Fréttatíminn - 29.04.2011, Síða 53
Sýningartæki, Skilavara og útlitSgö
lluð
tæki á mikið lækkuðu verði.
komDu og gerðu gÓð kauP
lagerHreinSun
í Skeifunni
aðeinS í Dag
, laugarDag
og SunnuDa
g
Helgin 29. apríl-1. maí 2011
L eikarinn Björn Hlynur Haraldsson hefur upp raust
sína með glæsibrag í verkinu
Húsmóðirin – Öll trixin í bókinni
og nokkur til. Björn Hlynur
hefur ekki mikið verið að flagga
sönghæfileikum sínum en finnst
lítið mál að taka lagið í sýning-
unni sem Vesturport frumsýndi í
Borgarleikhúsinu á miðvikudags-
kvöldið.
„Ég syng af og til og tek
stundum lagið í góðra vina
hópi,“ segir Björn Hlynur sem
syngur fullur sjálfsöryggis á
sviði Borgarleikhússins. „Við
höfum verið að keyra þetta með
fólki í salnum og finna út hvað
virkar og hvernig þetta rennur
og þetta hefur komið mjög vel
út,“ segir leikarinn sem renndi
síður en svo blint í sjóinn á frum-
sýningunni.
Lögin sem Björn Hlynur syng-
ur eru samin sérstaklega fyrir
sýninguna. „Pálmi Sigurhjart-
arson, sem sér um tónlistina í
sýningunni, gekk í það mál. Við
erum að fást við þrjú tímabil í
verkinu og lögin sem ég tek eru
í anda sjötta áratugarins,“ segir
Björn Hlynur, en góður rómur
hefur verið gerður að söng hans
sem þykir jafnvel bergmála
sjálfan Hauk Morthens.
Aðspurður hvort rökrétt fram-
hald sé ekki að gefa út plötu
spyr Björn Hlynur glettinn á
móti: „Ætli það endi ekki með
því?“
björn HLynur Sýnir á Sér nýja HLið
Syngur eins og hann
hafi aldrei gert annað
Björn Hlynur rúllar upp nokkrum „fiftís“-lögum eins og ekkert sé í Húsmóðurinni.