Fréttatíminn - 24.06.2011, Blaðsíða 43
norra na husid
e
-
-
Aðeins kr. 27.9
00
Farangurspoki 270
lítra
Gott verð - góða fe
rð!
Aðeins kr. 64.9
00
Farangursbox 450
lítra
Verð frá kr. 3.9
90
Sætaáklæði í úrva
li
Aðeins kr. 19.9
90
Kælibox 12V/220V
25L.
Verð frá kr. 5.4
90
Hjólagrindur í úrv
ali
Verð frá kr. 3.9
90
Framlengdir spegl
ar
Opnunartími verslunar:
Opið virka daga frá kl. 08-18.
Vagnhöfði 23 - S: 590 2000
benni.is - verslun@benni.is
Sérfræðingar í bílum
Fært til bókar
Garðabæjaríhaldið minnir
Guðna á loforðið
„Það er leiðinlegt fyrir gamlan stjórn
málamann að sitja þarna í alfaraleið,“
sagði Guðni Ágústsson, fyrrum ráð
herra og formaður Framsóknarflokksins,
Í framhjáhlaupi í fréttaspalli við blaða
mann Fréttatímans fyrir nokkru en Guðni
seldi hús sitt á Selfossi og er fluttur í
Sjálandshverfið í Garðabæ. Guðni sagði
dætur sínar búa í höfuðborginni auk þess
sem hann ynni þar. Þau hjónin hefðu því
ákveðið að selja og færa sig nær þeim.
„Ég er því kominn á vit Íhaldsins í Garða
bæ, keypti íbúð í blokk og horfi á hafið
eins og Einar Ben. Sennilega fer ég að
yrkja,“ sagði Guðni. „Annars er ég kom
inn í vandræði því ég fór á þúsund manna
þorrablót í Garðabænum síðastliðinn
vetur og flutti mikla ræðu yfir þeim. Þar
sagði ég m.a.: Hafið er blátt og himinninn
er blár en bærinn er grænn. Ég á mér
þann draum að flytja hingað og þá verð
ég auðvitað að kjósa þennan eina flokk
sem hér er, gulur, rauður, grænn og blár,
og heitir Sjálfstæðisflokkur. Þá klöppuðu
þeir og stöppuðu. Nú minna þeir mig stíft
á þetta.“ Í Pressunni í gær kom fram
að Guðni væri fluttur á Löngulínu,
í nýja bryggjuhverfinu í Garðabæ,
og býr því við götu með sama heiti
og hafmeyjan litla í Kaupmannahöfn.
Þar sagði Guðni: „Ég er kominn
að hafinu en á Selfossi bjó ég
við fljótið.“ Ráðherrann fyrr
verandi tók þó fram að hann
væri engin hafmeyja en hafið
heillaði hvern mann.
Lítt skiljanlegt þref
Ríkislögmaður hefur hafnað bóta
kröfu Önnu Kristínar Ólafsdóttur
en Jóhanna Sigurðardóttir forsætis
ráðherra valdi karl í stað hennar í starf
skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu.
Kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði í
mars að forsætisráðuneytið hefði brotið
jafnréttislög þegar karlinn var skipaður
í stöðuna því Anna Kristín hefði verið
að minnsta kosti jafnhæf. Anna Kristín
segir að úr því að forsætisráðherra ætli
að hunsa kærunefnd jafnréttismála sé
réttast að leggja nefndina niður. Hún
undirbýr málssókn. Jóhanna forsætisráð
herra hefur lýst því yfir að hún hyggist
leita sátta við Önnu Kristínu og ætli ekki
með málið fyrir dómstóla. Alþýða manna
hefur lítt skilið í þessu þrefi öllu enda
var óháð ráðgjafarfyrirtæki fengið til að
leggja mat á hæfni umsækjenda. Niður
staða þess var að setja karlinn í fyrsta
sætið en Önnu Kristínu í það fimmta. Val
forsætisráðherra á skrifstofustjóranum
var því að sjá eðlilegt. Fremur hefði mátt
búast við gagnrýni ef Anna Kristín hefði
hlotið hnossið. Þá hefði einhver getað
nefnt klíkuskap og að verið
væri að hygla flokksgæðingi
en Anna Kristín var áberandi
innan Kvennalistans og síðar
Samfylkingarinnar. Hún var að
stoðarkona Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgar
stjóra og aðstoðarkona
Þórunnar Sveinbjarnar-
dóttur umhverfisráð
herra.
Helgin 24.-26. maí 2011