Fréttatíminn - 29.04.2011, Qupperneq 33
Tunnumaí
„Senn tekur 15 metra reglan gildi“
Engin áform eru að svo stöddu
hjá umhverfis- og samgöngusviði
Reykjavíkurborgar um að fresta á
ný gildistöku umdeildrar 15 metra
reglu við sorplosun í borginni ... Frá
1. maí verður innheimt sérstakt gjald
ef sorpílát eru meira en 15 metra
frá götu.
Stóri bróðir er alls staðar
„Eftirlit jafngildir ekki
ritskoðun“
Menntamálaráð-
herra segir að
ekki megi rugla
saman eftirliti
með fjölmiðlum
og ritskoðun. Ný
lög um fjölmiðla
hafa tekið gildi.
Var rétt stafsett í lögreglu-
skýrslunni?
„Líkamsárás í Fischersundi“
Grímuklæddir menn réðust með
bareflum á tvo unga menn um tvítugt
í Fischersundi í nótt. Árásin var til-
kynnt til lögreglu um klukkan eitt.
Gæti Stóratá verið mála-
miðlun?
„Ósammála um nafn á skagann“
Erfiðlega gengur að finna nafn á
skagann milli Eyjafjarðar og Skjálf-
andaflóa en sveitarstjórnir eru ósam-
mála um nafngiftina. Vestanmegin
skagans hefur nafnið Gjögraskagi
vinninginn, en Flateyjarskagi hugnast
best þeim sem búa austanmegin.
Er ekki sjálfhætt miðað við
bensínverðið?
„Vilja fækka bensínstöðvum“
Endurskoða á fyrirkomulag og fjölda
bensínstöðva í Reykjavík, samkvæmt
tillögu sem samþykkt var í skipulags-
ráði borgarinnar nýlega. 2.700
borgarbúar eru um hverja bensínstöð
– um það bil tíu sinnum færri en í
mörgum borgum Evrópu.
Aldrei að segja aldrei
„Aldrei betra Aldrei fór ég suður“
Um þrjú þúsund gestir sóttu rokkhá-
tíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður,
á Ísafirði í páskavikunni. Lögregla
segir hátíðina hafa farið vel fram
þrátt fyrir töluverða ölvun í bænum.
Er ástæðan ekki frekar veður-
farið?
„Svartsýni eykst meðal Íslendinga“
Enn þyngist brún landans og er langt
í að hann geti talist vera bjartsýnn
á ástand og horfur í efnahags- og
atvinnumálum þjóðarinnar, sam-
kvæmt Væntingavísitölu Gallup fyrir
aprílmánuð.
Vikan sem Var
F
A
B
R
IK
A
N
OSTAVEISLA FRÁ MS
Gullostur
Hvítmygluostur. Hvítmyglan er einnig
inni í ostinum. Áhugaverður ostur
með mildu bragði sem gott er að
njóta í lok góðrar máltíðar. Þessi
ostur er einn af flaggskipunum í
ostafjölskylduni frá MS.
Heilbakaður Gullostur
með timjan og hvítlauk
Vefjið smjörpappír utan um ostinn, pikkið átta göt ofan í
ostinn og stingið ögn af timjan ásamt þunnum sneiðum
af hvítlauk ofan í götin. Dreypið örlítilli ólífuolíu yfir.
Pakkið ostinum aftur inn í bréfið sem var utan um hann
og bakið hann í 30 mínútur við 160°C. Berið ostinn
fram með grilluðu hvítlauksbrauði.
Osta er hægt að bera fram með ýmsum hætti, það
má t.d. borða Gullostinn með góðu ávaxtamauki, eða
með hnetum og hella síðan góðu hunangi yfir eða setja
í hann fyllingu úr þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum
og fíkjum og skreyta hann að ofan með þurrkuðum
trönuberjum og hlynsírópi. Búa til litlar og fallegar
ostasamlokur eða ostasnittur.
Kynntu þér fleiri góðar hugmyndir og
uppskriftir á heimasíðunni: www.ostur.is
Ostabakki
- antipasti
Grillaðar paprikur, sól- eða ofn-
þurrkaðir tómatar, grillað eggaldin,
hráskinka og þurrkaðar pylsur.
Gullostur, gráðaostur með ferskri
peru, blár Kastali.
Steyptur villisveppaostur skorinn
út í litla hringi. Maribóostur með
kúmeni. Kryddað apríkósumauk.
Baguette-brauð.
Uppskriftina að kryddaða apríkósu-
maukinu má finna á vefnum www.ostur.is
SUMARHÚS OG FERÐALÖG
Gas-kæliskápar 100 og 180 lítra
Gas-hellur
Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-125w
Gas-ofnar
Gas-vatnshitarar
5 - 14 l/mín
Kælibox
gas/12v/230v
Gas-eldavélar
Sólarrafhlöður fyrir
húsbíla og fellihýsi.
Þunnar 130w
Bíldshöfði 12 •110 Reykjavík • 577 1515 • skorri.is • Opið virka daga frá kl. 8.15 til 17.30
Gleðilegt sumar!
Led-ljós = minni eyðsla