfa að vera skýr og þeim má ekki breyta þó að liðinu gangi illa. Ég vann með Eiði Smára sem ungum strák og ég átti aldrei í neinum vandræðum með hann. Ég hef trú á því að það sé hægt að gera mun betur með þetta lið. Ég held að liðið og allir sem að því standa geri sér grein fyrir að við þetta verði ekki unað.“ Heldurðu að þú næðir betri árangri með þetta lið? „Ég held að það sé ekki hægt að ná verri árangri með landsliðið.“ Gætir þú hugsað þér að þjálfa liðið? „Já, það var gaman að vinna með landsliðinu. Það var skemmtilegur og kröftugur tími. Við snerum þessu við og fórum að gera hluti sem menn áttu ekki von á.“ En nú gengur kvennalandsliðinu vel. Fylgistu með kvennaboltanum? „Já, hann er í mikilli sveiflu. En nei, ég fylgist ekki mikið með honum, bara aðeins. Það er gaman að sjá hvað þró- unin er mikil og hvað gæðin og tæknin eru gjörbreytt.“ Kæmi til greina að þjálfa kvennalið? „Ég held að minn tími í því sé ekki kominn en ég þjálfaði reyndar stelpur á Skaganum í tvo mánuði og það var mjög skemmtilegt. Þær voru fínar og flottar. Ég tel bara að mín aðferðafræði virki betur á karla en konur.“ Eiður Smári of harkalega dæmdur Hvað finnst þér einkenna efnilegan leik- mann? „Það er mjög misjafnt. Í dag er verið að leita að sterkum karakterum því tæknin og vinnusemin hefur aukist mjög mikið hjá öllum. Í útlöndum er lagst í njósnaleiðangra til að kanna kar- akterinn því þú vilt ekki kaupa gallaða vöru. Þú getur þjálfað mann og komið honum vel af stað en ef karakterbrestir eru til staðar er mjög erfitt að þjálfa það. Þú þarft að hafa vinnusama menn og samviskusama. Þeir þurfa að vera tilbúnir að taka að sér verk sem eru ekki endilega á óskalistanum, kannski önnur hlutverk en þeir vilja sjálfir. Þá skiptir miklu máli að þeir séu jákvæðir.“ Geturðu nefnt mér dæmi um stráka sem þú hefur séð sem sterka karaktera og hafa reynst góðir fótboltamenn? „Já, ég man til dæmis eftir einum ung- um strák í KR. Ég man alltaf eftir fyrstu spyrnunni hans, hann hitti ekki boltann sem skrúfaðist lengst upp í stúku. Ég stóð í skýlinu, greip fyrir augun og hugsaði bara „djíses“. En þessi maður er í góðu lagi, búinn að eiga feiknalega farsælan feril og heitir Brynjar Björn Gunnarsson. Það voru ekki margir sem höfðu trú á að Brynjar ætti eftir að verða þessi stöðugi og sterki leikmaður. Ívar Ingimarsson er annar. Ég vann örstutt með honum í landsliðinu en þekki hann og veit hvers konar karakter hann er. Hermann Hreiðarsson. Þetta voru ekki allt flinkustu fótboltamennirnir sem strákar en feiknalega árangursríkir leik- menn. Þeir eiga að vera öðrum fyrir- myndir þegar verið er að kasta strákum út úr boltanum á unglingsárum, fyrir að vera ekki nógu tæknilegir. Þessir menn gáfust ekki upp og komu sterkir inn um tvítugt. Eins hafa verið margir efnilegir leikmenn sem ekkert rættist úr.“ Eiður Smári er leikmaður sem hefur oft verið gagnrýndur. Hvað þykir þér um það? „Mér finnst Eiður alveg úrvals- Það er sorg­ legt hvernig liðið hefur drabbast niður og far­ ið í ógæfu­ gír. Ég held að það þurfi að breyta mörgu. ... Ég held að liðið og allir sem að því standa geri sér grein fyrir að við þetta verði ekki unað. ... Ég held að það sé ekki hægt að ná verri árangri með lands­ liðið. 26 fréttir Helgin 29. apríl-1. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.