Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 24
G
uðjón er að búa sig
undir brottflutning úr
borginni en fótbolta-
tímabilið er að hefjast
og stefnan er sett á
Vestfirðina. Þar þjálfar hann fyrstu-
deildarliðið BÍ/Bolungarvík og ætlar
sér stóra hluti utan vallar sem innan.
En Guðjón er blóðheitur maður með
sterkar skoðanir á fótbolta sem og á
öðrum sviðum.
„Já, ég er mjög pólitískur maður og
mér þykir umræðan í stjórnmálum
frekar dapurleg. Það er léleg liðsheild
á þinginu og ekki margir þar sem ég
myndi velja í liðið mitt.“
En það er margt sameiginlegt með
fótbolta og stjórnmálum.
„Já, það er margt svipað. Fyrst þarf
að ná samstöðu og búa til liðsheild og
liðsheildin verður aldrei sterkari en
veikustu hlekkirnir í henni. En sterk-
ir og góðir spilarar skynja mikilvægi
liðsheildarinnar. Fótboltinn er miklu
skemmtilegri og jákvæðari en stjór-
nmálin. Þar er maður að vinna með
ungum mönnum sem eru uppfullir af
lífsvilja og löngun, sem eru forrétt-
indi. Ég geri ekki alla góða í fótbolta
en ég tel að ég geti bætt þá sem menn
og hjálpað þeim að undirbúa sig fyrir
lífið. Margir þeirra sem ég hef þjálfað
eru vinir mínir til lífstíðar þannig að
ég á stóran hóp af vinum.“
Hefur verið skorað á þig í stjórnmál?
„Menn hafa spáð í það enda hef ég
ekki legið á skoðunum mínum. Ég er
mikill Íslendingur í mér og mér þykir
ekki alltaf hafa tekist vel til í stjór-
nmálum. Þá skiptir engu máli hverjir
eiga í hlut. Fjölskyldan mín hefur
fengið að heyra það þegar hún hefur
verið í pólitíkinni og maður hlífir
engum. Ekkert verk er svo vel unnið
að það sé ekki hægt að gera betur.“
Grímulaus aðför að Geir Haarde
Einn sögulega merkilegur liður í upp-
gjörinu við hrunið er landsdómur yfir
mági þínum, Geir H. Haarde. Hvernig
blasir málið við þér?
„Mér finnst það sýna aumingja-
dóminn í stjórnmálamönnum. Þetta
er grímulaus aðför kommúnista að
Geir. Steingrímur J. og þeir sem að
þessu standa eiga að skammast sín
og ég held að menn sem standa í gler-
húsi ættu ekki að vera að grýta grjóti.
Ég er hræddur um að þetta eigi eftir
að koma í bakið á þeim. Málið mun
marka spor í íslenskri sögu og djúp
spor í pólitískri sögu. Ég held að það
verði skarpari skil í stjórnmálum hér
eftir.“
Þú hefur verið í Sjálfstæðisflokknum
í áraraðir. Varst þú meðal ráðgjafa
Geirs?
„Neinei, hann var með fullt af
fagfólki í kringum sig. Ég vildi hins
vegar að hann hefði hlustað meira
á mig. Þá hefði hann farið öðru-
vísi í gegnum sum mál. Og það var
ekki stefna Sjálfstæðisflokksins sem
klikkaði. Stefna flokksins stendur
sterk og óhögguð eftir og mér finnst
að menn ættu að gera meira í því að
verja hana af krafti. Í staðinn höfum
við glórulausan sósíalisma sem veður
hér uppi og mun keyra þetta samfé-
lag í vesældina eina.“
Hyggst draga Vestfirðinga á
völlinn
Þú ert að taka við nýju starfi sem
þjálfari fyrir vestan. Hvernig leggst
það í þig?
„Mér líst vel á þetta. Ég mun búa í
Bolungarvík og mér líður vel á milli
fjalla. Ég bjó lengi í miðlöndunum í
Englandi þar sem er langt til fjalla.
Ég fór vestur um daginn að skoða
aðstæður og ég hlakka bara til. Við
erum búnir að vera með allan hópinn
í bænum í vetur og þegar leikmenn
hafa lokið prófum í vor förum vestur
og spilum fyrsta leikinn um miðjan
maí. Þarna er jákvætt fólk og það eru
jákvæðir menn sem standa að þessu.“
En þú hefur náð gríðarlegum
árangri sem þjálfari í gegnum tíðina.
Það hljómar kannski ekki sem stærsta
tækifæri lífs þíns að þjálfa Bolungar-
vík í fótbolta. Hvað sérð þú spennandi
við þetta?
„Ég hef unnið allt sem hægt er að
vinna af titlum hér heima, bæði sem
leikmaður og þjálfari. Og oft. Ég lít
á þetta sem mikla áskorun. Menn
biðu ekki beinlínis í röðum eftir að
taka við þessu verkefni. Mér finnst
mjög heillandi að þarna hefur í raun
enginn fótbolti verið í tæp þrjátíu ár.
Ef okkur tekst að koma fótum undir
liðið, auka áhuga á fótbolta á svæðinu
og búa til stemningu þá erum við að
stórauka menningarflóru norðan-
verðra fjarðanna. Þarna geta gerst
hlutir sem fólk vill sækja. Ef við náum
10 til 20 prósentum af byggðinni á
völlinn þá erum við að gera góða
hluti.“
Líturðu á þetta sem eins konar sam-
félagstilraun?
„Já, þetta er tilraun til að búa til
lið sem getur lifað af. Svo að börn
og unglingar á svæðinu geti alist
upp við að eiga fótboltalið. Þannig
lít ég á þetta en ekki bara sem eitt-
hvert sumarverkefni. Ef þetta lið á að
Eltist við öðruvísi titla
Þjálfarinn Guðjón Þórðarson hefur einsett sér að byggja upp fótboltamenningu á Vestfjörðum og
koma liði Bolungarvíkur á kortið. Hann fagnar frumstæðum aðstæðum í sveitinni en gæti líka vel
hugsað sér að þjálfa landsliðið í fótbolta. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann. Ljósmyndir/Hari
skjóta rótum þá tekur það tíma.“
Sérðu fyrir þér að þú verðir lengur en
þetta sumar?
„Já, alveg eins og ekkert síður. Ég
er meira að segja farinn að undirbúa
haustið og byrjaður að leggja drög að því
hvernig við vinnum í vetur.“
Breytti um lífsstíl
Hvað stefnir þú hátt með liðið?
„Það er ósköp einfalt. Ég var spurður
að því af leikmanni um daginn hvort ég
ætlaði ekki að fara að halda fund og tala
um markmiðin. Ég þarf engan fund til
þess. Það liggur ljóst fyrir að við ætlum
að hætta að tapa fótboltaleikjum og byrja
að vinna eins marga og hægt er. Það
verður enginn afsláttur gefinn í þeim
efnum.“
Þú hefur flakkað á milli liða undanfar-
in ár. Hafði blóðhiti þinn áhrif á það?
„Neinei, það eru margar ástæður fyrir
því. Sums staðar breyttust forsendur
og nýir eigendur komu inn, eins og hjá
Barnsley. Ég sagði upp í Notts County.“
En landsliðinu gekk frábærlega undir
þinni stjórn og var hársbreidd frá því
að komast á Evrópumeistaramót. Hvers
vegna hættir þú þar?
„Ég bara sagði upp og fór. Ég ætlaði
að róa á ný mið. Ég er einn af örfáum
landsliðsþjálfurum sem hafa ekki verið
reknir. Þegar ég sagði upp var ég farinn
að skoða vinnu erlendis. Þá átti ég mögu-
leika á að fara til Norðurlandanna og svo
kom Stoke upp.“
Þér er lýst sem skrautlegum og skap-
stórum þjálfara sem gerir kröfur til leik-
manna.
„Ég er hörkuþjálfari. Og geri kröfur.
Ég er staðfastlega þeirrar trúar að agi
sé upphaf árangurs og held að það skipti
öllu máli. Eitt er hugmyndin um að
vera góður leikmaður en annað að vera
tilbúinn að gera það sem þarf.“
Ert þú sjálfur agaður?
Ég var spurð
ur að því af
leikmanni um
daginn hvort
ég ætlaði
ekki að fara
að halda
fund og tala
um mark
miðin. Ég
þarf engan
fund til þess.
Það liggur
ljóst fyrir að
við ætlum að
hætta að tapa
fótboltaleikj
um og byrja
að vinna eins
marga og
hægt er.
Framhald á næstu opnu
Ef okkur tekst að koma fótum undir liðið, auka
áhuga á fótbolta á svæðinu og búa til stemningu
þá erum við að stórauka menningarflóru norðan
verðra fjarðanna. Þarna geta gerst hlutir sem fólk
vill sækja. Ef við náum 10 til 20 prósentum af
byggðinni á völlinn þá erum við að gera góða hluti.
Guðjón segir sorglegt að fylgjast með aðför kommún-
ista að mági sínum, Geir H. Haarde, sem nú sé dreginn
fyrir landsdóm. Málið eigi eftir að marka djúp spor.
24 fréttir Helgin 29. apríl-1. maí 2011