Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 34

Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 34
Með bók á heilanum B Bækur geta svo sannarlega haft áhrif á hugann. Undanfarið hefur bókin á nátt- borðinu verið Engan þarf að öfunda eftir Barböru Demick þar sem hún fjallar um ástandið í Norður-Kóreu. Hún var um árabil fréttaritari LA Times á Kóreuskaga og þekkir því vel til þar. Feðgunum ill- ræmdu, Kim Il Sung og Kim Jong-il, hefur frá lokum Kóreustríðsins nánast tekist að koma þjóð sinni aftur á steinaldarstig, að því undanskildu þó að her þess síðar- nefnda, sem nú fer með völd, ræður yfir gereyðingarvopnum. Norður-Kórea er og hefur verið lokað land. Því er fróðlegt að kynnast í bókinni heilaþvotti heillar þjóðar þar sem njósnað er um alla og engum má treysta; þjóðar sem búa hefur mátt við harð- ræði stjórnarfars sem leitt hefur til hungurs- neyðar og dauða milljóna manna. Hvergi hefur þó verið gefið eftir í pers- ónudýrkun leiðtogans. Alþýðan hreinlega tapaði sér því í sorg þegar Kim Il Sung fór á fund feðra sinna. Sonurinn, Kim Jung-il, tók við valdataumunum. Þjakaður lýðurinn fór úr öskunni í eldinn. Allt skipulag í Norður-Kóreu hrundi á síðasta áratug liðinnar aldar í kjölfar falls Sovétríkjanna og heimskommúnismans. Hið fallna stórveldi hafði haldið norður- kóreska ríkinu gangandi, m.a. með niður- greiddri eða ókeypis orku. Verksmiðjum var lokað, rafmagn var tekið af. Fólk hrakt- ist úr vinnu og engu breytti þótt sumir héldu vinnunni. Engin laun voru greidd. Það leiddi óhjákvæmilega til upplausnar, fæðuskorts, betls, hungurs og loks dauða. Allt var nýtt sem satt gat svanga munna, rætur og fræ sem fundust til fjalla. Það litla sem var að hafa var jafnvel drýgt með sagi. Nán- ast það eina sem ban- hungr- að fólk, og það í bók- staf- legri merkingu, hugsar um er að reyna með öllum ráðum að finna mat, að minnsta kosti á meðan þrek leyfir. Í þeirri von að ná sér í aura fyrir mat stal fólk í örvæntingu, náði sér m.a. í raflínustrengi til að selja í þeirri veiku von að fá eitthvað matar- kyns í staðinn. Strengirnir voru hvort eð Te ik ni ng /H ar i Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Þ akka þér fyrir bréfið sem þú sendir okkur í Besta flokknum í síðustu viku. Mér þykir vænt um að sjá að þér er ekki sama um Besta flokkinn. Í dágóða stund velti ég því fyrir mér sem þú varst að segja okkur og settist svo niður til að skrifa þér þessar línur. Til leið út úr blindgötunni Þú lýsir vel ástandinu frá því hrunið varð í október árið 2008 og kemst að sannfærandi niðurstöðu um ástæðuna fyrir að það greiddi fyrir framgangi Besta flokksins í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Ég er alveg sam- mála þér þar. Lífi okkar hefur verið stjórnað í gegnum stjórnmál, með tungumáli sem gerir það að verkum að fyrir hrun höfðu fæst okkar áhuga eða nennu á að reyna að skilja það. Það mætti kannski nefna þetta tungumál stjórnmálamann „stjórn-mál“ og því miður hefur það ekki verið nýtt til þess sem ég kalla venjulegar samræður heldur leitt til þess sem þú lýsir ágætlega sjálfur í bréfi þínu og kallar „útúrsnúninga“ og „smásálarskap hagsmuna og valdatogs.“ Og sá doði sem fylgdi áhuga- leysi okkar á að taka þátt í því öllu bar okkur að feigðarósi. Það er líka rétt hjá þér að það tekur langan tíma að breyta „stjórnmála- og umræðuhefð þjóðar“. En aldrei hefði mig grunað að fólk byggist við því að Besta flokknum mundi takast það á ellefu mánuðum. Við höfum hins vegar reynt að sýna að það er til leið út úr blindgötunni. Það er leið einlægrar samræðu. Ég hef reynt að vera heiðarlegur í því sem ég segi og geri. Ég reyni ekki að flækja að óþörfu. Frekar að þegja en segja. Í góðra vina hópi er ég kjaftfor og hæðinn, á sviði er ég órólegur og hávær. Þegar ég tala stjórn-mál, heiðarlegur og rólegur. Fyrir mér liggur að tala stjórn-mál á skiljanlegan hátt. Einn skóla- stjóri sagði á fundi um daginn í Kringlumýri að Besti flokkurinn þyrfti að tala skýrt. Og kannski höfum við ekki gert það, talað nógu skýrt, talað nógu mikið. Mikið hefur gengið á hjá okkur sem fórum í borgarstjórn fyrir kjós- endur Besta flokksins, við höfum viðurkennt Það er líka rétt hjá þér að það tekur langan tíma að breyta „stjórnmála- og umræðu- hefð þjóðar“. En aldrei hefði mig grunað að fólk byggist við því að Besta flokknum mundi takast það á ell- efu mánuðum. Besti flokkurinn og stjórnmálin Kæri Jón Kalman Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi Áhugasamir söngvarar eru velkomnir í prufusöng næstu daga. Nánari upplýsingar veita Dagur Jónasson formaður dagurjonasson@hotmail.com Friðrik S. Kristinsson söngstjóri fsk@kkor.is KarlaKór reyKjavíKur auglýsir eftir söngmönnum KarlaKór reyKjavíKur www.kkor.is Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is Helgin 29. apríl-1. maí 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.