Fréttatíminn


Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 29.04.2011, Blaðsíða 46
Álþynnur Mynstraðar neglur vinsælar Naglatíska hefur aldrei verið eins vinsæl og nú og stelpur sækjast eftir að mynstra á sér neglurnar í öllum regn- bogans litum. Shatter-naglalakkið frá OPI, sem myndar mynstur á nöglunum, er eitt af því sem hefur selst upp í öllum verslunum landsins. Einnig hefur svokallað Minx-naglaæði tröllriðið heiminum og er það nýkomið til landsins. Helstu Hollywood-stjörnur á borð við Beyonce, Drew Barrymore og Katy Perry eru duglegar að skarta litríkum nöglum frá Minx. Minx er ekki lakk, eins og ætla mætti, heldur örþunnar álþynnur sem fást í alls konar mynstri. Þynnurnar eru hitaðar og svo límdar á neglurnar og snyrtar til. Þær geta haldist á í allt að tvær vikur með réttri meðhöndlun. 46 tíska Helgin 29. apríl-1. maí 2011 Sýna hugrekki með djörfu útliti Á köldum vetrardegi fyrir nokkrum vikum klofaði ég snjóskaflana og hlífði mér fyrir rokinu, klædd í þykka pelsinn og góðu skóna, tilbúin að takast á við veðrið. Á móti mér kom stelpa, berleggjuð í hlýra- lausum kjól með þunnan jakka yfir axlirnar. Blá í framan og horfði á okkur hin. Öfundaraugum. Sýniþörf fólks virðist hafa aukist gríðarlega síðustu ár. Klámvæðingin hefur haft mikil áhrif á okkar vestræna samfélag og stelpur sækjast eftir djörfu útliti og sýna hugrekki og þor. Þær hengja brjóstin upp í háls, draga bolinn rétt niður fyrir rassinn og sleppa sokkabuxunum. Staulast svo um á fimmtán cm háum hælum og dýfa andlitinu í málningardollu; tilbúnar að takast á við samfélagið. Með von- arglampa í augunum og þörf fyrir að einhver taki eftir þeim. Fyrir ekki svo mörgum árum var nekt skil- greind á allt annan hátt en í dag. Nafli, bringa og aðrir líkamspartar þóttu óviðeigandi og betur huldir klæðum. Í dag þurfum við að líma augun við gólfið og vonast eftir því að verða ekki gómuð við að horfa ofan í háls- málið á hugrakkri stelpu. Nú þegar sumarið fer að ganga í garð er bráð- nauðsynlegt að létta af sér hlýju flíkunum og taka upp sumarklæðnaðinn. Fleiri fara að sækja í djarfa klæðnaðinn og nota sumarið sem afsökun fyrir sýniþörfinni; leyfa hugrekk- inu að ráða. Með glampa í augunum og von um að einhver taki eftir þeim. Hildur Ragnarsdóttir er 22 ára og starfar í versluninni Einveru. Einnig er hún virkur tískubloggari og bloggar á síðunum hilrag.com og reykjavikstreetstyle.com. „Stíllinn minn er mjög blandaður og fer mest eftir dögum og skapi. Stundum langar mig að vera fín, set á mig varalit og hoppa í hælana en aðra daga dett ég í rokkaragírinn og skelli mér í Converse-skóna. Ég kaupi fötin mín aðallega í All Saints, Zöru, H&M og svo auðvitað Einveru þar sem ég vinn. Innblásturinn fæ ég mest frá tískubloggum og einnig úr tónlist eða bíómyndum. Olsen–systurnar eru í miklu uppáhaldi hjá mér enda miklir frumkvöðlar þegar kemur að tísku.“ Stíllinn breytilegur eftir dögum 5 dagar dress tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Lauren Conrad með nýjan vef Öðruvísi vorlína frá Lancôme Það er alltaf hægt að treysta snyrtivörunum frá Lancôme. Nú hefur fyrirtækið sent frá sér nýja vorlínu sem leiðir mann til áttunda áratugarins. Línan er öðruvísi og fjölbreyti- leg og fyrirtækið hefur greinilega ákveðið að ganga skrefinu lengra en venjulega. Spennandi litaflóra, hippafílingur og mikil blómagleði er í fyrrirúmi. Þetta er fyrsta umhverfisvæna förðunarlínan frá fyrirtækinu og inniheldur aðeins nátt- úruleg efni, sem gefur þar af leiðandi fallega áferð og enn betri útkomu. Línan er sambland af alls konar vörum; gloss, varalitur, naglalakk, augnskuggar og fleira, og mun á næstu vikum berast hingað til lands. Þriðjudagur Skór: All Saints Buxur: Zara Peysa: Weekday Vesti: H&M Mánudagur Skór: Converse Buxur: Zara Skyrta: Ralph Lauren Úr: Fossel Miðvikudagur Skór: Minnetonka Sokkabuxur: H&M Stuttbuxur: Levi’s Belti: Zara Skyrta: Monki Jakki: Spúútnik Föstudagur Skór: Jeffrey Campbell Stuttbuxur: Kalda Bolur: American Apparel Hálsmen: All Saints Armband: H&M Fimmtudagur Skór: Jeffrey Campbell Kjóll: Kalda Jakki: Einvera Eyrnalokkar: Topshop Raunveruleikastjarnan Lauren Conrad, sem þekktust er fyrir þátt- töku sína í þáttunum The Hills, hefur svo sannarlega ákveðið að láta nafn sitt aldrei gleymast. Nýlega skrif- aði hún undir útgáfu- samning um sína þriðju bók sem fjallar um allt sem tengist tísku. Nú hefur hún tilkynnt að hún muni ritstýra nýjum vef sem fer í loftið á næstunni á slóðinni the- beautydepartment.com. Þar mun hún skrifta um allt sem tengist fegurð, snyrtivörum, tísku og fleira og hefur fengið í lið með sér förð- unarfræðinginn Amy Nadine og hárgreiðslu- meistarann Kristin Ess. Allt virðist hún geta gert, hún Lauren Conrad. www.rumfatalagerinn.is OPIÐ Á SUNNUDAG 1. MAÍ SUMARBÆKLIN GURINN OKKAR ER KOM INN ÚT!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.